<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:12:24" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:14:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:12:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil nú þakka honum fyrir andsvarið. Það er
    rétt sem hann nefnir. Íbúar á Selfossi, Akranesi og Reykjanesbæ koma verst
    út úr þessum samanburði. En það voru íbúar á Vestfjörðum og Norðurlandi
    eystra sem komu best út. Mér fannst þetta áhugavert því það var alltaf
    talað um að þetta væri landsbyggðarskattur og þetta setti þetta alla vega
    í nýtt ljós hvað mig varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann. Ég veit að hann er
    ábyrgðarfullur og þráir jafn mikið og við að ná tökum á ríkisfjármálunum.
    Mig langar að spyrja hann út í þessa leið sem ríkisstjórnin er að fara,
    þessa blönduðu leið af hagræðingu upp á 44 milljarða og svo nýjum
    tekjuráðstöfunum upp á 27,3 milljarða. Hann talaði um að verið væri að
    leita í vasa þeirra sem væru óvinsælastir. Ég held að ég geti sagt að það
    sé ekki svo, það er auðvitað bara verið að horfa á arðsemi þessara
    fyrirtækja og það er verið að horfa í það hverjir geti lagt meira af
    mörkum til samfélagsins. Við eigum þetta samfélag saman og það er kannski
    eðlilegt fyrir okkur jafnaðarmenn að leita til þeirra sem hafa getu til að
    bera þyngri byrðar. Mig langar að fá hans viðhorf — það eru 44 milljarðar
    í hagræðingu og svo 27,3 í nýjar tekjuráðstafanir. Svo erum við líka með
    nýja atvinnustefnu þar sem við erum auðvitað að reyna að ýta undir
    verðmætasköpun. Ég held að það sé líka lykilhlutverk í því að ná hér tökum
    á ríkisfjármálunum að gefa svona „boost“ inn í atvinnulífið — hvort hann
    sé ekki sammála þessu, að það verði að fara þessa blönduðu leið, með
    hagræðingu, nýjum tekjuráðstöfunum og svo ýta undir verðmætasköpun eins og
    birtist í nýrri atvinnustefnu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>