<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:16:33" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:18:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:16:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir prýðisgóða
    ræðu hér áðan. Hann kom nokkuð víða við eins og venja er í svona viðamiklu
    frumvarpi eins og hér liggur fyrir. Hann kom aðeins inn á
    krónutöluhækkanirnar, kílómetraskattinn, bankaskattinn og fleiri skatta
    sem á að hækka samkvæmt þessu frumvarpi. Ég er sammála þingmanninum, og ég
    ætla ekki að leggja fyrir hann gildru, bara þannig að það sé sagt, þegar
    hann sagði í andsvari við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur að það sé ekki góð
    leið að hækka skatta. Ég er fullkomlega sammála því. Ég held að við séum
    líka sammála um það að hallalaus fjárlög eru að sjálfsögðu gott markmið,
    mjög gott markmið. Það er hins vegar ekki sama hvaða leið er farin að því
    að ná hallalausum fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi ríkisstjórn ætlar að hækka skatta hér mjög skarpt að mínu
    viti, skatta og gjöld á hinn venjulega borgara í landinu. Skattar verða
    hækkaðir á allt vinnandi fólk. Við skulum hafa það á tæru. Mig langar að
    spyrja þingmanninn hvort ekki væri eðlilegra að ríkið tæki fyrst til í
    eigin ranni, gengi miklu harðar fram í eigin rekstri, fækki verkefnum,
    minnki yfirbyggingu, sameini enn frekar stofnanir og forgangsraði
    fjármunum betur, standi eðlilega vörð um alla grunnþjónustu. Það er líka
    alltaf verið að tala um Covid. Ég hef t.d. grun um að <ns:bjalla/>
    ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað mjög í kjölfar Covid. <ns:bjalla/> Væri þá
    ekki bara fínt að byrja á því að setja fjölda ríkisstarfsmanna á sama stað
    og hann var fyrir Covid?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>