<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:42:27" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:43:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:42:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil sérstaklega þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen
    fyrir að hann skuli taka svona vel í tillögur um að efla innlendan
    virðisauka. Ég held að það skipti miklu máli. Ég fór yfir það í störfum
    þingsins að við erum ekki að tala um einhverjar baunir heldur marga
    milljarða á hverju ári í gjaldeyri sem gæti hjálpað okkur að reka
    samfélagið og auðvelda okkur þessa vinnu. Það er mikils um vert að fá hér
    almennan samhljóm, bæði hvað þetta varðar og að við nýtum þær
    aflaheimildir sem eru gefnar út. Mér finnst það skipta máli og að menn séu
    ekki að láta aflaheimildir ár eftir ár dauðar falla þannig að enginn sé að
    veiða fiskinn. Það á t.d. við um ufsann ár eftir ár og það væri fróðlegt
    að fá að heyra afstöðu þingmanns hvað það varðar. En ég fagna því að menn
    séu hér tilbúnir að leita leiða. Það er einmitt það sem við eigum að gera,
    vera samtaka í því að reka ríkissjóð réttum megin við núllið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>