<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:40:13" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 15:55:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:40:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla að ræða hér um þennan svokallaða
    bandorm, en hann gengur út á það að gera ýmsar breytingar á fjárlögum
    fyrir árið 2027. Oft eru þetta ýmsar lagfæringar og skattahækkanir, við
    höfum vanist því í gegnum árin, en að þessu sinni ber það hæst með þetta
    fjárlagafrumvarp og þennan bandorm að núverandi ríkisstjórn hyggst reka
    ríkissjóð á næsta ári, 2027, með afgangi. Lítum aðeins á það, frú forseti,
    hvernig þetta hefur gengið undanfarin ár. Við skulum aðeins fara yfir það.
    Fjárlög 2024, ef við förum nokkur ár aftur í tímann, gerðu t.d. ráð fyrir
    46 milljarða halla. Raunveruleikinn var reyndar sá að hallinn var 70
    milljarðar, þ.e. 24 milljörðum meiri en frumvarpið gerði ráð fyrir. Árið
    2025 var gert ráð fyrir 41 milljarða halla. Raunin var sú að það var 67
    milljarða halli. Þarna skeikaði 26 milljörðum. Árið 2026, fyrsta heila
    starfsár núverandi ríkisstjórnar, var gert ráð fyrir 15 milljarða halla.
    Áætlanir gera ráð fyrir núna í haust að þessi halli verði nær því að vera
    68 milljarðar, þ.e. 53 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í
    fjárlagafrumvarpi fyrir það ár. Nú gera áætlanir og ríkisstjórnin ráð
    fyrir að það verði 5 milljarða kr. halli. Miðað við forsendur og
    greiningar, t.d. greiningar ACRO sem gefur sig út fyrir að greina fram í
    tímann, er gert ráð fyrir að þetta muni ekki standa heldur að ýmsar
    forsendur séu þannig að þessi halli verði meiri en ríkisstjórnin gerir ráð
    fyrir, þ.e. að hallinn verði 43 milljarðar. Er það mikið eða lítið? Það er
    minna en áætlað er á þessu ári. Það er minna en á þessu ári. Niðurstaðan
    er sú að mér þykir gæta mikillar bjartsýni í þessu frumvarpi. Menn gera
    ráð fyrir, alveg eins og í fyrra, að hlutirnir gangi mun betur og
    skattahækkanir og efnahagsástandið sé og verði með miklu betri hætti
    heldur en raunin er og allar líkur benda til að verði. Þannig að menn eru
    bjartsýnir. Það er góður eiginleiki að vera bjartsýnn en ég tel hann ekki
    eiga við þegar menn eru að áætla fram í tímann heldur verða menn að hafa
    raunsæja, eðlilega fyrirvara á slíkum áætlunum. Það þýðir ekki að ganga
    bara með bjartsýnina eina að vopni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forsendur fyrir því að þetta muni breytast svona á næsta ári,
    hverjar eru þær að mati ACRO? Þær eru að áhrif vegna kjarasamninga á
    almennum vinnumarkaði muni breyta þessu um 3 milljarða til lækkunar, þ.e.
    að þessi viðsnúningur muni hverfa strax bara vegna kjarasamninga sem fram
    undan eru. Þeir telja að veltuskattar muni skila sér mun verr en
    ríkisstjórnin gerir ráð fyrir og meta það sem 5 milljarða. Er það varlegt?
    Já, ég held að það sé mjög varlegt vegna þess að skattar eru nú þeim
    annmörkum háðir að ef þú skattleggur of mikið, gengur of langt í
    skattlagningu, þá kippir fólk að sér hendinni, dregur úr umsvifum og alls
    kyns hlutir gerast í samfélaginu þannig að fólk reynir að koma sér hjá því
    að borga skatta, veigrar sér við því, vinnur minna og svo framvegis. Það
    er sem sagt ekki hvetjandi heldur er það letjandi fyrir hagkerfið að hækka
    skatta ef það er komið fram yfir ákveðin mörk. Í þessu tilviki er ekki
    óvarlegt að áætla að veltuskattar skili sér í minna magni og þeir gera ráð
    fyrir 5 milljörðum þar. Nú, þeir gera ráð fyrir 10 milljarða kr. skekkju
    vegna hægari efnahagsumsvifa. Og á hverju byggja þeir það? Þeir byggja það
    á ýmsu í hagkerfinu sem er að gerast, þ.e.a.s. eins og allir vita geta
    ýmsir atburðir úti í heimi haft áhrif á hrávöruverð, olíuverð og fleira.
