<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T16:11:42" skst="JGunn" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 16:24:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T16:11:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða 2. mál þingsins á þessum
    tíma, svokallaðan bandorm ríkisstjórnarinnar sem fylgir gjarnan og á að
    fylgja fjárlagafrumvarpinu. Á undanförnum vikum höfum við horft upp á
    hæstv. ráðherra reka í raun ríkisrekinn áróður, áróðursherferð gegn
    íslensku atvinnulífi. Það hefur verið skotið föstum skotum í allar áttir.
    Fyrirtæki í landinu eru sökuð um græðgi. Þau eru skömmuð fyrir að hækka
    vöruverð. Þau eru gerð ábyrg á vissan hátt fyrir verðbólgunni. Hver er
    tilgangurinn með þessari gagnrýni, virðulegur forseti? Jú, að mínu mati er
    þetta örvæntingarfull tilraun til að varpa ábyrgðinni af eigin klúðri yfir
    á aðra. Þessi ríkisstjórn er búin að missa allan trúverðugleika eins og
    kemur ágætlega fram í skoðanakönnunum þar sem traust borgaranna er horfið
    gagnvart ríkisstjórninni þegar kemur að lausn efnahagsmála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt megináhyggjuefni okkar á undanförnum, getum við sagt, árum og
    í dag eru þrálátar verðbólguvæntingar. Við vitum að það þarf þjóðarátak
    til að snúa þeirri þróun við. Það þurfa allir aðilar samfélagsins að koma
    að því borði en það virðist stundum vera þannig að ráðherrarnir telji að
    vinnumarkaðurinn einn eigi að bera þessa byrði á meðan ríkisvaldið
    skammtar sér ótæpilega í eigin gjaldahækkunum. Með þessu frumvarpi má
    segja að ríkisstjórnin hagi sér eins og fíll í postulínsbúð. Hún gengur
    hér á undan með þannig fordæmi að öllum er gefinn puttinn. Þessi bandormur
    eykur beinlínis verðbólguvæntingar. Hann gefur tóninn fyrir sveitarfélög
    og aðra opinbera aðila um að feta sömu braut og keyra gjaldskrárnar upp.
    Stjórnvöld geta ekki einfaldlega mætt með vöndinn og barið á öðrum þegar
    þau sjálf gefa tóninn með auknum gjalda- og skattahækkunum. Þetta er
    stóralvarleg staða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Rifjum aðeins upp hvernig þessi vegferð hófst. Hvar eru öll stóru
    loforðin sem gefin voru fyrir kosningar? Þetta átti allt að vera svo
    einfalt. Það átti að leysa alla hnúta. Það átti ekki að hækka álögur. Það
    átti að tryggja stöðugleika á einni nóttu. Nú spyr maður sig, virðulegur
    forseti: Var hæstv. forsætisráðherra svona illa að sér í efnahagsmálum
    þegar loforðin voru gefin eða var planið hreinlega allt byggt á kolröngum
    forsendum og óskhyggju í upphafi? Það hefur nefnilega ekki skort
    yfirlýsingarnar og stóru orðin eftir að farið var af stað. Við munum öll
    eftir fleygu orðunum eins og: Ef þarf, þá gerum við hlutina hraðar og við
    gerum meira. En hver er raunin? Þetta reynist allt vera eitthvert
    innihaldslaust leikrit og froða þegar á hólminn er komið. Það eina sem
    gert er hraðar og meira af er að keyra upp álögur á almenning.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ræsum vélarnar eru kunnugleg orð og kunnugleg setning sem hefur
    glumið í eyrum okkar af hálfu ríkisstjórnarinnar alveg frá því að hún kom
    til starfa. Ræsum vélarnar. Það var alveg dæmigert þegar var verið að ræsa
    vindorkuverið í Vaðöldu fyrr í dag að hæstv. fjármálaráðherra notaði
    einmitt þessi orð þegar hann gaf Landsvirkjun skilaboð í gegnum fjarskipti
    um að ræsa vélarnar og það gerðist ekkert. Meira að segja þetta gat
    mistekist hjá ríkisstjórninni. Reyndar voru veðurguðirnir ekki með þeim í
    liði þarna, ekki frekar en almættið virðist almennt vera með þeim í liði.
