<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T16:25:13" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 16:40:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T16:25:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla aðeins að fjalla um bandorminn svokallaða,
    þann hluta fjárlaganna sem snýr að tekjunum. Sá þáttur málsins er helst
    til umfangsmikill að þessu sinni, sem er að mínu viti bagalegt þar sem það
    er ekki tekjuangi ríkisfjármálanna sem er vandamálið, verandi það
    háskattaríki sem við vissulega erum, heldur er vandinn miklu frekar
    útgjaldamegin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin fer mikinn í því að hér eigi að skila hallalausum
    fjárlögum og er það vissulega góðra gjalda vert en þar skiptir höfuðmáli
    hvernig það er gert og með hvers konar aðgerðum. Ég hefði talið að það
    færi betur á því að skoða útgjaldahlið málsins með öflugri hætti en er
    gert í fjárlögunum þar sem það er vissulega boðað aðhald, sem er gott og
    blessað, en það verður að viðurkennast að það aðhald er helst til
    óskilgreint og alls ekki fast í hendi. En það sem er fast í hendi eru þau
    gjöld og skattar sem á að senda almenningi hér í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Auðvitað er það ekki erfitt — þrátt fyrir að ég heyri hv.
    stjórnarliða tala mikið um að þetta sé alls ekki auðvelt og þetta sé mjög
    erfitt — að mínu viti að ætla að skila hallalausum fjárlögum og rukka
    almenning í landinu fyrir það. Það er ekki erfitt. Það sem er erfitt er
    t.d. hvaða aðgerðum nýr borgarstjórnarmeirihluti í Reykjavík er að beita
    með alvöruaðgerðum á útgjaldahliðinni. Að mínu viti er það erfitt en
    hæstv. ríkisstjórn kýs að fara þessa leið og ætlar að senda, eins og ég
    segi, reikninginn fyrir þessu ágæta núlli til heimilanna og fyrirtækjanna
    í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Áður en ég fer í nokkra þætti þeirrar rukkunar langar mig örstutt
    að fjalla um að það gerir enginn lítið úr því, vissulega ekki, að auðvitað
    kemur að skuldadögum og það er auðvitað ekkert kræsilegt að vera að eyða
    óþarfafjármunum í vaxtagreiðslur eða eitthvað slíkt. Það eru allir sammála
    um það. En mér hefur ekki þótt mikill bragur á hvernig málflutningur
    stjórnarliða hefur verið varðandi þann þátt málsins. Ég heyrði hér þegar
    málið var fyrst lagt fram að það var fullyrt að hér yrði ríkissjóður
    hallalaus í fyrsta skipti í áratug, eins og það var orðað. Mig langar að
    nefna að í fyrsta lagi er alls ekki neitt fast í hendi. Þó að það sé búið
    að tússa hið fínasta núll á blað, eða að því stefnt í frumvarpinu að skila
    hallaleysi, er það alls ekki fast í hendi. Við sáum t.d. bara í
    fjárlögunum í fyrra að þá átti fyrst að stefna að 15 milljarða halla.
    Síðan eftir þinglega meðferð endaði hann í 28 milljörðum og nú stefnir sá
    halli í tæplega 70 þannig að það er ekkert fast í hendi með þetta núll
    þrátt fyrir að hv. stjórnarliðar fullyrði mikið um það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil samhengisins vegna taka fram, þar sem er talað um þennan
    áratug, og nú erum við hérna árið 2026, og rétt að nefna að árin 2016,
    2017 og 2018 var ríkissjóður hallalaus. Niðurstaðan var hallaleysi
    ríkissjóðs þessi ár. Síðan árin þar á eftir komu mýmörg áföll hvert af
    öðru sem auðvitað kostuðu mjög marga peninga. Beinn kostnaður einn og sér
    hljóp á hundruðum milljarða. Þá eru ótalin öll afleiddu áhrifin og
    tekjumissirinn eins og í Covid o.s.frv. Mig langaði bara að nefna þetta
    þar sem mér hefur ekki alveg fundist maklegt hvernig hv. stjórnarliðar
    hafa kannski leyft sér að bæði ýkja þennan ágæta áratug og kannski ýja að
    því að hér hafi verið óráðsía, sem er orð sem ég hef heyrt nokkra hv.
