<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T15:55:37" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 16:11:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T15:55:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Frú forseti. Hér erum við á degi tvö í umræðu um
    bandorminn svokallaða. Hér eru á ferðinni skattahækkanir ofan á
    skattahækkanir eins og ýmsir hafa komið inn á í umræðunni. Í
    fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 kemur fram að krónutölugjöld og
    skattar ríkisins á næsta ári eiga að hækka í það minnsta um verðbólgu
    þessa árs eða 5,2% í stað þess að miðast við verðbólgumarkmið Seðlabanka
    Íslands, þ.e. 2,5%. Sjálfvirk verðtrygging eins og notuð er í
    fjárlagafrumvarpinu varðandi krónutölugjöld og skatta hins opinbera er
    langvarandi ósiður og mikilvægt verkefni að reyna að leggja slíkt af,
    sagði Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, fyrir
    stuttu. Þetta eru orð að sönnu og ég gæti ekki verið þessu meira sammála.
    Af fjárlagafrumvarpi og bandormi má sjá og liggur fyrir að jöfnuði í
    ríkisfjármálum eigi að ná með hækkun skatta og gjalda en síður með
    hagræðingu í ríkisrekstri. Ég spyr: Af hverju er ekki aðhaldskrafan meiri
    í ríkisrekstrinum? Ég er þeirrar skoðunar að þessi aðferð sendi kolröng
    skilaboð út í samfélagið og ég óttast að verði þetta niðurstaðan þá
    viðhaldist verðbólgan og jafnvel hækki og það verði áfram háar
    verðbólguvæntingar. Þetta eru bara afar slæm skilaboð út í samfélagið.
    Síðan er lögð á það gríðarleg áhersla að fyrirtæki haldi aftur af
    verðhækkunum eins og frekast er unnt og það er fullkomlega eðlileg krafa.
    En þá verða ríkið og sveitarfélög að ganga á undan með góðu fordæmi og
    stilla gjaldskrám og skattahækkunum í hóf í samræmi við verðbólgumarkmið
    Seðlabankans, sem aldrei verður sagt of oft að er 2,5%, ekki
    5,2%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin að mínu viti sýnir hér afar slæmt fordæmi sem getur
    mögulega haft dómínóáhrif á allt samfélagið. Ég ætla að nefna dæmi aftur
    frá varaformanni peningastefnunefndar, Þórarni G. Péturssyni, varðandi
    samtöl sem hann hefur átt, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2026/09/14/langvarandi_osidur_hins_opinbera/?origin=helstu-->

    <ns:mgr>„Ég heyri það til dæmis bara á mínum samtölum við rekstraraðila í
    smásöluverslun að þegar þeir heyra þetta verða þeirra samtöl við birgja
    til dæmis ansi erfið. Menn segja: Ríkið er að hækka um 5,2 — af hverju
    ættum við þá að hækka um 2,5?“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einmitt. Þetta er að mínu viti eitthvað sem verður að endurskoða.
    Það verður að endurskoða þetta til að allt hér fari ekki á hvolf.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við skulum skoða aðeins hvernig þetta kemur fyrir í þessum
    bandormi. Byrjum á sértækum tekjuöflunaraðgerðum. Það er bankaskatturinn,
    sem er sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, þar á að ná 6 milljörðum.
    Virðisaukaskattur á baðlón og heilsulindir, þar á að ná 4 milljörðum.
    Lækkun á virðisaukaskattsendurgreiðslu vegna íbúðarhúsnæðis úr 35% í 20%,
    þar á að ná 3,6 milljörðum. Svona getur maður talið áfram. Síðan eru það
    verðlagshækkanir á krónutölugjöldum og nefsköttum, 5,2% að lágmarki. Það
    er kílómetragjaldið, það er kolefnisgjaldið, áfengisgjaldið, tóbaks- og
    nikótíngjöld, bifreiðagjald, gistináttaskattur og innviðagjald, gjald í
    Framkvæmdasjóð aldraðra, útvarpsgjaldið og svo jöfnunargjald raforku.