    En þetta er dæmigert fyrir árangursleysi þessarar ríkisstjórnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir ári síðan var okkur lofað miklu fjárfestingarhausti. Það
    átti að vera gríðarlega mikilvægt skref og innspýting í innviði og
    atvinnulíf. En hvað fengum við? Við fengum enn eitt leikritið af hálfu
    ríkisstjórnarinnar. Það voru engar forsendur reyndar til staðar til að
    boða eitthvert fjárfestingarhaust. Það gaf augaleið og allir áttuðu sig á
    því sem þekkja vel til að grunnforsendurnar til að hefja aukna
    fjárfestingu, sem auðvitað gerist fyrst og fremst í atvinnulífinu, voru
    ekki til staðar. Það var búið að draga úr samkeppnishæfni landsins. Það
    var búið að auka álögur, m.a. á okkar helstu atvinnugrein, með þeim
    afleiðingum að fjöldamörgum fjárfestingarsamningum sem voru á borðinu eða
    komnir af stað var slegið á frest eða jafnvel hætt við. Í stað þess að
    byggja upp þessa samkeppnishæfni var farið í letjandi aðgerðir. Skilaboðin
    og auknar álögur í þessu frumvarpi virka nefnilega eins og blaut tuska
    framan í atvinnulífið og eru endurtekinn leikur frá síðustu áramótum, frá
    síðasta fjárlagafrumvarpi, fyrir þetta ár. Þá var nákvæmlega þetta sama
    uppi á borðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er í raun alveg ótrúlegt að við skulum vera í þeirri stöðu,
    virðulegur forseti, að fólk læri ekki af mistökum sínum. Þegar
    gjaldahækkanir voru svo ótæpilegar um síðustu áramót sem raun ber vitni,
    og önnur skilaboð frá þessari blessuðu ríkisstjórn, þá voru
    greiningaraðilar og aðrir sérfræðingar búnir að vara við
    verðbólguáhrifunum af þessu. Þær létu ekki á sér standa. Það má segja að
    eftir það hafi ekki verið ráðið við neitt, því miður. Það er nefnilega
    stöðugt dregið markvisst úr öllum fjárfestingarvilja og fjárfestingargetu
    fyrirtækja í landinu sem væri í raun lykillinn að því að ná upp hagvexti
    sem síðar myndi smátt og smátt lækka skuldahlutfall okkar og draga þannig
    úr vægi vaxtagreiðslna í samfélaginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að rýna aðeins í staðreyndir um
    krónutölugjöldin af því að því hefur verið haldið hér á lofti að þetta sé
    bara eins og alltaf hafi verið. Það er svo sem eitt atriði af mörgum þar
    sem hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar fara með rangt mál. Skoðum
    söguna til að sjá muninn á ábyrgri efnahagsstjórn og þeirri sem við horfum
    upp á í dag. Við tókum við hér, Sjálfstæðisflokkurinn, í ríkisstjórn árið
    2013. Þá voru erfiðar aðstæður. Það hafði engum dottið þá í hug að það
    væri eitthvað að marka þáverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna
    Benediktsson, þegar hann hélt því ítrekað fram að hann myndi skila
    hallalausum fjárlögum fyrir árið 2014. Það var hlegið að honum, m.a. hér í
    þingsal og einmitt af þeim flokkum sem nú skipa ríkisstjórnina. En það
    gerðist, við skiluðum hallalausum fjárlögum. Þannig var það allar götur
    síðan þar til áföllin dundu yfir. Flugfélagið WOW fór forgörðum með miklu
    áfalli. Síðan kom auðvitað stríðið í Úkraínu og eldgosin á Reykjanesskaga.
    Það varð tekjufall hjá ríkissjóði. Það var fyrst og fremst það sem
    gerðist. Það var ekki verið að eyða umfram það sem áður hafði verið eytt.
    Það varð tekjufall. Það hrundu allir tekjustofnar ríkisins og við því varð
    að bregðast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En munurinn liggur í viðbragðinu hjá okkur og þessari ríkisstjórn.
