<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T16:40:46" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 16:55:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T16:40:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við sitjum uppi með sérkennilega ríkisstjórn. Það er
    freistandi að fá lánað frá Tolstoy og segja að allar farsælar
    ríkisstjórnir séu svipaðar en vanhæfar ríkisstjórnir séu mislukkaðar hver
    á sinn hátt og þessi er mislukkuð á sinn hátt. Þó er eitt og annað
    sameiginlegt þegar hlutirnir mistakast hjá stjórnvöldum og það er eitt og
    annað sameiginlegt þegar hlutirnir fara vel. Það er með öðrum orðum hægt
    að læra af reynslunni. Það er hægt að átta sig á því hvað virkar og hvað
    virkar ekki. En núverandi ríkisstjórn er fullkomlega ófær um að læra af
    reynslunni og það fjárlagafrumvarp og fylgifiskur þess, sem við ræðum hér,
    sem stjórnin lagði fram nú á nýju þingi, er staðfesting þess að stjórnin
    getur ekki lært af reynslunni því við erum búin að fara í gegnum þetta
    áður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar ríkisstjórnin lagði fram fjárlagafrumvarp síðast voru á því
    ýmsir hinir sömu gallar sem einkenna fjárlagafrumvarpið nú. Á það var bent
    ítrekað af stjórnarandstöðunni í 1. umræðu, í 2. umræðu og í
    lokaumræðunni. Þá var reynt að draga það fram hvaða mistök væri verið að
    gera og það var þrætt fyrir það af hálfu meiri hlutans, ekki hvað síst
    hæstv. fjármálaráðherra sem kynnti til sögunnar sínar eigin kenningar um
    hvernig hagkerfið virki og sakaði raunar gagnrýnendur sína um að hafa
    engan skilning á því hvað sneri upp né niður. En svo kom á daginn að hinn
    almenni sannleikur, þar sem stjórnarandstaðan hafði bent á gagnrýni
    hennar, reyndist réttur og sannaði gildi sitt. Þar má til að mynda nefna
    skatta- og gjaldhækkanir síðasta fjárlagafrumvarps sem varð síðan að þeim
    fjárlögum sem við störfum eftir núna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það má eiginlega segja að við höfum þrábeðið stjórnina um að leiða
    ekki verðbólgu og vaxtahækkanir á árinu sem nú er að líða með þeim áformum
    sem kynnt voru í fjárlagafrumvarpinu. Þau létu sér ekki segjast og gáfu
    tóninn, gáfu út tilkynningu um það að allt mögulegt sem ríkið legði gjald
    á skyldi hækka við síðustu áramót og strax á fyrsta degi nýja ársins,
    a.m.k. fyrsta virka degi, fóru að streyma inn fréttir frá fyrirtækjum sem
    voru að tilkynna um nauðsynlegar gjaldahækkanir og verðhækkanir vegna
    aðgerða ríkisstjórnarinnar og svo hafði hitt auðvitað áhrif líka, allar
    þessar skattahækkanir, en lærdómurinn var enginn. Það var enginn lærdómur
    dreginn af þessu, eiginlega bara bætt í eins og við sjáum í því frumvarpi
    sem við ræðum núna, þar sem ríkisstjórnin gefur tóninn með því að hækka
    gjöldin um 5,2%, sendir út í samfélagið þau skilaboð að nú verði
    lágmarksverðbólga á nýja árinu 5,2% og maður er þegar farinn að sjá
    umfjöllun um að fyrirtæki séu að búa sig undir það að þurfa að hækka verð
    sín. Í ósvífni sinni segir ríkisstjórnin bara það sama og síðast nokkurn
    veginn svona: Ekki gera eins og við gerum heldur eins og við segjum, þ.e.
    þótt við séum að hækka á ykkur gjöld þá skuluð þið ekki dirfast að hækka
    gjöld á aðra. Það er náttúrlega til marks um að það skorti skilning hjá
    þessari ríkisstjórn á því hvernig fyrirtækjarekstur gengur fyrir sig,
    þetta viðhorf að fyrirtækin séu að skemmta sér við það að skattpína
    almenning með óhóflegum verðum, fyrirtæki sem eru í samkeppni og ekki í
    sömu stöðu og ríkið að geta bara lagt línurnar með hvað menn skuli borga.
