<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T17:32:05" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:34:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:32:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Veistu
    hvað, hv. þingmaður, nei. Ég skil ekki þau vonbrigði. Ég verð bara að
    segja það hreinskilnislega vegna þess að samningurinn er skýr. Okkur hefði
    verið í lófa lagið að sleppa því að setja þessar 3.000 milljónir í
    málaflokkinn til þess að taka utan um sveitarfélögin okkar og styðja enn
    frekar við þau, vegna þess að þau eru líka misvel í stakk búin og það eru
    mismunandi miklir erfiðleikar hjá sveitarfélögunum okkar við að sinna
    þessari þungu og mjög svo kostnaðarsömu þjónustu. Þannig að þetta var
    algerlega eigið frumkvæði þessarar ríkisstjórnar við stjórnarmyndun að
    taka og leggja þrjá milljarða inn í málaflokkinn á þessu stigi máls. Það
    stendur skýrum stöfum í samningnum. Það á að vera hafið yfir allan vafa
    hvað stendur í þessum samningum. Vonbrigði, það eru alltaf vonbrigði þegar
    ekki er meira fjármagn veitt og þegar ekki er meiri stuðningur. En það er
    ýmislegt annað sem við höfum gert og ég segi ekkert annað en það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einhver frá sambandinu gekk meira að segja það langt að segja að
    þau stæðu jafnvel verr eftir en áður. Ég segi: Við höfum ekki gefið út
    námsbækur hérna í áraraðir og við gætum alveg notað 3 milljarða kr.
    fjárframlag í eitthvað annað ef sveitarfélögin okkar kæra sig ekki um
    þetta og eru svona ofboðslega ósátt. Mér er pínulítið misboðið, ég verð að
    segja það eins og er, vegna þess að ég ætlast til þess að fullorðið fólk,
    og hvað þá fólk í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sé læst á einfalt
    hálft A4-blað um samkomulag sem er algjörlega skýrt. Það fer ekkert á
    milli mála hvað stendur í þessu samkomulagi, hv. þingmaður, ekki neitt.
    Þess vegna kemur þetta mér mjög á óvart og ég skil ekki vonbrigði yfir því
    sem þegar stendur svart á hvítu á þessu blaði, í þessu samkomulagi.
    Reglugerðin mín er eingöngu í takti við þetta samkomulag, hv.
    þingmaður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En eins og ég segi, ef það er eitthvað sem við getum gert frekar
    og í frekara samtali, ef við þurfum að grípa um eitthvað annað en
    raunverulega samkomulagið felur í sér, þá verðum við að gera eitthvert
    annað og nýtt samkomulag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>