<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T17:28:05" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:30:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:28:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég finn að
    hún brennur fyrir málaflokknum og börnunum okkar. En það er mikilvægt að
    hafa í huga að við vorum að taka við verkefnum frá sveitarfélögunum. Að
    eigin frumkvæði vorum við að taka við verkefnum frá sveitarfélögunum. Við
    vorum ekki að leggja neina klafa á sveitarfélögin. Við vorum ekki að bæta
    á sveitarfélögin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Reglugerðin mín frá því í sumar byggist á samkomulagi ríkis og
    sveitarfélaga frá 19. mars í fyrra. Samkvæmt samkomulaginu tekur ríkið
    ábyrgð á mjög fámennum og afmörkuðum hópi barna með fjölþættar
    stuðningsþarfir og í þessu samkomulagi stendur skýrum stöfum að um sé að
    ræða þriggja milljarða króna kostnað fyrir ríkið. Það er mikilvægt að hafa
    í huga að sveitarfélögin bera áfram almenna ábyrgð á málaflokknum og á
    málaflokki fatlaðs fólks, ásamt því að bera ábyrgð á málaflokki fatlaðra
    barna. Afmörkunin er því mikilvæg enda ber að horfa til þess að samkvæmt
    lögum er þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
    algerlega á ábyrgð sveitarfélaga. Það hefur ekkert breyst með þessu
    samkomulagi sem við undirrituðum í mars í fyrra. Kjarni ágreiningsins við
    sambandið lýtur að því að sambandið telur að hópur barna sem er með miklar
    þjónustuþarfir vegna fötlunar sem munu ekki breytast og þurfa sömu
    þjónustu á fullorðinsárum eigi að falla undir þetta samkomulag. Að mati
    okkar er slík túlkun mun víðtækari en sú afmörkun sem lá til grundvallar
    samkomulaginu. Annars höfum við óskað eftir áframhaldandi samtali við
    Samband íslenskra sveitarfélaga um frekari skilgreiningu á því hvaða börn
    teljast vera með fjölþættar stuðningsþarfir. Ég hef sagt frá því að við
    munum meta það fljótlega hvernig reglugerðin reynist okkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað erum við að gera fyrir börnin okkar? Við erum t.d. núna að
    ráðast í afar metnaðarfulla uppbyggingu á fjölþættu meðferðarheimili í
    Garðabæ og ég hlakka mjög til þegar það verður að veruleika. Það mun
    hjálpa okkur mikið að sinna börnunum okkar með fjölþættan vanda sem við
    þurfum að taka utan um utan heimilis.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>