<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T16:56:23" skst="IngS" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:09:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T16:56:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um barnavernd.
    Frumvarpið felur í sér tillögu að nýjum heildarlögum um barnavernd sem
    taka eiga við af gildandi barnaverndarlögum nr. 80/2002. Frumvarpið var
    áður lagt fram á 157. löggjafarþingi sem 580. mál og það fékk ítarlega
    umfjöllun í velferðarnefnd sem lauk umfjöllun sinni um málið og skilaði
    nefndaráliti ásamt breytingartillögu. Ekki náðist þó að ljúka afgreiðslu
    frumvarpsins fyrir þinglok. Frumvarpið er nú lagt fram að nýju og við
    undirbúning þess hefur verið tekið mið af umsögnum sem bárust við fyrri
    þinglega meðferð málsins og tekið tillit til þeirra breytinga sem meiri
    hluti velferðarnefndar lagði til ásamt athugasemdum sem bárust í
    samráðsferli um frumvarpið í sumar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Gildandi barnaverndarlög eru frá árinu 2002. Þau hafa
    tekið fjölmörgum breytingum á þeim rúmu tveimur áratugum sem liðnir eru
    frá setningu þeirra. Undirbúningur frumvarpsins á rætur að rekja til vinnu
    sem hófst árið 2018, sem sagt fyrir rétt um átta árum síðan. Vinna hófst
    sem sagt árið 2018 við endurskoðun lagaumhverfis þjónustu við börn. Það
    festi jafnframt í sessi ákveðnar breytingar sem urðu árið 2021. Markmið
    frumvarpsins er að tryggja börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða
    stofna heilsu sinni og þroska í hættu nauðsynlegan stuðning, umönnun og
    vernd. Jafnframt er lögunum ætlað að stuðla að því að öll börn geti alist
    upp við öruggar og þroskavænlegar aðstæður. Í frumvarpinu er lögð rík
    áhersla á að réttindi barna séu leiðarljós við alla framkvæmd
    barnaverndar. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar
    ákvarðanir eru teknar og barn á rétt á upplýsingum um mál sitt á barnvænan
    hátt, rétt á að láta skoðanir sínar í ljós og rétt á því að réttmætt
    tillit sé tekið til sjónarmiða þess í samræmi við aldur og þroska. Réttur
    barna til þátttöku er styrktur með ýmsum hætti. Skýrar er kveðið á um
    hlutverk talsmanns barns og þau tilvik þegar barni skal ávallt skipaður
    talsmaður. Þá verður barn ávallt aðili að máli sem varðar beitingu
    þvingunar gagnvart því óháð aldri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ein umfangsmesta skipulagsbreyting frumvarpsins felst
    í því að umdæmisráð barnaverndar verði lögð niður og eitt barnaverndarráð
    taki við verkefnum þeirra. Verkefnið færist þannig frá sveitarfélögum til
    ríkis. Barnaverndarráð mun einnig taka við tilteknum verkefnum
    sérfræðingateymis vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Markmiðið er
    að tryggja meiri samræmingu við afgreiðslu sambærilegra mála, skýrari
    stjórnsýslulega stöðu ráðsins og að nauðsynleg sérþekking sé tiltæk óháð
    búsetu barns. Frumvarpið tekur með skýrari hætti en gildandi lög til barna
    með fjölþættar stuðningsþarfir. Um er að ræða börn sem þurfa langvarandi
    og fjölþættan stuðning, eftirfylgd og búsetu utan heimilis vegna flókinna
    og samsettra þarfa. Lagt er til að ákvarðanir um vistun þessara barna fari
    í farveg barnaverndarlaga með aðkomu barnaverndarráðs. Sérhæfð
    vistunarúrræði fyrir hópinn verða skilgreind sem barnaverndarúrræði á
    ábyrgð ríkisins. Með þessu er leitast við að tryggja skýrari ábyrgð,
    samfellda yfirsýn og betri möguleika á sérhæfingu og uppbyggingu
    fjölbreyttra úrræða. Samhliða er lögð áhersla á aukið samstarf
    barnaverndarþjónustu og annarra þjónustuveitenda. Frumvarpið tengist þar
    náið lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að
    barnavernd verði ekki einangrað þjónustukerfi heldur virkur þátttakandi í
    heildstæðri þjónustu við barn og fjölskyldur þess. Ákvæði um samstarf
    barnaverndar og heilbrigðisþjónustu eru einnig styrkt. Lagt er til að
    tryggja börnum sem vistuð eru utan heimilis aðgang að heilbrigðisþjónustu
    og reglubundnum heilbrigðisskoðunum. Þetta er stórkostleg breyting sem á
    sér stað hér í barnaverndarlöggjöfinni og ég vil bara benda sérstaklega á
    hvað við erum að stíga stór skref í allar áttir til þess að taka utan um
    börnin okkar og reyna að koma þannig öryggi og lagaumhverfi í kringum þau
    að þau fái notið þess að vera börn með þeim stuðningi sem þau eiga rétt
    á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í frumvarpinu er líka skýrar fjallað um skipulag
    heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum og aðkomu heilbrigðisstarfsfólks að
    mati á þörfum barna. Í frumvarpinu er einnig lagt til að gerbreyta
    lagaumgjörð um beitingu þvingunar í vistunarúrræðum barnaverndar. Skýrt
    verður hvað telst þvingun, hverjir mega taka ákvarðanir um slíkar
    ráðstafanir, við hvaða aðstæður má beita þeim og hvaða skilyrði þurfa að
    vera uppfyllt. Meginreglan er að þvingun sé óheimil nema skýr lagaheimild
    standi til hennar og nauðsyn beri til og vægari úrræði hafi ekki fundist.
