<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:47:09" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:49:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:47:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil bara fagna þessu andsvari hv. þm. Bergþórs
    Ólasonar því ég tel að það sé allt of lítið rætt um þessi mál hér á
    þinginu enda menntamál risastórt efnahagsmál. Það er talið að helmingur
    alls hagvaxtar í heiminum sé skapaður af menntun og Alþjóðabankinn segir
    að 9% árstekjuaukning komi við hvert gott ár í menntun þannig að þetta
    skiptir miklu máli. Lánakjörin okkar eru líka þannig að
    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur mið af því hvernig við stöndum í
    menntamálum, þannig að lánakjör okkar erlendis skipta máli þarna. Því
    miður held ég og hef á tilfinningunni, þrátt fyrir ákveðna jákvæða
    tilburði hæstv. menntamálaráðherra, að við séum enn á ákveðinni
    sjálfstýringu. Líka það að það þurfi alltaf að kosta meira til að ná
    árangri — ég slæ hendinni á móti því. Sjálfur hef ég verið í þessu kerfi
    og rekið stórar stofnanir sem hafa kostað mörg hundruð milljónir og
    árangur og kostnaður í kerfinu fer ekki endilega saman, alls ekki. Það er
    ýmislegt í stefnunni, í sýninni og í aðferðunum sem skiptir miklu meira
    máli. Ég veit það bara að skólar sem hafa skilað einna bestum árangri hvað
    alla þætti skólastarfs varðar, það breytir ekki máli hvort það er
    fjárhagur, líðan, námsárangur, starfsmannavelta eða annað, eru jafnframt
    ódýrustu skólar landsins þrátt fyrir að nemendahópurinn þar sé ekkert
    minna blandaður en annars staðar. Það eru nemendur þar af öllu tagi, þetta
    eru ekki einhverjir elítuskólar sem ég er að tala um hér heldur bara
    hefðbundnir skólar. Þannig að dæmin eru til sem sanna það sem hv.
    þingmaður var nú kannski aðeins að ýja að eða ræða um, að fjáraustur
    hjálpar ekki alltaf til. Það er ekki þannig. <ns:bjalla/> Við þurfum að
    hafa réttar undirstöður, rétta stefnu, rétta sýn og réttar aðferðir til að
    ná árangri. Það á við í öllu og ekki síst í skólakerfinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>