<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:26:24" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:38:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:26:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við erum hérna að ræða frumvarp til laga um breytingu
    á ýmsum lögum vegna fjárlaga, bandorminn. Hér er verið að gera
    margvíslegar breytingar á sköttum og gjöldum og óhjákvæmilegt að setja
    þetta í heildarsamhengi við tilraun hæstv. ríkisstjórnar til þess að senda
    ákveðin skilaboð hér með nýjum fjárlögum, hallalausum fjárlögum sem voru
    margboðuð, þar sem öllum er löngu orðið ljóst að til þess að endurheimta
    trúverðugleika ríkisvaldsins á sviði efnahagsmála er löngu tímabært að
    breyta um nálgun í fjárlögum og fara, eins og kostur er, að skila
    ríkissjóði með afgangi eins og hér er stefnt að, um einhverja 5 milljarða
    í þessu fyrsta uppkasti. Það er auðvitað, þannig að það sé tekið fram
    hérna í upphafi, ekkert annað en grundvallarábyrgð ríkisstjórnarinnar á
    þessum tímapunkti þegar við erum í töluvert annarri stöðu en verið hefur á
    síðustu árum sem hafa einkennst af miklum sveiflum í efnahagslífinu og
    áföllum. Nú er slíku ekki til að heilsa strangt til tekið. Þótt ýmsar
    blikur séu sannarlega á lofti og ýmsar þær breytur sem eru hvað
    breytilegastar frá ári til árs fari auðvitað upp og niður erum við engu að
    síður í stöðu núna þar sem engin slík meiri háttar stóráföll blasa við svo
    að það réttlæti að unnt sé að halda áfram rekstri ríkissjóðs með halla
    eins og verið hefur. Það er kannski forsendan, pólitíska forsendan fyrir
    þessari vinnu ríkisstjórnarinnar núna, að það eigi að fara inn í þessa
    fjárlagavinnu með þetta markmið og við þessar forsendur og nota tækifærið
    til þess, eins og sagt er og sagt hefur verið, að endurheimta
    trúverðugleika ríkisvaldsins á þessu sviði. Ábyrgð ríkisvaldsins, sem er
    að sýsla hér með milljarða, þúsundir milljarða, er stór leikandi í
    efnahagslífinu. Ábyrgð ríkisvaldsins á verðbólgunni er töluverð og ef
    mönnum er alvara með að þoka þessu í rétta átt, þoka verðbólguþróuninni í
    rétta átt, sem hefur alls ekki farið í þá átt sem ríkisstjórnin boðaði hér
    fyrir kosningar eða í raun og veru lofaði með ýmsum tiltækum ráðum að
    ráðast að með sleggjum, ef mönnum er raunverulega alvara þá er auðvitað
    lag að gera það núna með þessum fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefur hins vegar borið á margvíslegum athugasemdum úr mjög
    fjölbreyttum áttum, ekki aðeins úr seinni átt, ekki aðeins frá
    atvinnurekendum, ekki aðeins frá launþegahreyfingu, ekki aðeins frá alls
    konar hagsmunasamtökum í samfélaginu, ekki aðeins úr einni átt heldur úr
    mörgum áttum og jafnvel úr öllum áttum hefur borið á töluverðri óánægju
    með fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp, nálgunina, að þarna sé farið í
    augljóslega mjög tæpan afgang eins og bent hefur verið á. Þetta eru 5
    milljarðar og má ekki miklu muna til þess að þetta falli og þetta markmið
    náist ekki. Það eru bara fáar breytur sem þurfa að hnikast til eftir ýmsum
    leiðum til þess að þetta í raun og veru gangi ekki upp lengur sem skyldi.
    Þetta finnur markaðurinn greinilega og menn hafa bent á að strax eftir að
    þetta kemur fram taka skuldabréfamarkaðir við sér með þeim hætti að það
    gefur til kynna að verðbólguvæntingar fari ekki skánandi eftir
    framlagningu frumvarpsins eins og menn hefðu auðvitað viljað, áhrif sem
    menn hefðu sannarlega viljað ná fram með framlagningu svona frumvarps.
