<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T14:52:19" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:07:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T14:52:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við höldum hér áfram að ræða bandorminn á degi tvö í
    þessari umræðu. Umræðan kemur jú í beinu framhaldi af umræðu um fjárlögin
    þannig að það er æðimargt komið fram hér, jafnvel endurtekið, sem ég ætla
    kannski að reyna að skauta fram hjá í minni ræðu og horfa þá frekar til
    einhverra annarra þátta. Mig langar samt í upphafi ræðu minnar að nefna að
    ég ætla að styðja og við ætlum væntanlega öll í stjórnarandstöðu auðvitað
    að reyna að styðja þau markmið að ná fram hallalausum fjárlögum. Ég held
    að það skorti ekkert upp á vilja stjórnarandstöðunnar til þess. En við
    verðum auðvitað að vera kannski raunsæ í því hvort það verkefni sé e.t.v.
    of stórt. Við höfum séð birtingarmynd ákveðinna sviðsmynda frá
    ríkisstjórninni sem geta verið okkur hagfelldar en einnig líka mjög
    óhagfelldar og það er ljóst, alla vega í mínum huga, að ef svörtustu
    sviðsmyndirnar verða uppi þá held ég að við getum ekki notað orðalag eins
    og að tala um hallalaus fjárlög hvað sem það kostar. Ég held að það sé
    ekki raunsætt að við munum horfa þá á að ná fram hallalausum fjárlögum
    miðað við að dekkri sviðsmyndir verði uppi. Setjum okkur frekar raunhæf
    markmið í þeim efnum, eins og við hefðum í rauninni kannski betur getað
    hjálpast til við, ætla ég að leyfa mér að segja, á þessu
    kjörtímabili.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það var auðvitað augljóst að það voru nýir aðilar að taka hér við
    völdum. Það var nú ekki lítið gert úr því í upphafi þings. Þar var sú mynd
    af ríkisrekstrinum máluð upp að hann væri dálítið í kaldakoli.
    Ríkisstjórnarflokkarnir tóku sér m.a. pásu í viðræðunum um
    stjórnarmyndunina til að fara betur yfir efnahagsmálin, voru þá að mála
    dökka mynd. Því hefur verið að koma manni dálítið á óvart, svo ég segi nú
    ekki annað, að mér finnst fyrri hluta kjörtímabilsins ekki hafa verið
    nægilega vel varið hreinlega í að taka skynsamlega á málum. Það liggur
    fyrir núna og ég held að menn deili ekki um það að ríkisstjórnin tók við
    betra búi en hún hefur látið uppi. Við getum t.d. horft á þessar
    viðbótartekjur sem urðu til á undangengnum árum sem ekki var reiknað með.
    Þess vegna hlýt ég að minna ríkisstjórnarflokkana á að það hefði verið
    skynsamlegt að vera með hóflega væntingastjórnun á þeim tíma, horfa til
    stöðunnar eins og hún var, einbeita sér frekar að því að draga úr
    útgjöldum og alla vega ekki stuðla að nýjum útgjöldum eða frekari
    útgjöldum, það hefði verið lykilatriði, og reyna þá að nýta þennan
    tekjuauka til að skila jafnvel hallalausum fjárlögum eða alla vega
    lágmarka skaðann. Þetta segi ég af því að ríkisstjórnarflokkarnir hafa
    endurtekið í þessari umræðu dregið fram tölu sem er 866 milljarðar og
    varðar skuldasöfnun á síðastliðnum árum, þeir tilgreina reyndar ekki í
    þeirri umræðu að af þeirri upphæð eigi ríkisstjórnarflokkarnir 140
    milljarða. Þeir 140 milljarðar hafa sannarlega ekki hjálpað til við
    verkefnið eins og það blasir við okkur núna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að hrósa hv. formanni fjárlaganefndar, Sigurjóni
    Þórðarsyni, fyrir hans orðræðu, bæði hér í pontu varðandi raunhæfni
    þessara fjárlaga en líka bara ákveðið raunsæi sem mér finnst hann hafa
    sett fram og að viðurkenna að þetta verði erfitt og þetta verði mögulega
    sársaukafullt. Hann hefur biðlað, ætla ég að leyfa mér að segja, til
    stjórnarandstöðunnar um að koma með á þennan vagn og finnst mér hann því
