<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:49:33" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:50:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:49:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég á eftir að hlusta
    aftur á ræðu hv. þingmanns frá því í störfum þingsins fyrr í dag sem mér
    þótti prýðisgóð við fyrstu áheyrn og batnar örugglega við aðra. Þar var
    einmitt þetta atriði dregið fram varðandi kostnað annars vegar og árangur
    hins vegar. Hefur hv. þingmaður kenningar í þeim efnum? Er þetta
    mismunandi nálgun þeirra sem stýra skólanum, er það svigrúmið sem námskrá
    og kerfið býður upp á eða er þetta bara í rauninni stjórnendur og kennarar
    sem ná upp einhverri stemningu, svo við hugum að þessum tiltekna skóla sem
    hv. þingmaður nefndi í störfunum áðan? Hvað telur hv. þingmaður ráða því
    að það náist svona góður árangur í skóla sem er svona hagkvæmur í rekstri
    eins og þingmaðurinn lýsti?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>