    Hlutur af því er augljóslega það sem er undir hér í þessu frumvarpi, sem
    er hækkunin á gjaldskrám á línuna á flestum sviðum þar sem það er í raun
    og veru spurning, um 5,2%, í samræmi þá við vænta verðbólgu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað gömul saga og ný og ekki sanngjarnt að láta eins
    og þetta hafi aldrei verið gert áður. En það hefur þá verið við aðrar
    kringumstæður og ekki þær kringumstæður að allir horfi nú til
    ríkisvaldsins um það hvernig það ætli að axla sína ábyrgð á efnahagsmálum.
    Við erum með sérstakar kringumstæður núna þar sem sérstaklega hefur verið
    horft á þennan þátt, þar sem Seðlabankinn hefur sérstaklega varað við
    einmitt þessum þætti og óskað eftir því eða lagt fram sín sjónarmið, sín
    málefnalegu sjónarmið sem eru nú ekki gripin úr lausu lofti heldur eru
    afrakstur athugana sérfræðinga þar, um að gjaldskrárhækkanir séu drífandi
    þáttur í verðbólgunni eins og hún hefur verið. Auðvitað eru ýmsir ytri
    þættir og við höfum síst stjórn á þeim en við horfum auðvitað á þá sem við
    höfum stjórn á og ef við hegðum okkur ekki eftir réttri forskrift á því
    sviði er trúverðugleiki ríkisvaldsins ekki nægur. Þórarinn G. Pétursson,
    sem er varaseðlabankastjóri peningastefnu, talar t.d. um þennan þátt á
    vettvangi hagsmunasamtaka atvinnurekenda, þ.e. hjá Félagi atvinnurekenda,
    að þessi sjálfvirka vísitölutenging sé, eins og hann orðar það,
    langvarandi ósiður í íslenskum ríkisfjármálum. Þetta þurfi ekki að vera
    svona en ríkisvaldið og ríkisstjórnin haldi áfram uppteknum hætti núna.
    Þannig að það er ekki aðeins þetta heldur í raun og veru aðrar forsendur í
    víðari skilningi þessara fjárlaga, eins og maður hefur núna verið að
    glöggva sig á eftir að maður sá frétt þess efnis í morgun frá
    verðbréfafyrirtækinu ACRO, að þeir telji, ekki aðeins alveg óháð þessum
    gjaldskrárhækkunum sem menn hafa auðvitað gert alvarlega athugasemd við,
    að forsendur frumvarpsins séu nokkuð bjartsýnar, þ.e. að þessi afkomubati
    um 72 milljarða kr., eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, velti þá á því að
    það verði verulegur tekjuvöxtur vegna aukinna efnahagsumsvifa eða þá
    einhvern veginn að hagkerfið sé að koma til baka eftir skell en að þessu
    sé ekki til að dreifa nú.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forsendur alls frumvarpsins eru vægast sagt mjög bjartsýnar, eins
    og menn benda á í þessari umræðu, og þá er auðvitað enn frekar spurning
    hvert ríkisvaldið stefnir með þessu. Í sambandi við gjaldskrárhækkanirnar
    er vert að nefna það að menn fara fram með 5,2% hækkun í þessu frumvarpi
    til fjárlaga, vitandi hvaða viðbrögð það mun augljóslega fá vegna þess að
    menn úti í samfélaginu, eins og margoft hefur komið fram, eru að horfa til
    þess hvernig ríkið fer fram, hvernig ríkisvaldið fer fram gagnvart sínum
    gjaldskrárhækkunum, og hugsa: Ja, þá getur maður auðvitað gengið jafn
    langt. Það er auðvitað táknræn þýðing þessarar ákvörðunar. Þetta er ekki
    endilega spurning um þessa 3 eða 4 milljarða sem skeikar þarna á milli
    þess að fara í þessa gjaldskrárhækkun upp á 5,2% eður ei. Þetta er líka
    spurning um táknræna þýðingu þessara skilaboða og hvernig aðrir aðilar
    markaðarins lesa í þau og ákveða að haga sínum málum í samræmi við
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er í ofanálag farið fram með þeim hætti að fljótlega eftir
    að þetta kemur fram er strax farið að gefa í skyn að það sé alls ekki
    gefið að þetta verði endilega endanleg niðurstaða. Í samræðum við aðila
    vinnumarkaðarins hefur hæstv. forsætisráðherra gefið svolítið oft til
