<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:19:04" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:21:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:19:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir gott
    andsvar. Jú, ég held að þegar Covid-faraldurinn geisaði og það var ákveðið
    að nýta opinbert fé til þess að breyta stöðunni í samfélaginu, veita
    verulegan stuðning í ákveðnar atvinnugreinar sem voru við það að leggjast
    af hafi ríkið og sveitarfélögin eða hið opinbera almennt aukið
    útgjaldastigið hjá sér. Það var augljóst. Verkefnið síðan þegar Covid
    rénar er að ná útgjaldalínunni aftur niður á sama stað og helst jafnvel
    neðar en áður. Ég vil meina að það hafi reynst mörgum erfitt og þess vegna
    séum við í rauninni að horfa rekstrarlega á að grunnlínan hreinlega
    færðist. Mörkin hækkuðu og þess vegna búum við kannski við það að það sé
    hreinlega orðið erfiðara að finna út hvernig staðan var fyrir Covid og það
    hafi kannski orðið til þess að við höfum haldið þessu háa útgjaldastigi
    svona lengi. En það eru auðvitað alltaf tækifæri þegar nýir aðilar koma
    til og ég held að við eigum auðvitað að horfa alltaf með þeim augum á
    hlutina, að þegar það koma ný útgjöld þá byrjum við á að spyrja: Er þá
    eitthvað annað sem við getum lagt til hliðar og hætt að gera, þ.e. ef við
    erum að halda uppi málefnum ríkisins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>