<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T17:16:03" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:18:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:16:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Já, eðlilega voru allir mjög ánægðir með þetta
    samkomulag enda stendur það fullkomlega, hv. þingmaður. Það var hálft
    A4-blað þar sem stóð skýrum stöfum að leggja ætti 3 milljarða í þriðja
    stigs þjónustu og eðlilega allir glaðir því þetta kom að frumkvæði okkar
    við stjórnarmyndun, að við skyldum taka utan um þriðja stigs vandann með
    sveitarfélögunum okkar sem væri dýrasti vandinn. Það þýddi ekki að við
    ætluðum að taka til okkar fyrsta eða annars stigs þjónustu
    sveitarfélaganna. Það þýddi ekki að upphæðin yrði hærri en 3 milljarðar.
    Það þýddi ekki að við ætluðum að taka við fötluðum börnum sem eru í
    heimahúsi. Þriðja stigs þjónusta felur í sér þjónustu við börn með þyngstu
    stuðningsþarfir sem þurfa að fá stuðning utan heimilis. Innan heimilis
    höfum við ýmis önnur úrræði, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir, eins og
    NPA-þjónustu og ýmsan annan stuðning við foreldra, fjölskyldur og barnið
    sjálft. En það liggur algerlega fyrir að reglugerðin byggir hundrað
    prósent á því samkomulagi sem var gert í fyrra og þeirri upphæð sem þar
    kemur fram. Sveitarfélögin búa við ákveðnar skyldur gagnvart sínum þegnum
    og þar á meðal er annars stigs þjónusta, fötluðu börnin og sú þjónusta sem
    veitt er í heimahúsi. Ég verð að segja að ég kom nú eiginlega af fjöllum
    þegar þetta var viðrað, ef ég á að segja alveg eins og er. Við höfum
    hingað til gert ýmislegt til að létta undir með sveitarfélögunum og ætlum
    að halda því áfram og eigum í mjög góðu sambandi við þau. En þessi
    útfærsla og urgur er algerlega úr lausu lofti gripinn, fyrir utan það,
    eins og hv. þingmaður bendir á, að á næsta ári munum við vera búin að
    leggja 4,5 milljarða í þennan fjölþætta vanda sem mun í rauninni gera
    ríflega meira heldur en að uppfylla þörfina fyrir fjölda þeirra barna sem
    á þjónustunni þurfa að halda.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>