    Þannig að hér er ansi margt sem er að hækka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér láðist að nefna varðandi þessar sérstöku tekjuöflunaraðgerðir
    að það er einn liður sem mér virðist mjög falinn í frumvarpinu. Það er
    þetta 0% framleiðniviðmið í tekjuskatti einstaklinga. Þetta er skattur eða
    skerðing sem bitnar á öllum Íslendingum, öllum ríkisborgurum eða öllum sem
    þiggja laun hér á landi. Jú, þarna á að ná 3,1 milljarði kr. Þetta finnst
    mér ansi sérstakt. Það eru flokkar í þessari ríkisstjórn sem sögðu fyrir
    kosningar að hér ætti ekki að hækka skatta á vinnandi fólk, venjulegt
    vinnandi fólk. Hér er verið að hækka skatta á venjulegt vinnandi fólk.
    Höfum það á tæru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan eru ýmsar aðrar hækkanir sem koma hér fram sem hefur lítið
    verið fjallað um í umræðunni, alla vega í þeim hluta sem ég hef verið
    viðstödd. Það er úrvinnslugjaldið. Þar er ýmislegt sem mér finnst
    athugunarvert. Þarna er verið að tala um miklu meiri hækkanir en 5,2%. Ég
    kem úr landsbyggðarkjördæmi, Norðvesturkjördæmi, og þar er mikið af
    bújörðum og búrekstri og ég sé hér að úrvinnslugjaldið á að hækka um rúm
    92% í heyrúlluplasti. Ég ætla bara að nefna dæmi sem ég hef heyrt varðandi
    kostnaðarauka sem þetta hefur í för með sér fyrir t.d. kúabú með 130
    nautgripi og um 40 kindur. Þetta getur haft þann kostnaðarauka í för með
    sér að þetta hækkar rekstrarkostnað um 120.000 kr. Það er bara
    hellingspeningur. Þetta er gert á einu bretti. Þetta er bara eitt dæmi.
    Það á líka að hækka gjald á umbúðir úr plasti um rúm 92%. Og svo er hérna
    500% hækkun á sólarrafhlöður, stór raftæki, 173% hækkun. Þetta eru alveg
    rosalegar hækkanir sem ég tel að þurfi bara að skýra miklu betur, í það
    minnsta fyrir mér. Ég skil ekki hvernig þetta er réttlætanlegt. Síðan eru
    það hækkanir á eftirlits-, leyfis- og umsóknargjöldum og öðrum opinberum
    álögum þannig að það er verið að seilast ofan í vasa borgaranna, það er
    nokkuð augljóst.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég verð að segja það að hvert sem ég fer þessa dagana þá skynja ég
    djúpa reiði úti í samfélaginu. Ég skynja djúpa reiði gagnvart þessum
    fyrirætlunum, skatta- og gjaldskrárhækkunum stjórnvalda. Ég skynja djúpa
    reiði og ég skil hana. Allar þessar áætluðu hækkanir bitna á venjulegu
    fólki, venjulegu launafólki í þessu landi. Þessar hækkanir þýða t.d.
    dýrari akstur og rekstur hvers kyns bifreiða, hærri flutningskostnað,
    aukinn byggingarkostnað, hærra vöruverð, hærra verð fyrir þjónustu. Og
    síðan er það auðvitað þannig að auknar álögur á fyrirtæki skila sér einnig
    að lokum út í verðlagið. Hérna verð ég sérstaklega að nefna bankaskattinn
    svonefnda. Halda menn virkilega að neytendur og þeir sem t.d. þurfa að
    taka lán þurfi ekki að greiða þennan skatt? Auðvitað verður þessu velt út.
