<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:09:59" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:12:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:09:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir
    andsvarið. Fyrst varðandi ÍL-sjóð, ég held það hafi verið skynsamlegt að
    klára það mál. Það var augljóst að það mál hefði getað orðið enn verra
    fyrir ríkissjóð, þannig að ég kvarta ekki undan því að gengið hafi verið
    frá því. Það sem ég er aðallega að vísa til er það sem ég tel að
    ríkisstjórnin hefði getað gert með öðrum hætti. Það var gríðarlegur
    velvilji til ríkisstjórnarinnar í upphafi kjörtímabilsins og ég held að
    það hefði eiginlega verið nákvæmlega sama hvað ríkisstjórnin hefði boðið
    almenningi upp á, hún hefði getað glansað í gegnum það. Þess vegna vil ég
    meina að fyrstu tvö árin hafi verið dálítið glötuð tækifæri hvað það
    varðar að vera með betri væntingastjórnun og horfa til stöðunnar eins og
    hún var. Ég upplifi þessi tvö ár sem eru liðin eins og það hafi ekki verið
    upptaktur að núverandi stöðu heldur séum við í rauninni að henda núverandi
    stöðu inn í umræðuna. Ég verð að segja að mér finnst stjórnarliðar
    hreinlega ekki hafa trú á að við munum ná hér hallalausri niðurstöðu og
    það er auðvitað miður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér þykir gaman að heyra að svona heilt yfir keyri íbúar meira á
    höfuðborgarsvæðinu. Það eru fréttir fyrir mig en ég beygi mig undir það ef
    það er niðurstaðan. Ég hefði hins vegar gert ráð fyrir því fyrir fram að
    það færi eftir því hvernig við skilgreinum „úti á landi“. Ef við
    skilgreinum stórhöfuðborgarsvæðið þá held ég að þetta gæti einmitt passað
    og ef við erum með Hvítár-Hvítársvæðið þá væru menn að keyra töluvert
    meira. En ég hefði haldið að t.d. þar sem eru stórir íbúðarkjarnar og
    mikið dreifbýli í kring sé töluvert mikil keyrsla til
    þéttbýlisstaða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>