<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:45:01" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:47:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:45:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða yfirferð í
    ræðu sinni. Það er auðvitað þannig með þessi fyrstu tvö þingmál hvers
    þings, fjárlögin og bandorminn, að þau ræðast eðlilega í nokkru samhengi.
    Mig langar til að spyrja hv. þingmann, svona í ljósi fyrri starfa og
    djúprar þekkingar á menntamálum landsmanna á flestum stigum þeirra, svo ég
    tali nú varlega, hvernig hann sér fyrir sér þessa heildarmynd teiknast upp
    núna með tilliti til útgjaldahluta fjárlaganna, sem við erum búin að ræða
    að forminu til hér við 1. umræðu. Eins og ég segi þá eru þessi tvö mál svo
    nátengd að þau verða að skoðast heildstætt. Með hvaða hætti sér hv.
    þingmaður fyrir sér þessa mynd teiknast upp? Ég hef haft á tilfinningunni
    lengi, svona í ljósi þess og með vísan í PISA-kannanir að árangurinn hefur
    því miður ekki verið bærilegur í neinu samhengi um allnokkra hríð en
    kostnaðurinn við kerfið gríðarlega hár í alþjóðlegu samhengi, og hef verið
    þeirrar skoðunar, og vísa svo sem í menn sem þekkja það betur en ég,
    heilbrigðiskerfið okkar, að sum kerfi séu þannig að það sé alveg sama, það
    sé hægt að ausa endalaust peningum inn í þau án þess að árangur náist.
    Hvernig sýnist hv. þingmanni þessi heildarmynd teiknast upp með tilliti
    til menntakerfisins? Erum við að eyða nægilega mikilli orku í að gera
    kröfu um að fá meira fyrir peninginn okkar sem tryggir börnunum okkar og
    unglingum og ungu fólki betri menntun? Eða erum við á einhverri
    sjálfstýringu sem kann ekki góðri lukku að stýra og fer væntanlega á
    endanum verst með nemendur landsins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>