<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:30:42" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:31:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:30:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það
    er ljóst að það á eftir að ræða þessi mál í þaula örugglega nú í vetur og
    í fleiri ár jafnvel, því að þetta er risastórt mál. En mig langar kannski
    að fá viðbrögð — af því að það var hörð gagnrýni og viðbrögð sem komu fram
    í sumar sem ég heyrði ekki viðbrögð hæstv. ráðherra við þá: Skilur hæstv.
    ráðherra samt þessi vonbrigði sem birtast frá sveitarfélögunum og áhyggjur
    þeirra miðað við hvernig fullyrt var og maður man að það voru stór orð
    höfð um að nú væri ríkið að létta á þessu og taka þennan málaflokk til
    sín? Skilur hæstv. ráðherra þau vonbrigði sem núna eru þá að koma
    upp?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>