    En fyrir vikið horfum við upp á endurtekin mistök. Svo eru það allar
    skattahækkanirnar sem eru eiginlega eins og þær hafa verið hannaðar til að
    auka á verðbólgu í landinu. Það er eins og einhver hafi reynt að finna
    leiðina til þess að fara þvert á þau markmið sem þessi ríkisstjórn lét
    kjósa sig út á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hækkun bankaskattsins sem fjármálaráðherrann viðurkennir að muni
    enda hjá viðskiptavinunum — það er sem sagt skattur sem hækkar vexti beint
    frá ríkisstjórn sem lét kjósa sig til að berja niður vexti og verðbólgu.
    Hækkar skatt sem er til þess fallinn að hækka vextina beint til viðbótar
    við öll útgjöldin sem hún hefur staðið fyrir og hafa hækkað vexti og
    verðbólgu með þeim hætti. Svo eru það áform um að draga verulega úr
    endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað sem er bara leið til að
    hækka húsnæðisverð í framhaldinu þrátt fyrir allt talið um áhyggjur af
    fasteignamarkaðnum og stjórnvöld þurfa að reyna að koma þar inn
    í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi stjórnvöld eru reyndar fjandsamleg séreignarstefnunni og
    virðast hafa það að markmiði, alla vega miðað við hvernig stjórnin gengur
    fram, að færa sem flesta í leiguhúsnæði þótt langflesta langi að eignast
    eigið húsnæði og byggja upp eign í því. En þarna er enn verið að hækka
    verð á húsnæði. Svo er það kílómetragjaldið sem kynnt var hér sem ný og
    praktískari leið til að leggja gjöld á umferð sem ætti ekki að auka
    heildarálögur á bíleigendur. Um leið voru vörugjöldin á bílana hækkuð eins
    og við þekkjum. Niðurstaðan varð mjög veruleg aukning gjalda á
    bílaeigendur, sem hefur reyndar verið viðvarandi ár eftir ár. Það er
    endalaust hægt að taka meira af fólki fyrir það að þurfa að komast leiðar
    sinnar á Íslandi. En þarna er þetta nýja gjald, eins erfiðlega og hefur
    gengið að framkvæma það, hækkað um 16% á milli ára, 16% hækkun, gríðarleg
    hækkun á þessu gjaldi sem okkur var fyrir ekki svo löngu sagt að ætti að
    boða nýja og betri tíma og menn vissu þá hvar þeir stæðu og þyrftu ekki að
    óttast frekari hækkanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla ekki að nota tíma minn í þessari ræðu til að rekja öll hin
    gjöldin og hækkanirnar sem hafa verið lögð á til að rökstyðja það að það
    þyrfti átak í innviðamálum og samgöngum sérstaklega. Þetta eru orðin
    fjölmörg dæmi. Veiðigjaldið var nú frægt hvað þetta varðaði en svo var
    fundið upp þetta félag þarna sem á að taka peninga aukalega af fólki fyrir
    það að keyra vegina og ótal leiðir hafa verið kynntar sem lausnin á því
    hvernig við gætum nú loksins sett peninga í vegina. En þeir fara ekkert í
    vegina. Það er ekki gert ráð fyrir því í þessu fjárlagafrumvarpi að það
    verði neitt stórkostlegt átak í samgöngumálum þrátt fyrir hækkanir hér,
    hækkanir þar, hækkanir alls staðar. Umhverfisgjöldin hækka alltaf og
    kannski finnst stjórnvöldum þægilegt að hækka slík gjöld af því að þau
    líta á það sem einhvers konar dyggð, þetta eru svona refsigjöld til þess
    að senda merki til almennings um að hann eigi að haga sér betur og þeim
    mun meira sem þau eru hækkuð, þeim mun meiri er þá einbeiting
    ríkisstjórnarinnar í því að við viljum vernda umhverfið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir rakti hérna nokkur dæmi um mörg
    hundruð prósenta hækkanir á slíkum gjöldum og hv. þm. Nanna Margrét
    Gunnlaugsdóttir fjallaði um mál sem ég hafði reyndar ekki áttað mig á og
    verð að skoða betur, að með þessu frumvarpi sé verið að festa í sessi
    ETS-refsigjöldin, refsigjöld Evrópusambandsins sem hafa reynst svo skaðleg
    fyrir framþróun, uppbyggingu og verðmætasköpun í Evrópu og svo núna hér á
    Íslandi því að íslensk stjórnvöld álpuðust til að taka þátt í þessu og
    þykjast vera að reyna að semja um einhverjar sérlausnir. Nú virðist eiga
    að festa þetta almennilega í sessi með því frumvarpi sem við ræðum
    hér.</ns:mgr>

    <ns:mgr> Þetta er allt á sömu bókina lært. Það er ekkert samhengi á milli
    þess sem sagt er og þess sem gert er og við sitjum uppi með ríkisstjórn
    sem var kosin út á það, að eigin mati, held ég, og kannski margra annarra,
    að hún væri best til þess fallin að ná tökum á vandanum við vexti og
    verðbólgu á Íslandi og ná tökum á efnahagsstjórninni. En allt er þetta að
    þróast til verri vegar og þess hafa komið merki ítrekað og við höfum spurt
    hér, hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar, hæstv. forsætisráðherra og hæstv.