    vera mjög ærlegur hvað það varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við horfum til þess hvernig ríkisstjórnin ætlar núna að loka
    þessu fjárlagagati þá á að gera það með sköttum og aðhaldi. Ég vil segja
    fyrir mitt leyti sem Sjálfstæðismaður að auðvitað hefði ég kosið að það
    yrði meiri áhersla á aðhald, sérstaklega vegna þess að mér fannst
    ríkisstjórnin fara vel af stað í upphafi þegar óskað var eftir tillögum um
    það hvernig mætti spara. Ég held að ríkisstjórnin hafi gert margt rétt
    hvað það varðar en við sjáum bara því miður ekki neinn afrakstur af þeirri
    vinnu, eða ég hef alla vega ekki séð hann og ég kalla í rauninni eftir að
    ríkisstjórnin sýni meira á þau spil. Ég hefði í rauninni eiginlega vænst
    þess að það yrði fókuserað meira á það í þessu frumvarpi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við horfum til tekjuöflunar og skattheimtu þá er ríkisstjórnin
    að leggja til hækkun á krónutölusköttum og gjöldum. Ég skil alveg að menn
    vilji að einhverju leyti halda í þær skatttekjur en ég held að það sé
    óklókt og það hefði verið skynsamlegra að horfa til verðbólgumarkmiða
    Seðlabankans í þeim efnum, alla vega ekki hafa gjaldið hærra en vænta
    verðbólgu komandi árs. Það hefði sent, alla vega að mínu viti, mjög skýr
    skilaboð. Ef við horfum t.d. á verðbólguvæntingar, ef við hefðum verið með
    2,5% markið, af því að þetta eru ekki slíkar upphæðir að skipti öllu, þá
    finnst mér óklókt hjá ríkisstjórninni að miða ekki við þetta. Enn þá
    skrýtnara hefur mér fundist, virðulegi forseti, þegar það er einhvern
    veginn dregið upp í umræðunni að þessi 5,2% séu mögulega einhvers konar
    útspil í því hvort kjarasamningum verði sagt upp eða ekki. Ég átta mig
    ekki alveg á með hvaða hætti t.d. forsætisráðherra sér þetta fyrir sér sem
    einhvers konar skiptimynt í þeim viðræðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við horfum á þessi gjöld þá eru þau auðvitað margvísleg. Við
    þurfum ekki kannski að telja þau upp en heildarupphæðin í þessu sambandi
    er um 10,5 milljarðar í viðbótartekjur og fjármálaráðuneytið hefur
    viðurkennt að þetta hafi í för með sér hækkun á vísitölu neysluverðs um
    0,28%. Því skiptir auðvitað máli að þessi tala hefði verið lægri og ég
    átta mig ekki á af hverju var ekki reynt að fara þá leið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sem landsbyggðarþingmaður hlýt ég að gera athugasemdir við
    kílómetragjaldið og vil bara benda enn og aftur á að þetta mun koma niður
    á landsbyggðinni. Við vitum að almennt keyrir fólk lengri vegalengdir á
    landsbyggðinni. Það er lengra að sækja vinnu, lengra að sækja þjónustu.
    Margt fólk úti á landi þarf að sækja heilbrigðisþjónustu hingað til
    höfuðborgarinnar og þarf að keyra um langan veg jafnvel. Þetta hefur
    auðvitað áhrif. Þetta hefur líka áhrif á fyrirtækin úti á landi með því að
    auka kostnað þeirra. Þar vil ég kannski horfa sérstaklega á landbúnað,
    sjávarútveg, og í Norðvesturkjördæmi iðnað, því að auðvitað er ekki hægt
    að reka þessi fyrirtæki án þess að það séu flutningar og Vestfirðir eru
    gott dæmi einmitt um stað sem er mjög háður samgöngum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég velti líka fyrir mér, virðulegi forseti, hækkuninni á
    tekjuskattinum. Mér fyrirgefst það kannski þótt ég hafi grunað að
    einhverju leyti ríkisstjórnina um græsku því að ég upplifi eins og það sé
    verið að fela þetta í einhvers konar tæknilegu orðalagi, með að breyta
    þessum framleiðniviðmiðum. Ég held að það hafi kannski ekki alveg verið
    hugsað til enda því að þetta kemur auðvitað niður á öllum tekjutíundum.