    stjórnarliða nota og kannski ekki alveg sanngjarnt að taka ekki fram í
    hvað þessir fjármunir fóru og hvaða áföll stuðluðu að því að það þurfti að
    eyða þessum fjármunum. Það er algjörlega sjálfsagt að taka fram að
    auðvitað hefði eftir á að hyggja örugglega verið hægt að gera ýmislegt
    betur en þar ber að hafa í huga að í öllum tilfellum var verið að bregðast
    hratt og fljótt við áföllum og koma heimilum og fyrirtækjum í skjól. Það
    tókst en það kostar auðvitað. En að mínu viti er ekki leiðin að ætla með
    handafli svolítið að ná þessu núlli í boði heimilanna í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að fjalla um nokkra liði af því sem á að sækja tekjur
    af. Fyrst er að nefna að þrátt fyrir mjög skýr loforð forsvarsmanna
    ríkisstjórnarinnar — bæði fyrir kosningar og við myndun ríkisstjórnarinnar
    var því lofað að það yrðu ekki hækkaðir skattar á það sem þau skilgreina
    sem venjulegt fólk, sem er ekki alveg vitað hverjir eru nákvæmlega en
    venjulegt fólk var það kallað og vinnandi fólk. Því skýtur skökku við að í
    bandormi þessum sem við erum hér að ræða eigi einmitt að hækka tekjuskatt
    á hvern einasta vinnandi mann í landinu. Með breytingum á
    tekjuskattsþrepunum svokölluðu munu allir sem greiða tekjuskatt borga
    hærri skatt og það alveg niður í þær lægstu tekjutíundir sem borga skatt,
    allt niður í þá sem fá 450.000 kr. á mánuði. Það er verið að hækka
    skattana á það fólk og alla aðra líka, þannig að í þessu frumvarpi er bein
    skattahækkun á hvern einasta vinnandi venjulegan mann í landinu þrátt
    fyrir gefin loforð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað atriði sem mig langar að fjalla um er mikil skattheimta á
    ferðaþjónustuna með beinni skattheimtu á baðlón þar sem á að færa þau úr
    11% virðisaukaskattsþrepi, sem ferðaþjónustan er alla jafna í, yfir í 24%.
    Ef við tökum þetta í heild á ferðaþjónustuna með kílómetragjaldinu og öðru
    þá er metið að það sé verið að skattleggja ferðaþjónustuna sem nemur um
    helmingi af heildarhagnaði greinarinnar í fyrra. Það hljómar kannski í
    eyrum einhverra sem bara skynsamlegt og að það sé svo sem kannski ekki
    stór upphæð en ég er ósammála því, því þá er aldrei tekið tillit til þess
    af hverju það er mikilvægt að það sé hagnaður í atvinnugreinunum okkar.
    Það er jú þannig sem við aukum fjárfestingu og stækkum kökuna eins og við
    segjum. Hér er ferðaþjónustan í skotlínu ríkisstjórnarinnar sem
    atvinnugrein þar sem er nóg til, eins og það er orðað. Ég hef áhyggjur af
    þessu. Atvinnugreinin er í mjög erfiðri samkeppni við löndin í kringum
    okkur þar sem ferðaþjónustan er alla jafna einmitt í lægra skattþrepi
    þegar það á við. Það er meira en að segja það að ætla að hækka á þennan
    hátt alla reikningana hjá ferðaþjónustunni og getur haft mikil áhrif í
    hennar samkeppni við önnur lönd. Eins má nefna að þegar baðlónin eru tekin
    sérstaklega fyrir þá er líka verið að skekkja samkeppnisstöðu þeirrar
    afþreyingar innan ferðaþjónustunnar sjálfrar. Ég spurði hæstv.
    fjármálaráðherra hér við framsögu málsins í gær hvort það hafi verið gert
    eitthvert áhrifamat á hvers konar afleiðingar þetta gæti haft en fékk svo
    sem fá svör við því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum langar mig að tala um bankaskattinn svokallaða.