    Það sagði hér þingmaður áðan í pontu að það að halda því fram væri
    barnaskapur og ég ætla bara að taka undir þau orð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á hverjum bitna þessar skatta- og gjaldskrárhækkanir? Þetta bitnar
    á öllu venjulegu vinnandi fólki í þessu landi. Það bitnar á neytendum og
    fyrirtækjum almennt og byggingamarkaðnum. Og já, ég gleymdi að nefna áðan
    að það á að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 35% niður í 20%. Það
    mun væntanlega verða til þess að húsnæðisverð mun hækka. Og
    byggingarbransinn á nú þegar í erfiðleikum og þetta mun ekki hjálpa til.
    Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu einnig bitna á landsbyggðinni. Ég
    vil meina að kílómetraskatturinn, og nú á að auka hann um 16% tæp, sé
    ekkert annað en landsbyggðarskattur. Ég veit að hér sagði hv. þm. Arna
    Lára Jónsdóttir og vísaði í einhverja skýrslu að þetta kæmi best út fyrir
    landsbyggðina. Ég skil nú bara ekki hvernig hægt er að fá slíkt út vegna
    þess að við sem búum úti á landi þurfum yfirleitt að keyra lengstu
    vegalengdirnar. Þangað þarf að flytja vörur langa leið frá
    höfuðborgarsvæðinu og allt saman fer þetta út í vöruverðið og allt saman
    fer þetta út í aukinn kostnað við að reka fyrirtækin, reka bifreiðarnar.
    Og ég var búin að tala um heyrúlluplastið áðan, ég átta mig ekki á þessari
    rosalegu hækkun sem hérna er verið að leggja á bændur þessa
    lands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er það ferðaþjónustan. Það á aldeilis að láta hana finna
    fyrir því vegna þess að hún hefur staðið sig í stykkinu síðustu árin.
    Stjórnvöld ætla að sækja 10–11 milljarða frá ferðaþjónustunni, það eru
    áhrifin sem áætluð eru. Það á að hækka virðisaukaskattinn á baðlón úr 11 í
    24% m.a. Síðan á að hækka kílómetraskattinn um 16% og það mun hafa rosaleg
    áhrif á ferðaþjónustuna. Öllu þessu er skellt á með engum fyrirvara en það
    sem ferðaþjónustan þarf að hafa er fyrirvari vegna þess að þar eru ferðir
    seldar með löngum fyrirvara, allt að nokkrum árum, hún þarf allt að
    nokkurra ára fyrirvara. Halda menn virkilega að ferðaþjónustan geti vaxið
    og dafnað með svona aðgerðum? Í alvöru, halda menn það? Það má enginn sýna
    góðan rekstur, hagnað eða neitt. Nei, þá þarf að leggja meiri álögur á þau
    fyrirtæki og helst einstaklinga líka. Mér finnst ekki góður bragur á
    þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum, þar sem mér sýnist ég vera að renna út á tíma fljótlega,
    vil ég segja þetta: Auðvitað eru hallalaus fjárlög gott markmið. Það er
    bara mjög gott markmið að miða við að reyna að ná hallalausum fjárlögum.
    En ég vil líka segja að það er ekki góð leið að ná hallalausum fjárlögum
    með því að hækka skatta og 5 milljarða afgangur orkar mjög tvímælis þegar
    það á að ná honum með tugmilljarða aukningu í álögum á samfélagið. Ég vil
    segja að það væri miklu eðlilegra að ríkið tæki fyrst til í sínum eigin
    ranni, gengi miklu harðar fram í eigin rekstri, ríkisrekstrinum, fækkaði
    verkefnum, minnkaði alla yfirbyggingu, sameinaði stofnanir þar sem það á
    við og forgangsraðaði fjármunum miklu betur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil enda á þessu: Það er alltaf verið að tala um öll þessi
    áföll <ns:bjalla/> sem hafa dunið yfir íslenska þjóð, eðlilega. En nú er
    Covid búið. Það hófst 2019. Ríkisbáknið bólgnaði út á Covid-tímanum. Er
    ekki bara góður bragur að byrja á því að setja t.d. fjölda
    ríkisstarfsmanna niður í þann fjölda sem var 2019, fyrir Covid?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>