    Jafnframt eru styrkt úrræði barns til að fá ákvarðanir endurskoðaðar,
    hvort heldur hjá úrskurðarnefnd velferðarmála eða fyrir
    dómstólum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Loks vil ég nefna breytingar á ákvæðum um fóstur. Þar er einkum
    horft til réttinda barna, möguleika þeirra á að segja frá aðstæðum sínum
    og skýrara eftirlits barnaverndarþjónustu með fósturheimilum. Lagt er til
    að skyldubundnum heimsóknum á fósturheimili verði fjölgað og að börn séu
    upplýst á barnvænan hátt um réttindi sín og leiðir til að koma sjónarmiðum
    sínum á framfæri. Frumvarpið tekur jafnframt skýrara á málum barna sem
    koma hingað til lands án forsjáraðila og á barnaverndarmálum sem teygja
    sig yfir landamæri. Meginreglan verður sú að mál barna sem eru hér án
    forsjáraðila fari í farveg barnaverndarlaganna. Þá eru lögsögureglur
    skýrðar með hliðsjón af hagsmunum barnsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og ég fjallaði um í upphafi er málið
    endurflutt og tel ég því rétt að fjalla um helstu breytingar sem gerðar
    hafa verið frá því að frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi. Í
    fyrsta lagi hafa ákvæði um réttindi fatlaðra barna verið styrkt. Í
    markmiðsákvæði frumvarpsins er nú sérstaklega vísað til samnings Sameinuðu
    þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en jafnframt er tekið skýrt fram að
    fatlað barn skuli njóta réttinda samkvæmt lögunum til fulls og jafns á við
    önnur börn. Í öðru lagi hafa verið gerðar breytingar á ákvæðinu um
    tilkynningarskyldu fagfólks. Skýrt er að stjórnvöld og stofnanir geti
    ákveðið verklag um að tilkynningar berist í nafni viðkomandi stjórnvalds
    eða stofnunar. Í þriðja lagi hafa kröfur um fagþekkingu innan
    barnaverndarráðs skýrst hér í frumvarpinu og ráðið skal að lágmarki skipað
    félagsráðgjafa, sálfræðingi og lögfræðingi. Þá skal og tryggt að innan
    þess sé þekking á meðferð barnaverndarmála, málefnum fatlaðra barna og
    heilbrigðisþjónustu barna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Breytingar hafa verið gerðar á ákvæðum um stuðningsúrræði eftir 18
    ára aldur. Ég vil segja að það skiptir miklu máli. Við erum að sjá það í
    samfélaginu okkar að ungmenni 18 til 25 ára eru í raun oft að tínast á
    milli kerfa. Þau eiginlega finna sig hvergi. Þau eru ekki nógu gömul til
    þess að vera fullorðin þegar þau eru 18 ára en samt eru þau orðin það
    gömul að þau fá ekki að njóta úrræða sem börn. Það skiptir því miklu máli,
    varðandi þær breytingar sem við erum að gera núna, að markmið breytinganna
    er að skýra betur heimild til að framlengja úrræði, t.d. frá 18 ára til 20
    ára, og á það bæði við um stuðnings- og vistunarúrræði. Það er mjög
    nauðsynlegt að styrkja þetta og skýra þetta, taka af allan vafa í
    barnaverndarlöggjöfinni sjálfri. Tekið er af skarið um að ávallt skuli
    samþætta þjónustu þegar barnaverndarþjónusta hefur tekið við umsjá eða
    forsjá barns. Einnig er skýrt hvenær barnaverndarþjónustu ber að hafa
    samráð við Barna- og fjölskyldustofu við val á vistunarúrræði. Nokkrar
    breytingar hafa verið gerðar á ákvæðum um heilbrigðisþjónustu og beitingu
    þvingunar. Upplýsingamiðlun milli starfsfólks, vistunarúrræðis og