    Svo eru, frú forseti, skýr merki hér á landi um minnkandi umsvif. Það er
    minnkandi einkaneysla og það er aukið atvinnuleysi. Allt hefur þetta áhrif
    og þeir meta það sem svo að þetta muni valda 10 milljarða kr. viðsnúningi
    miðað við forsendur ríkisstjórnarinnar. Þeir telja að vaxtagjöld sem
    ríkisstjórnin áætlar séu vanáætluð og það muni telja upp á 10 milljarða
    líka. Þeir tala um gjaldahliðina sem er alveg sérkapítuli, frú forseti, og
    ég mun kannski koma betur að, en þeir tala um gjaldahlið ríkisfjármála þar
    sem ríkisstjórnin stærir sig af því að ná í 44 milljarða með því að draga
    úr útgjöldum. En reyndin er sú að hávaðinn af þessum sparnaði ríkisins er
    auðvitað enginn sparnaður. Það er verið að taka uppsafnaðar fjárheimildir
    úr ýmsum framkvæmdum sem einhverra hluta vegna eru ekki farnar af stað og
    telja það sem sparnað, þannig að verið er að fresta framkvæmdum og verið
    að kaupa kolaeldavél í staðinn fyrir rafmagnseldavél. Það er ýmislegt
    svona. Ofáætlun á gjaldahliðinni telur þetta greiningarfyrirtæki vera að
    andvirði 20 milljarða. Niðurstaða þeirra er sú að ríkisstjórnin sé að
    ofáætla þennan afgang á næsta ári um 48 milljarða þannig að raunveruleg
    afkoma miðað við þeirra spá verði þá 43 milljarða kr. halli. Það er, frú
    forseti, reyndar mun minni halli en síðustu ár þannig að það eru kannski
    góðu fréttirnar. En ég geld varhuga við því að menn séu hér á þingi að
    dreifa frumvörpum sem byggjast raunverulega svona mikið á bjartsýni,
    bjartsýninni einni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og fyrri ræðumenn hafa mikið fjallað um, og kannski geri ég
    það eitthvað líka, eru skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Það er einkenni
    þessarar ríkisstjórnar. Það er einkenni allra vinstri stjórna, frú
    forseti, allra vinstri ríkisstjórna, að það er hlaupið í það að hækka
    skatta. Ég hef haldið ófáar ræður hér í þessum ræðustól og bent
    ríkisstjórninni á ýmsar leiðir til þess að draga úr útgjöldum. Mjög
    eðlilegar leiðir en ríkisstjórnin hefur ekki kjark eða hugrekki til að
    fara í slíkt. Það er auðveldara að hækka skatta með þeim afleiðingum sem
    ég nefndi áðan, með því að efnahagsumsvif í samfélaginu dragast smátt og
    smátt saman og ekki bætir úr ef efnahagsumhverfið sjálft er frekar á
    niðurleið heldur en hitt. Það er einkenni vinstri stjórna að hækka skatta.
