<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:07:41" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:09:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:07:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á að þakka þingmanninum fyrir
    fína ræðu. Hann veltir upp alls konar hlutum í ræðu sinni sem mig langar
    að reyna að bregðast við. Hann nefnir að ríkisstjórnin hafi mögulega vitað
    stöðuna á efnahagsmálum og ríkisfjármálunum áður en hún tók við. Ég veit
    það svo sem ekki alveg en ég held ekki. Nú sit ég í fjárlaganefnd og eitt
    af því sem við vorum að fást við síðasta haust var að við vorum t.d. með
    læknasamninga sem voru ófjármagnaðir og það náttúrlega vissi enginn. Opnað
    var meðferðarheimili með pomp og prakt í Mosfellsbæ og það stóðst engar
    vottanir og engin próf og að sjálfsögðu var ekki hægt að opna. Það voru
    alls konar svona hlutir sem menn voru að reka sig á. Svo var það líka
    þannig að við gerðum upp ÍL-sjóð þar sem við vorum að borga fyrir rándýr
    kosningaloforð Framsóknarflokksins, sem voru reyndar studd af öðrum
    flokkum líka. Það voru alls konar mál sem komu upp og stóri lærdómurinn er
    auðvitað sá að þessi gríðarlega mikli halli sem er uppsafnaður eftir
    jarðhræringarnar og eftir heimsfaraldurinn sýnir að það er ekki
    skynsamlegt að taka lán fyrir svona gríðarlega miklum ríkisútgjöldum. Það
    er nokkuð sem við þurfum að læra saman af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar samt að bregðast við varðandi kílómetragjaldið. Hv.
    þingmaður nefnir að það komi verr niður á landsbyggðinni. Mig langar að
    benda honum á greiningu sem við létum gera í efnahags- og viðskiptanefnd í
    fyrra þegar við vorum að ræða kílómetragjaldið. Þar kom í ljós að þetta
    kemur betur út fyrir íbúa á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu af því
    að íbúar á landsbyggðinni keyra að meðaltali minna þar sem vegalengdir eru
    styttri. Það er auðvitað lengra að fara þegar þeir sækja sér
    heilbrigðisþjónustu, eins og hv. þingmaður nefnir réttilega, en það er
    bara svo sjaldan. Þegar horft er yfir árs tímabil keyra íbúar á
    landsbyggðinni þannig minna. Þetta kom mér dálítið á óvart en íbúar
    höfuðborgarinnar keyra meira, sérstaklega þeir sem eru í Kraganum, þeir
    keyra allra mest.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>