<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:50:45" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 14:51:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:50:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir annað
    prýðisandsvar. Hann spyr ákveðinnar grundvallarspurningar sem ég man ekki
    eftir að hafa heyrt hér í þinginu og er þvílíkt ánægður með. Auðvitað eru
    ákveðnir ytri þættir sem skipta líka máli. Stærð skóla skiptir máli og
    fjöldi nemenda þannig að það sé hagkvæmt að reka skólann, að þú sért með
    ákveðinn fjölda kennara og það sé hægt að gera ýmsa hluti. Ef þú ert með
    nógu stóran skóla getur þú verið með alls konar valgreinar sem geta ýtt
    undir námsárangur. En að megninu til er þetta sú menning sem skapast í
    skólanum. Menn beri ábyrgð á sínu skólastarfi, menn reki þetta með sem
    bestum hætti, það séu allir, fólkið sem vinnur á göngunum, matráður,
    húsvörður, kennarar, stjórnendur, skólaliðar og stuðningsfulltrúar, að róa
    í sömu átt, þeir séu stoltir af sinni stofnun, séu með mikið sjálfstraust
    og séu hugrakkir. Það hljómar skringilega en það er svona sem ástríða
    myndast inni í kerfinu. <ns:bjalla/> Það er svona sem það næst árangur á
    öllum sviðum skólastarfsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>