<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:18:34" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:27:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:18:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta er nú mál sem við komum inn á hér í
    stuttu andsvari, ég og hæstv. ráðherra, og varðar börn með fjölþættan
    vanda. Það er erfitt að afgreiða það í stuttum fyrirspurnum og svörum
    hérna eins og við blasti þannig að ég ætla aðeins að fara nánar yfir það
    mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég skildi hæstv. ráðherra þannig að þetta væri kannski einhver
    misskilningur — ég ætla ekki að leggja hæstv. ráðherra orð í munn — og ég
    upplifði orðin eins og verið væri að standa við stóru orðin, eins og ég
    vil kalla það sjálf. Það voru miklar yfirlýsingar þegar samkomulagið var
    gert og mikill fögnuður í hópi allra sem að þessum málum koma. Þetta snýst
    náttúrlega um þjónustuna við börnin. Þetta snýst um það hver er í færi til
    að fjármagna þessa þjónustu. Við þurfum að ræða um það þannig. Þetta er
    orðin gríðarleg áskorun fyrir sveitarfélögin mörg hver og þessi
    málaflokkur hefur orðið mikil áhrif á rekstur sumra stórra sveitarfélaga.
    Því var því tekið mjög fagnandi þegar samkomulag var gert og mátti leiða
    að því líkur að verið væri að taka málaflokkinn yfir. Vissulega fylgdi með
    síðar að þetta væru ekki öll börnin, það væru ákveðnir einstaklingar sem
    féllu innan einhverra skilgreininga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það sem málið snýst kannski um núna er að í vor kom umsögn frá
    Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Sambandið telur ríkið
    hreinlega brjóta samkomulagið með einhliða þrengingu vegna ónógs
    fjármagns. Það hafi kannski verið búnar til of miklar væntingar og það er
    í sjálfu sér alvarlegt mál. Reykjavíkurborg og fleiri aðilar hafa mótmælt
    þeirri skilgreiningu sem kemur fram í reglugerðinni sem birt var 14 til15
    mánuðum eftir samkomulagið og segja hana mun þrengri en þeir gerðu ráð
    fyrir. Reykjavíkurborg bendir á að stór hópur barna falli utan
    samkomulagsins eftir að reglugerðin var birt án samráðs. Þetta eru bara
    orð Reykjavíkurborgar, sem er náttúrulega langstærsta sveitarfélagið hér á
    landi, en forystumenn þar telja að þetta muni sérstaklega koma niður á
    fötluðum börnum, börnum í fóstri og börnum í hlutavistun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það á því eftir að fá frekari umfjöllun, bæði í nefndinni og
    annars staðar, hvort þetta sé það sem að var stefnt eða hvort um einhvern
    misskilning sé að ræða eins og einhverjir gætu túlkað orð hæstv. ráðherra
    hér áðan. En það eru farnar að berast áhyggjur frá sveitarfélögum vegna
    þessa og við verðum að taka það alvarlega. Þetta snýst um þjónustu við
    börnin, að það verði ekkert rof á henni. Þetta snýst líka um áætlanir
    sveitarfélaganna sem nú eru í sinni fjárhagsáætlunargerð. Auðvitað er
    þetta mjög fjölbreyttur hópur og ástæður þjónustuþarfar mismunandi en við
    eigum örugglega eftir að takast á um þetta eða ræða þetta frekar og reyna
    að átta okkur á hver niðurstaðan verður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nýlega var viðtal birt við einn af bæjarstjórum stóru
    sveitarfélaganna, bæjarstjórann í Kópavogi, Ásdísi Kristjánsdóttur, þar
    sem hún lýsti yfir miklum vonbrigðum með þetta, rétt eins og Samband
    íslenskra sveitarfélaga hafði gert, og taldi þarna um brot á samkomulagi
    að ræða. Það eru stór orð en það er ljóst að sveitarstjórnarfólk hefur
    talið að samkomulaginu hafi fylgt loforð um að taka yfir ábyrgð og
    fjármögnun á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Sérfræðiteymin í
    sveitarfélögunum og annars staðar vita svo sem hvers konar hópar þetta
    eru, þetta eru margvíslegir hópar. En eftir því sem umsagnirnar bera með
    sér er u.þ.b. helmingur barna sem þurfa á þessari þjónustu að halda í raun
    skilinn eftir eftir að þessi reglugerð var birt og kynnt. Við getum tekist
    á um hvort samkomulag hafi verið brotið eða hvort menn hafi verið að túlka
    það á einhvern óréttlátan máta eða hvað það er en burtséð frá því langar
    mig kannski aðeins — ég sé að hæstv. ráðherra er hér enn þá en ég veit
    ekki hvort hún ætlar í andsvör. <ns:frammíkall skst="IngS">Ég fer
    aldrei.</ns:frammíkall> — Nei, þú ferð aldrei.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá langar mig aðeins að fá fram hjá henni viðhorf til þess — af
    því að nú er þetta allt sama fjármagnið, og við erum hér að takast á um
    hvor aðilinn eigi að borga, ríkið eða sveitarfélögin. Þetta eru
    skattpeningarnir okkar. Þetta eru allt sömu börnin. Þetta eru börnin okkar
    sem við viljum að fái viðunandi þjónustu, þótt sveitarfélögin fullyrði, og
    hafi fullyrt þegar þetta blasti við, að nú væru uppi alvarlegar spurningar
    um traust og trúverðugleika ríkisins þegar kemur að því að standa við sína
    samninga. Við getum farið kannski aðeins út fyrir það. Mig langar að fá
    viðhorf ráðherrans ef hún ætlar að koma hér upp í andsvör hvað það varðar
    hvernig hún sér fyrir sér — núna eru átök um hver eigi að borga fyrir
    þjónustuna og hvernig hún sé skilgreind — að við komum þessum málum í
    viðunandi horf; að við séum ekki að rífast um peninga hér og peninga
    þar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað þarf að gera? Börnin eru með gríðarlega mismunandi
    þjónustuþarfir. Það er fötlun og það eru greiningar og það er vímuefna- og
    fíkniefnavandi, geðheilbrigðisvandi og annað slíkt. Þurfum við að
    viðurkenna að um heilbrigðismál sé að ræða og taka þann hluta málsins
    fastar inn í samkomulag ríkis við sveitarfélög út frá þeim forsendum? Hvað
    sér hæstv. ráðherra fyrir sér að við getum gert til þess að bæta stöðu
    barna sem þurfa á svo gríðarlega sérhæfðri þjónustu að halda?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>