    Þess vegna er augljóst að þetta mun snerta mest þá sem hafa lægstu launin
    og að í rauninni nýtist persónuafsláttur þar hvað best og því mikilvægt að
    skattþrepin séu hærri. Ég vil bara segja að ég átta mig ekki á því af
    hverju er verið að gera þetta með þessum hætti, hvort það hefði ekki verið
    skynsamlegra að horfa öðruvísi á þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einnig vil ég nefna barnabæturnar af því að ríkisstjórnin hefur jú
    talað að mínu mati um að það eigi að rétta hlut barnafjölskyldna og þá er
    óvænt að sjá þessa tölu standa í stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einnig vil ég nefna endurgreiðsluhlutfallið á virðisaukaskatti, að
    lækka það úr 35% niður í 20%. Nú er auðvitað byggingargeirinn að ákveðnu
    leyti í ákveðinni krísu. Það er mikið af óseldum íbúðum og það er kannski
    líka mikið af byggðum íbúðum sem henta kannski ekkert endilega þeim hóp
    sem mikilvægast er að koma sér þaki yfir höfuðið og það eru þá minni
    íbúðir fyrir yngra fólk og fyrstu kaupendur þó að ég viti að ríkisstjórnin
    hafi verið að stíga einhver skref í þá átt að fjölga fyrstu
    kaupendum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að nefna líka jöfnunargjaldið vegna dreifingar á
    raforku. Það er að hækka og raforkueftirlitsgjöldin líka. Ég vil bara
    minna á það, þó að auðvitað sé jöfnunargjald notað svo sem kannski til
    þess að styrkja landsbyggðina, að það skiptir máli að þessar breytingar
    verði með þeim hætti að það vinni ekki gegn því markmiði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig líka að nefna hér að lokum, virðulegur forseti,
    bankaskattinn. Ég átta mig ekki á af hverju við erum eiginlega að reyna að
    fara þá vegferð að nýju. Við vitum að það verða sóttir þarna 6 milljarðar
    með þessari hækkun en ég held að það sé algerlega augljóst hvert sá
    reikningur fer. Hann fer auðvitað á skuldsett fyrirtæki og heimili og fer
    ekkert annað. Auðvitað geta menn kallað eftir einhvers konar þjóðarsátt en
    þjóðarsáttin hlýtur þá að fela í sér að allir hlutaðeigandi haldi aftur af
    sér, þar með talið ríkið. Það er ekki trúverðugt þegar ríkið hendir inn í
    umræðuna að ætla sér að vera með verulega hækkun á sköttum og gjöldum en
    ætlast til þess að allir aðrir dragi úr eða reyni að halda sig á mottunni
    í þeim efnum. Ég ætti nú kannski ekki að ætla ríkisstjórninni einhvern
    illan hug en maður hefur á tilfinningunni að það sé verið að velja úr þá
    aðila sem mögulega njóta svona kannski — menn kveljast ekkert yfir því að
    vera að pína þessa aðila og þar nefni ég þessa ljótu banka og vondu.
    Síðast voru það veiðigjöldin, þá var það stórútgerðin, þessar örfáu
    fjölskyldur sem þar voru undir og þetta finnst mér bera aðeins keim af því
    líka. Sama vil ég segja með orðræðuna um baðlónin. Mér er algerlega
    fyrirmunað að sjá það sem einhvers konar lúxus og þá hafa menn tiltekið í
    umræðunni aðallega Sky lagoon og Bláa lónið en látið hjá líða að nefna
    staði úti á landi sem eru burðarásar jafnvel í atvinnulífi á þeim stöðum.
    Það er mikilvægt að þeir aðilar fari ekki „fallit“ í þessari skattheimtu
    því þetta er viðkvæmt umhverfi og við þekkjum það ágætlega að þegar
    skattar hækka þá bregðast aðilar yfirleitt við, bæði þeir sem eru
    skattlagðir og afleidd starfsemi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég fagna því að ríkisstjórnin ætli að stefna
    hér á hallalaus fjárlög. Ég vona sannarlega að okkur gangi vel í þeirri
    baráttu. Ég ætla samt að hafa uppi varnaðarorð gagnvart ríkisstjórninni um
    að ef dekkri sviðsmyndirnar verða uppi fari menn ekki í hallalaus fjárlög
    hvað sem það kostar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>