<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:43:39" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:44:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:43:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir
    ágætis seinna andsvar og í raun hrósa honum líka fyrir hans baráttu, hvað
    hún er einlæg og mikill eldmóður í henni. Ég hefði haldið að nú þegar hv.
    þm. Sigurjón Þórðarson er kominn við ríkisstjórnarborðið, hefur völdin
    eftir áralanga bið, að hann gæti gert eitthvað í þeim málum sem hann er að
    nefna. <ns:frammíkall skst="SigurjÞ">Þetta er allt að
    koma.</ns:frammíkall> Hann nefnir ufsann ekki ufsagrýlu heldur ufsa. Ég
    bara hvet hv. þingmann til að fara með þetta inn í ríkisstjórnina því þar
    gerist þetta allt saman. Þegar menn eru með meiri hluta, komast að
    kjötkötlunum, þá hvet ég menn bara til að gera það sem þeir geta og reyna
    að ná árangri fyrir það sem þeir standa fyrir. Annað væri ekki
    gott.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>