<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:14:16" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:16:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:14:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir gott
    andsvar. Hún er auðvitað að leggja fyrir mig gildru. Ég mun að sjálfsögðu
    aldrei samþykkja að það sé góð leið að hækka skatta og vil hreinlega segja
    að, hvort heldur um er að ræða bankaskattana eða hækkun á
    virðisaukaskattsþrepi gagnvart baðlónum, ég held að hvorug þeirra
    ráðstafana sé góð ráðstöfun. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það
    skipti miklu máli að við reynum að ýta undir verðmætasköpun eins mikið og
    við mögulega getum og það á auðvitað að vera leiðin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka benda á að til að grynnka á skuldum er það auðvitað
    þannig að við eigum töluvert af eignum og ríkið er að vasast í ýmsu sem
    ríkið þarf ekkert endilega að vera að vasast í. Ég held að það sé hollt
    fyrir okkur á hverjum tíma að alltaf þegar við erum að taka upp ný útgjöld
    hjá ríkinu þá eigum við að byrja á því að hugsa: Er ekki hægt að spara
    fyrir þessu einhvers staðar annars staðar? Við eigum að reyna að horfa til
    þess að byrja alltaf á að spara inn á við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig að nefna, af því að mér finnst það vera algengur
    misskilningur hjá stjórnarliðum, að það að fresta framkvæmdum eða seinka
    verkefnum er í raun ekki sparnaður. Þetta eru fjármunir sem við munum
    þurfa að reiða af hendi þannig að það er í sjálfu sér ekki sparnaður. Við
    erum í raun bara að seinka framkvæmdum og það er alls ekki það
    sama.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>