    Þeir leita logandi ljósi, frú forseti, logandi ljósi í raun og sanni að
    einhverri nýrri leið til að hækka skatta. Og ef einhver fær einhverja
    hugmynd, snilldarhugmynd að þeirra mati, um nýja skatta þá er klappað í
    salnum. Við sjáum það bara á þessum fjárlögum. Ég er ekki að fara með
    fleipur um það að það er ekkert undanskilið og ef einhver atvinnugrein
    sýnir stöðu eitthvað yfir núllinu þá er hún skattlögð. Það var
    sjávarútvegurinn í fyrra. Það hefur verið ferðaþjónustan og hér eru enn þá
    lagðar auknar álögur á ferðaþjónustuna. Og nú eru það bankarnir. Hver er
    ástæðan og hvað hafa stjórnarþingmenn fært inn í þetta mál hér í
    umræðunni? Að menn séu að græða svo rosalega mikið. Þeir hafi bara gott af
    því að borga skatta. Bæði skattar á ferðaþjónustu og skattar á bankana
    munu lenda á, frú forseti, þeim sem skulda, unga fólkinu sem er að kaupa
    sér íbúðir, með því að þetta mun leiða til hærri vaxta, hærri verðbólgu og
    hærri gjaldtöku af hálfu bankanna sem lendir auðvitað á herðum unga
    fólksins sem er að kaupa sér íbúðir og var ekki á það bætandi, frú
    forseti. Þau trúa því raunverulega að bankarnir, af góðvild sinni einni
    saman, muni bara ekki hækka gjöldin. Þeir eiga bara ekkert að hækka
    gjöldin, þeir græða alveg nóg. Þetta er svo barnalegt, frú forseti, þetta
    viðhorf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla aðeins að fjalla um þessar skattahækkanir sem hafa nú
    komið hér mikið til umræðu. Ég ætla sérstaklega að byrja á einni sem
    kannski hefur fengið minnsta umfjöllun. Það er þessi skattahækkun sem fer
    mjög undir radar, þ.e. niðurfelling framleiðniviðmiðs þegar verið er að
    hækka skattþrep og persónuafslátt. Það hefur viðgengist undanfarin ár að
    þegar þessir hlutir eru hækkaðir með tilliti til verðlags þá hefur verið
    bætt inn svokölluðu framleiðniviðmiði og til þess að þessir þættir myndu
    ekki verða eftir þá hefur verið bætt við einu prósenti. Nú á að fella
    þetta niður. Þetta eina prósent á að fella niður, þ.e. persónuafsláttur
    mun ekki hækka um 1% sem hann hefði ella gert. Þetta er skattahækkun. Öll
    skattþrepin þrjú munu ekki hækka um þetta eina prósent sem þau ella hefðu
    gert. Hvað er þetta, frú forseti? Þetta er auðvitað skattahækkun. Og hvað
    metur ríkisstjórnin þetta framleiðniviðmið, sem er nú illskiljanlegt, til
    aukinna skatttekna? 3,1 milljarður, 3,1 milljarða skattahækkun. Á hverjum
    lendir þetta? Þetta lendir á öllu fólki, öllu vinnandi fólki sem hefur
    tekjur yfir þessum mörkum. Persónuafslátturinn lækkar eða hækkar ekki eins
    mikið, eigum við ekki að orða það þannig, og skattþrepin öll einnig. 3,1
    milljarður á vinnandi fólk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þeir ætla að lækka endurgreiðslu virðisauka vegna viðgerða og
    endurbóta á íbúðum. Á hverjum lendir það? Það lendir á íbúðareigendum,
    unga fólkinu sem er að kaupa sér íbúð, kannski að gera hana upp. Duglegt
    fólk hérna áður fyrr keypti sér íbúðir sem voru kannski aðeins með
    afslætti vegna þess að það þurfti að gera þær upp. Fólk nýtti sér þetta og
    gerði þessar íbúðir upp og þessi virðisauki sem það fékk endurgreiddan var
    auðvitað hvetjandi en nú á að lækka það, úr 35% í 20%. Á hverjum lendir
    þetta? Vinnandi fólki, frú forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðgangur að baðlónum kemur auðvitað niður á ferðaþjónustunni og
    gæti hugsanlega orðið til þess að Ísland kæmist í þann flokk að fólk færi
    að minnka komur hingað en þetta er nú ein af grunnstoðum okkar hér á
    landi. Nú, þeir ætla einnig að taka upp innviðagjöld af ferðamannastöðum í
    eigu ríkisins. Fyrir utan það, frú forseti, eru þeir að hækka og gera ráð
    fyrir stórfelldri hækkun á gjaldtöku á þá staði sem eru í umsjá Þingvalla
    og Náttúruverndarstofnunar. Þar er gert ráð fyrir að það hækki úr 1.000
    millj. kr. á síðasta ári í 1.850 millj. kr. á þessu ári og 2.218 millj.
    kr. á næsta ári. Þannig að þetta er ekki bara innviðagjaldið, það er líka
    þetta. Það á alls staðar að ná í pening. Það á að fara ofan í alla vasa;
    rassvasa, brjóstvasa, alla vasa á fólkinu í landinu. Hefur þetta engin
    áhrif? Auðvitað hefur þetta áhrif, frú forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>