    fjármálaráðherra, aftur og aftur: Sérðu þetta ekki núna? Sérðu ekki núna
    tilefnið til að bregðast við? En viðbrögðin eru engin, nema meira af því
    sama og skapaði vandamálið. Það er það sem einkennir þetta frumvarp sem er
    svo kynnt á svona alls kostulegan hátt með því að forystumenn
    ríkisstjórnarinnar komi saman brosandi og teikni stórt núll á
    töflu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvernig ætli þessi mynd muni eldast? Nú þegar eru menn farnir að
    reikna líklega raunverulega niðurstöðu fjárlagafrumvarpsins þrátt fyrir
    allar þessar hækkanir sem ég hef verið að rekja hér og aðrir hv. þingmenn
    og margar fleiri. Nú gera greinendur ráð fyrir að hallinn geti hæglega
    verið 43 milljarðar þótt hlutirnir gangi upp að öðru leyti og það verði
    engin óvænt áföll. 43 milljarða kr. halli er kynntur sem eitt stórt núll í
    trausti þess að eftir rúmt ár verði menn búnir að gleyma því sem var sagt
    í þetta skiptið, rétt eins og því var treyst fyrir ári síðan að við myndum
    gleyma því sem var sagt um þau fjárlög sem við erum að starfa eftir núna.
    Og hver er að verða niðurstaðan með þau, meira að segja að mati
    fjármálaráðuneytisins sjálfs? Þeim var skilað með 15 milljarða kr. halla
    en eftir að þau fóru í gegnum þingið var hallinn áætlaður 28 milljarðar.
    Nú telur fjármálaráðuneytið sjálft að hallinn verði líklega í kringum 70
    milljarðar. Úr 15 milljarða kr. halla í frumvarpinu í 70 milljarða kr.
    halla í raunveruleikanum. Það er þrátt fyrir hvalrekann eða búhnykkinn
    óvænta þegar ríkinu hlotnaðist allt í einu 40 milljarðar kr. vegna sölu
    hugverkaréttinda Keresis. Ef það hefði ekki komið til sögunnar þá værum
    við líklega á þessu ári að horfa fram á 110 milljarða kr. halla út frá
    fjárlögum sem þessi ríkisstjórn kynnti sem fjárlög upp á 15 milljarða kr.
    halla. Hvernig halda menn að þetta verði að ári? Ég er dálítið hræddur um
    það að menn eigi eftir að verða fyrir vonbrigðum þegar næsta ár verður
    gert upp en þá hvet ég fólk til þess að muna hvernig þetta
    fjárlagafrumvarp var kynnt núna, hvað var sagt um það og myndina góðu. Ég
    held að hún geti hjálpað okkur við það, en umfram allt að muna að það
    gengur ekkert upp hjá þessari ríkisstjórn. Það sem hún segir stenst ekki,
    það sem hún gerir bregst. Hún skilar rangri niðurstöðu með það sem lagt
    var upp með, hún lærir ekki af reynslunni og hún gerir meira af því sem
    ekki virkar og jafnt og þétt minna af hinu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Meginniðurstaðan af því að hafa skoðað fjárlagafrumvarpið, frú
    forseti, og bandorminn svokallaða er að það sé fullreynt með þessa
    ríkisstjórn og við þurfum nýja ríkisstjórn á Íslandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>