<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:38:15" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:40:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:38:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Já, maður er búinn að heyra ýmislegt. Ég hef reyndar
    aldrei heyrt þessa tölu, yfir 100 börn, ég hef aldrei heyrt það. Við vitum
    hvað það er stór hópur sem mun falla undir þetta samkomulag, það eru um 34
    börn sem eru þau sem allra mest þurfa þjónustu og þurfa að sækja hana utan
    heimilis. Það er svona nokkuð skýrt þó að það kunni að vera plús/mínus
    það. En seinni spurningin snýr kannski að þessu: Nú voru það mikil
    vonbrigði að málið náði ekki fram að ganga í vor og ég veit að
    þingmaðurinn veit það, þetta var tæpt, við héldum kannski um tíma að þetta
    myndi sleppa til en þetta þýðir að miklar tafir verða á gildistöku, kominn
    nýr gildisdagur sem er á næsta ári og síðan er talað um að það þurfi alveg
    hálft ár til að standsetja þetta nýja úrræði, ráða fólk og setja kerfið í
    gang. Það þýðir að það verður mjög mikil frestun á því að hægt sé að hefja
    þessa þjónustu í þessum málaflokki, svo ég tali nú ekki um allar aðrar
    breytingar í frumvarpinu sem eiga að taka gildi sem eru gríðarlega margar
    og hafa að gera með málsmeðferð og eftirlit og fósturforeldra og leyfi og
    guð má vita hvað, það er langur listi af þeim breytingum sem tefjast vegna
    þess að málið náði ekki fram að ganga. Mig langar að spyrja þingmanninn:
    Hvernig leið þingmanninum með þessar málalyktir í vor og hvað það þýðir
    fyrir börnin sem þarna eru undir og um ræðir, þ.e. hvað það verða miklar
    tafir á öllum þessum réttarbótum, þessum nýju lagastoðum sem hefðu ella
    komist í framkvæmd núna strax á næsta ári? Það tefst núna vegna þess að nú
    er málið að koma aftur til nefndar. <ns:bjalla/> Ég vil fá að heyra hvað
    þingmanninum finnst um þetta og hvernig henni hefur liðið í sumar með
    þessa staðreynd <ns:bjalla/> því að ég get sagt fyrir sjálfan mig að mér
    hefur liðið mjög illa yfir þessari töf.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>