<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:09:17" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:11:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:09:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar
    yfirferð. Eins og kom fram í máli hennar fór þetta mál ekki í gegn hérna í
    vor og var það einkum og sér í lagi út af andstöðu eða mikilli gagnrýni á
    að fósturkaflinn svokallaði væri ekki tilbúinn. Alvarlegustu
    athugasemdirnar við þetta frumvarp komu einmitt á þann kafla. Meðal
    athugasemda var að það þyrfti að breyta eftirlitshlutverki þannig að ríkið
    kæmi þar sterkar inn; að það væru ekki að einhverju leyti sömu aðilar að
    veita þjónustuna og hafa eftirlit með henni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek t.d. eftir því að í umsögn Barnaverndar Reykjavíkur um
    þetta breytta frumvarp var einmitt lögð áhersla á það og lýst yfir
    vonbrigðum með að ekki skuli hafa verið lögð ríkari áhersla á þátttöku og
    ábyrgð ríkisins varðandi eftirlit með gæðum barnaverndarþjónustunnar
    þannig að þarna væru ljós skil á milli, eins og ég var að lýsa. Það væri
    áhugavert að fá fram hjá hæstv. ráðherra hvað hún telur að þurfi að gerast
    núna. Erum við að fara að taka fósturkaflann sérstaklega og aftur fyrir og
    gefa okkur tíma í það? Hvar telur hún málið statt varðandi þann hluta
    frumvarpsins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>