<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:21:27" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:23:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:21:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir prýðisgóð
    svör. Mig langar í seinna andsvari aðeins að ræða við hann varðandi
    skynsamlegt innlegg varaseðlabankastjóra peningastefnu Seðlabanka Íslands
    sem mætti á fund hjá Félagi atvinnurekenda fyrir nokkrum dögum. Þar sagði
    hann, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2026/09/14/langvarandi_osidur_hins_opinbera/-->

    <ns:mgr>„Sjálfvirk verðtrygging eins og notuð er í fjárlagafrumvarpinu
    varðandi krónutölugjöld og -skatta hins opinbera er langvarandi ósiður og
    mikilvægt verkefni að reyna að leggja slíkt af.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held áfram, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Ég heyri það til dæmis bara á mínum samtölum við rekstraraðila í
    smásöluverslun að þegar þeir heyra þetta verða þeirra samtöl við birgja
    til dæmis ansi erfið. Menn segja: Ríkið er að hækka um 5,2 — af hverju
    ættum við þá að hækka um 2,5? Þannig að ég er að þessu leyti alveg
    sammála, þetta er eitthvað sem mætti gjarnan endurskoða.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta segir varaseðlabankastjóri peningastefnu Seðlabanka Íslands.
    Mig langar að spyrja þingmanninn, vegna þess að hann kom aðeins inn á það
    í sinni ræðu hér áðan með þessa 5,2% krónutöluhækkun, að forsætisráðherra
    hafi gefið það til kynna að þetta gæti mögulega verið eitthvert útspil í
    kjaraviðræðum: Finnst þingmanninum það ekki furðulegt útspil að það sé
    verið að tengja þetta því sem fram kemur, bæði í fjárlögum og í þessum
    bandormi, um 5,2% krónutöluhækkun að lágmarki?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>