    heilbrigðisstarfsfólks er nú bundin við það sem er nauðsynlegt og er til
    að tryggja velferð barnsins. Skilyrði fyrir töku lífsýna eru jafnframt
    skýrð og aðkoma heilbrigðisstarfsmanna að því að skoða barn sem sætir
    aðskilnaði eða vistun í öryggisrými.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Skýr tímamörk eru sett um upplýsingagjöf vegna beitingar
    þvingunar. Þá eru sett skýrari tímamörk á endurskoðun tiltekinna ákvarðana
    um þvingun. Málsmeðferð úrskurðarnefndar velferðarmála vegna þeirra er
    flýtt og málsmeðferð fyrir dómi vegna takmörkunar á ferðafrelsi barns
    hefur einnig verið einfölduð og henni flýtt. Þetta skiptir allt höfuðmáli
    þegar við erum að tala um velferð barnsins. Barnið á ekki að þurfa að bíða
    eftir þessari þjónustu. Það á aldrei að þurfa að bíða eftir þessum úrræðum
    frekar en nokkru öðru sem við erum að glíma við í dag þar sem börnin okkar
    eru á bið eftir þjónustu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er markmiðið að endurskoðun ákvarðana, bæði hjá stjórnvöldum
    og dómstólum, verði raunhæft og virkt réttarúrræði meðan ráðstöfun stendur
    enn yfir. Þá hefur verið bætt við heimild til að leita á þeim sem
    heimsækja barn í vistunarúrræði og einnig í farangri þeirra. Heimildinni
    er ætlað að koma í veg fyrir að áfengi, vímuefni, vopn eða aðrir
    hættulegir munir berist inn á meðferðarúrræðisstaðina. Slík leit skal
    ávallt framkvæmd með öryggi og velferð barnsins og annarra í úrræðinu að
    leiðarljósi. Gerðar hafa verið breytingar á ákvæðum um fósturleyfi og
    eftirlit. Barna- og fjölskyldustofu verður skylt að gera fósturforeldrum
    og viðkomandi barnaverndarþjónustu viðvart með hæfilegum fyrirvara áður en
    tímabundið fósturleyfi rennur út. Barnaverndarþjónustu verður jafnframt
    skylt að upplýsa Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála um breytingar á
    aðstæðum fósturforeldra sem kunna að hafa áhrif á hvort skilyrði leyfis
    séu áfram uppfyllt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrri gerð frumvarpsins voru lagðar til breytingar á
    útivistartíma barna. Meiri hluti velferðarnefndar taldi rétt að falla frá
    þeim breytingum í þessu frumvarpi og taka málið þess í stað til sérstakrar
    umfjöllunar. Ákvæði um útivistartíma verður því óbreytt frá gildandi lögum
    en fyrirhugað er að leggja fram sérstakt frumvarp um það efni að
    undangengnu víðtækara samráði við börn og aðra hlutaðeigandi aðila. Loks
    hefur verið bætt við ákvæði til bráðabirgða um að ráðherra leggi fyrir
    Alþingi skýrslu um framkvæmd laganna 12 mánuðum eftir gildistöku þeirra.
    Þar skal sérstaklega fjallað um framkvæmd ákvæða um fóstur, eftirlit með
    barnaverndarstarfi og beitingu þvingunar í vistunarúrræðum. Alþingi fær
    þannig tækifæri til að leggja mat á hvernig hin nýja löggjöf reynist í
    framkvæmd og hvort þörf sé á frekari breytingum. Auk þessa hafa verið
    gerðar ýmsar minni háttar breytingar og leiðréttingar sem nánar er gerð
    grein fyrir í frumvarpinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginefni frumvarpsins og
    helstu breytingum sem gerðar hafa verið frá fyrri framlagningu. Að því
    sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að
    lokinni þessari umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>