<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:23:57" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:26:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:23:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir
    gott andsvar. Nú heyrði ég ekki hvað varaseðlabankastjóri sagði en ég
    heyrði hvað hv. þingmaður sagði og ég ætla að taka undir með það að það er
    langvarandi ósiður að verðtryggja alla hluti. Ég held að það sé allt of
    víðtækt í okkar samfélagi að það sé verið að verðtryggja hluti. Það er
    kannski ástæðan fyrir því að of stórum hluta þjóðarinnar finnst hann vera
    eiginlega hlutlaus gagnvart þeim þætti. Ég er sjálfur að reka lyfjabúðir.
    Það er nú reyndar þannig hjá okkur að við erum að selja töluvert af öðru
    en lyfjum, sem ríkið ákveður reyndar alla álagningu á, en þar er auðvitað
    freistingin sú, eins og í öðru, að þegar birgjar hækka freistist maður til
    að setja hluta af þeirri hækkun eða jafnvel alla hækkunina á
    viðskiptavininn. Við búum reyndar við það í lyfjageiranum að þar er
    einhver samkeppni og á einhverjum stöðum töluverð samkeppni þannig að það
    ætti í rauninni að tryggja að menn leiti allra leiða til að velta ekki
    öllum kostnaðarauka út til viðskiptavinanna. En þú getur ekki gengið út
    frá því sem vísu að það sé hægt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi þessi 5,2% þá átta ég mig ekki alveg á því af hverju við
    erum komin í þá stöðu gagnvart forsætisráðherra eða að þetta sé talið sem
    einhvers konar útspil í kjarasamningum. Mér finnst það enn furðulegra
    þegar horft er til þess, ég gat ekki heyrt annað, að hún væri ekki í
    samtali við Vilhjálm Birgisson á Akranesi og Sólveigu Önnu Jónsdóttur.
    <ns:bjalla/> Það eru nú aðilarnir sem fara m.a. með það umboð þannig að ég
    skil ekki alveg hvernig hæstv. forsætisráðherra er að hugsa
    þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>