    Bankaskatturinn er sértækur skattur sem var settur nýr hér á eftir
    bankahrunið með þann tilgang að greiða fyrir fjármálaáfallið þá m.a.,
    þannig að ég er ekki alveg viss um að það standist skoðun að þessi löggjöf
    sé tæk miðað við tilgang sinn en látum það liggja milli hluta. Þangað á að
    sækja 6 milljarða sem er rosalega mikið og þá er hið íslenska bankakerfi —
    ja, það er langskattahæsta bankastarfsemi í þeim löndum sem við berum
    okkur saman við. Það er áhyggjuefni því að við vitum jú að sá reikningur
    endar alltaf á endanum hjá venjulegu vinnandi fólki. Fyrir utan að hafa
    líka áhrif á samkeppnisstöðu bankanna þá vitum við að svona fjárhæðir sem
    eru lagðar á á einu bretti með nánast engum fyrirvara og engum
    fyrirsjáanleika munu enda á að hafa áhrif á vaxtakjör. Það er áhyggjuefni
    eitt og sér. Ég átta mig á og heyri hérna í umræðunni að auðvitað er
    einhvern veginn látið að því liggja að bankarnir einir og sér, eins og það
    sé einhvern veginn eitthvert eitt hús uppi á hól, geti alveg tekið þetta á
    sig. En þar ber einnig að hafa í huga að eigendur bankanna hér á Íslandi
    eru almenningur í landinu, það er ríkið sjálft, það eru lífeyrissjóðir
    o.s.frv. þannig að hér er í rauninni bara verið líka þeim megin frá að
    skattleggja almenning í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði aðeins að nefna krónutölugjöldin sem fara hressilega
    yfir verðbólguviðmið Seðlabankans eða tvöfalt það. Það sem er áhyggjuefni
    hvað það varðar eru skilaboð hæstv. ríkisstjórnar til samfélagsins á
    þessum viðkvæmu tímum, til sveitarfélaganna sem eru núna í sinni
    fjárhagsáætlanagerð sem og til vinnumarkaðarins. Það er áhyggjuefni að
    ríkið skuli senda þau skilaboð að það þurfi að passa upp á sína
    tekjustofna en krefjist þess af öllum hinum að þeir geri það ekki. Ég held
    að það sé ákveðinn barnaskapur að halda að það gangi upp og er talsvert
    áhyggjuefni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði síðan örstutt að koma inn á það sem hv. þm. Ingibjörg
    Davíðsdóttir fór inn á hérna rétt áðan varðandi úrvinnslugjaldið. Þetta er
    svakalega mikil hækkun og ég tek undir með henni að það þarf að fá frekari
    útskýringar á rökstuðningi og nauðsyn þess. Auðvitað mun þetta bara enda
    hjá venjulegu og vinnandi fólki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig að nefna hérna að það er stundum sagt að það sé
    ekkert jafn varanlegt og tímabundnir skattar. Mig langar af því tilefni að
    nefna að Reykjanesgjaldið svokallaða, sem var sett til þess að búa til
    varnargarða, er látið halda sér þó að það eigi ekki að gera neina
    varnargarða fyrir peningana. Ég get ekki betur séð en að þarna eigi bara
    að halda þessum tekjupósti enn þá lifandi án þess að hin sértæka nauðsyn
    sem var ástæða fyrir gjaldinu upphaflega sé enn til staðar. Þetta er að
    mínu viti eitthvað sem við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þurfum að
    leggjast betur yfir ásamt hinum ýmsu atriðum sem ber að taka til skoðunar
    í þessu frumvarpi en mér vinnst ekki tími til að fara meira yfir
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum vil ég fá að segja, frú forseti: Það sem er í botn og
    grunn að mínu viti einna alvarlegast við þetta frumvarp er að þrátt fyrir
    að það sé gott og vel í sjálfu sér að stefna að hallalausum fjárlögum — ég
    efast ekki um að ríkisstjórnin hafði væntingar um að það myndi senda
    skilaboð til markaðarins um að hérna væri trúverðug leið til þess að lækka
    verðbólgu, sem er auðvitað í botn og grunn langmikilvægasta verkefnið sem
    snýr að hverju einasta heimili og fyrirtæki í þessu landi. En um leið og
    það var lagt fram, bara vegna þess hve skattheimtan er mikil, hversu mikið
    frumvarpið mun hækka ákveðin gjöld o.s.frv., þá hefur hinn hlutlausi
    skuldabréfamarkaður — og það er vert að nefna það, skuldabréfamarkaðurinn
    hefur engar skoðanir á því hver heldur á excel-skjalinu, hvort hann heiti
    Daði Már eða Bjarni Benediktsson eða hver það er — með sínum ákvörðunum í
    rauninni gefið út það „signal“ að hann meti sem svo að þetta frumvarp auki
    verðbólgu. <ns:bjalla/> Það er fyrir mér einn stærsti áfellisdómurinn yfir
    þessu frumvarpi og er mikið áhyggjuefni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>