<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:40:44" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:42:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:40:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="78">
      <ns:málsheiti>barnavernd</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Það kom nú
    skýrt fram í umræðum í nefndinni og víðar og kom fram hjá þeim sem komu
    til fundar við nefndina að það skipti ekki alveg öllu máli, tímasetningin
    til eða frá, einhverjar vikur. En það sýnir sig með þessum viðbrögðum og
    með því hvernig við erum stödd með þetta mál og það mál sem við vorum að
    ræða hérna áðan, börn með fjölþættan vanda, að það borgar sig að vanda til
    verka. Það kom mjög mikil gagnrýni fram á fósturkaflann t.d. — af því að
    við erum að tala um barnaverndarlögin hérna, ekki bara börn með fjölþættan
    vanda, það er í rauninni bara brot af því sem þar er innan — og það kom
    fram hörð ábending um að það ætti ekki, það kom fram í umsögnum, og væri
    mjög bagalegt að ryðja þessu frumvarpi fram með þann hluta málsins eins og
    hann leit út á þeim tíma. Það sýnir sig kannski bara enn frekar núna að
    það borgar sig að vanda til verka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>