    kynna að hún hafi ekki áhuga á að ríkisvaldið hafi sambærilega eða
    nákvæmlega sömu aðkomu og verið hefur að kjarasamningum en er samt farin
    að gefa það í skyn, strax eftir framlagningu fjárlaga, að það sé nú alveg
    eins líklegt að þetta verði tekið til endurskoðunar. En þá er samt skaðinn
    skeður. Þá er samt skaðinn skeður sem menn hafa varað við gagnvart
    verðbólguvæntingum, gagnvart trúverðugleika ríkisvaldsins til að
    raunverulega ná stjórn á verðbólgunni og ríkisútgjöldunum og auðvitað
    sínum þætti í verðhækkunum með gjaldskrárhækkunum, þá er samt
    trúverðugleikinn farinn. Þetta er ekki góð aðferðafræði, virðulegur
    forseti, að mínu mati og það eru svona breiðu strokurnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo er hægt að nefna ýmislegt í þessu og m.a. hefur ekki farið
    mikið fyrir því í umræðunni — jú, auðvitað hefur verið bent á til að mynda
    tekjuskattinn, að með því að hækka ekki þrepin sé á vissan hátt verið að
    hækka þann skatt miðað við að verðbólgan sé eins og hún er en að
    tekjuskattsþrepin þróist ekki í samræmi við það. Annað sem var til umræðu
    hérna síðast er samsköttunin, afnám samsköttunar sem kemur til áhrifa núna
    á næsta ári, 2027, um einhverja 3 milljarða. Þar á að skattleggja hjón sem
    hafa ójafnar tekjur með töluvert öðrum hætti en verið hefur í stað þess að
    leyfa mönnum að nýta persónuafsláttinn eftir því hvor aðilinn inni á
    heimilinu er með hærri tekjur og færa persónuafslátt þar á milli. Nú er
    stefnt að því, og það er auðvitað búið að taka gildi núna, að árið 2027
    verði farið í vasa þessara fjölskyldna. Ég hef bent á að þetta er oft t.d.
    fólk sem er á barneignaraldri með ójafnar tekjur af ýmsum ástæðum, vegna
    þess að menn eru að falla á milli skips og bryggju í fæðingarorlofstöku.
    Þarna er verið að skattleggja t.d. þannig fjölskyldu um jafnvel
    300.000–400.000 aukalega á einu ári. Það að standa með fjölskyldum myndi
    ég nú ekki segja að felist í raun og veru í því að ganga svona langt í
    þessari breytingu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta minnir okkur m.a. á hversu varanlegar svona breytingar eru
    og hvernig þær festast í sessi. Þegar svona gjöld hækka eru þau til umræðu
    um skamma hríð en svo áður en við vitum af eru þau orðin hluti af
    síaukinni skatttekju stjórnvalda á flestum sviðum á meðan stjórnvöld sýna
    ekki að þau geti náð stjórn á sinni eigin buddu. Þar er auðvitað af ýmsu
    að taka og gífurleg útgjöld sem við erum að glíma við og eins og menn hafa
    bent á hvað varðar aðhaldið sem er undir hér þá er góður hluti þess
    augljóslega bara frestun á aðgerðum og öðru eins en það er ekki verið að
    fara í saumana eða ofan í kjölinn á hinum stóru póstum ríkisvaldsins,
    opinbera kerfinu í víðari skilningi, stjórnsýslunni sem hefur vaxið hraðar
    en almenni markaðurinn að undanförnu. Það er áhyggjuefni sem er ekki verið
    að taka á en ekki hikað við að fara í skattahækkanir og
    gjaldskrárhækkanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að því sögðu býst ég nú við að það verði lífleg umræða um þetta og
    áfram hér í vetur um ýmsa þætti þessa. Ég segi að lokum að niðurstaðan er
    auðvitað ákveðin vonbrigði, að menn skuli ekki hafa gætt betur að þessum
    þætti, sérstaklega með gjaldskrárhækkanirnar sem eru þáttur sem vitað var
    að horft væri sérstaklega til en ákveðið var að fara í þessa átt. Ég get
    ekki alveg gert upp við mig hvers vegna það var gert í stað þess að ganga
    á undan með góðu fordæmi og vera með raunverulegt framlag inn í þessa
    umræðu um sjálfbærar framtíðarhorfur þegar kemur að aðkomu ríkisvaldsins
    að verðbólgunni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>