    Þær ráðstafanir sem við gerðum þá voru að verja fyrirtæki og heimili í
    gegnum þessi áföll. Áhrifin af því voru þau að atvinnulífið stóð á
    löppunum. Það náði að byrja að mynda aftur hagvöxt og við vorum á mjög
    góðri leið með að ná vopnum okkar, jafna okkur og ná tökum á verðbólgu og
    vöxtum þegar þessi ríkisstjórn kom til valda. Þetta eru staðreyndir
    málsins og það er í raun alveg ömurlegt, virðulegur forseti, hversu oft
    við þurfum að verða vitni að því að það er verið að falsa söguna. Við
    getum tekist á í pólitík, og eigum að gera það, um stefnur og strauma
    o.s.frv. en við eigum ekki að vera að halla sannleikanum, halla sögunni
    stöðugt til að reyna að bæta eigin málstað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við hækkuðum krónutölugjöldin. Það var hluti af okkar viðbrögðum
    þegar við vorum í ríkisstjórn árið 2020, 2021 og 2022. Þegar verðbólgan
    var að láta á sér kræla í kjölfar þessara áfalla þá hækkuðum við þessi
    svokölluðu krónutölugjöld um 2,5%. Það var ákvörðun um að lækka gjöldin að
    raungildi eða fyrst og fremst í samræmi við verðbólguviðmið Seðlabankans
    til að halda verðbólgunni niðri, gefa út í kosmósið skýr skilaboð um það
    að ríkisstjórnin ætlaði að ganga á undan með góðu fordæmi. Árið 2023 var
    þessi hækkun leiðrétt að hluta, þó vel innan við verðbólgu, og árið 2024
    var þessu stillt mjög í hóf eða 3,5%. Á öllum þessum árum urðu þessar
    hækkanir ekki til að örva verðbólguna eins og núverandi ríkisstjórn er að
    gera. Því er ítrekað haldið hér fram af hv. þingmönnum og hæstv. ráðherrum
    ríkisstjórnarflokkanna að þetta sé bara eins og þetta hafi alltaf verið.
    Enn ein sögufölsunin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það dugar ekki fyrir ráðherra að fela sig á bak við einhver skjöl.
    Þegar ríkið eykur álögur sínar þá smitar það út í allt hagkerfið. Það er
    segin saga. Kostnaður fyrirtækja hækkar, það veltur út í verðlagið og
    hringekja verðbólgunnar snýst hraðar fyrir vikið. Ríkið er ekki að beita
    sínum verkfærum sem skyldi við þessar aðstæður. Að heyra síðan ráðherra
    skamma hér atvinnulífið fyrir verðhækkanir á sama tíma og þeir leggja fram
    frumvarp sem hækkar skatta og gjöld á þessi sömu fyrirtæki og heimili er
    auðvitað hreinasta leikrit. Þetta er tvískinnungur. Það er engin furða þó
    að verðbólguvæntingar séu fastar og neytendur vantrúaðir. Ef ríkisstjórnin
    ætlar að kalla eftir samstöðu um að ná niður verðbólgu og verja kaupmátt
    þá verður hún að ganga á undan með góðu fordæmi. Hún getur ekki boðað
    þjóðarátak, virðulegur forseti, á mánudögum en mætt með nýjar
    gjaldahækkanir á miðvikudögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú er verkefni þingsins að glíma við þetta og auðvitað ber maður
    einhverjar væntingar til þess að hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna láti
    sér nú segjast og taki ekki þátt í þessu rugli sem við erum að fara að
    keyra hér áfram. Ef við ætlum að ná þeim árangri sem talað hefur verið um,
    að skapa grundvöll fyrir þjóðarátaki þar sem aðilar vinnumarkaðarins koma
    og fylgja góðu fordæmi, þá verður það fordæmi að gefast hér í skilaboðum
    frá hinu háa Alþingi. Það er engin önnur leið til þess að koma þessu í
    þann jákvæða farveg sem við þurfum á að halda. Þannig hefur í gegnum
    tíðina verið tekið á málum. Þannig hefur þessu verið mætt á hverjum tíma.
    Það eru mörg dæmi um það hvernig fyrri ríkisstjórnir, sem
    Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið þátttakandi í eða í forystu fyrir, hafa
    mætt svona áföllum með því að stíga skrefin og gefa góð fordæmi og vera
    fullur þátttakandi í því að mynda svokallaða þjóðarsátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>