<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:13:47" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:15:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:13:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar andsvar.
    Þetta snýst um þátttöku og ábyrgð ríkisins í eftirlitinu. Við eigum eftir
    að fara betur yfir það í hv. velferðarnefnd hvernig til hefur tekist og
    hvernig komið hefur verið til móts við þær áhyggjur og umsagnir sem fyrir
    lágu. Af því að við erum líka með þennan málaflokk, börn með fjölþættan
    vanda og fjölþættar stuðningsþarfir, þá kom fram í sumar dálítið hávær
    gagnrýni á þann málaflokk og stöðu hans. Það voru önnur mál í forgrunni í
    sumar og það kom fram gagnrýni frá sveitarfélögunum um að það hefði komið
    fram reglugerð, rúmu ári eftir að samkomulag var gert milli ríkis og
    sveitarfélaga um að ríkið ætlaði að taka að sér þennan málaflokk, þar sem
    var ákveðið mjög einhliða að þrengja skilgreiningu á því hvaða börn falla
    undir þetta. Ég veit að í nýju fjárlagafrumvarpi er verið að bæta aðeins í
    upphæðina en það er augljóslega, samkvæmt því sem sveitarstjórnarfólk og
    Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér núna á miðju sumri, að
    koma þeim í opna skjöldu að reglugerðin sé að þrengja svona málið. Það eru
    mörg sveitarfélög í gríðarlegum vanda og miklar áskoranir sem við þeim
    blasa í rekstri vegna þess hve málaflokkurinn er gríðarlega þungur, eins
    og við þekkjum, og þeim finnst að ríkisstjórnin hafi dálítið gengið á bak
    orða sinna með því að þrengja einhliða þessa reglugerð sem birt var rúmu
    ári eftir samkomulagið sem allir voru svo ánægðir með.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>