<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T17:42:50" skst="IngS" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:55:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:42:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um
    stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
    Tillagan er lögð fram á grundvelli 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í
    þágu farsældar barna og um er að ræða fyrstu heildstæðu stefnu og
    framkvæmdaáætlun íslenskra stjórnvalda á grundvelli laganna. Lagt er til
    að stefnan og framkvæmdaáætlunin gildi í fjögur ár eða til ársins 2030.
    Tillaga um stefnu um farsæld barna til ársins 2035 var fyrst lögð fram á
    156. löggjafarþingi sem 283. mál. Við þinglega meðferð var kallað eftir
    því að framkvæmdaáætlun fylgdi stefnunni og að stefnan gilti í fjögur ár.
    Á 157. löggjafarþingi var því lögð fram tillaga um stefnu og
    framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 sem 579. mál. Málið gekk
    til velferðarnefndar og fékk þar umfjöllun en nefndin lauk ekki afgreiðslu
    þess fyrir þinglok og er tillagan því lögð fram hér að nýju en hún hefur
    verið endurskoðuð frá síðasta þingi. Við endurskoðun tillögunnar hefur
    verið tekið tillit til þeirra mikilvægu ábendinga sem fram komu í
    stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu farsældarlaganna sem
    birt var í júní síðastliðnum sem leiddu til þess að ný aðgerð bættist við
    um farsæld í framhaldsskólum. Aðrar aðgerðir hafa verið útfærðar nánar og
    framkvæmdatími þeirra uppfærður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Meginmarkmið laganna um samþættingu þjónustu í þágu farsældar
    barna er að börn og foreldrar sem á henni þurfa að halda hafi aðgang að
    samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Lögin byggjast á þeirri einföldu
    en mikilvægu hugsun að þjónusta við börn og fjölskyldur eigi ekki að vera
    falin inni í flóknu kerfi heldur eigi hún að vera sem næst barninu sjálfu
    í daglegu umhverfi þess þar sem hægt er að bregðast snemma við. Það er
    kjarni málsins. Barn á ekki að þurfa að bíða eftir því að kerfin tali
    saman. Foreldrar eiga ekki að þurfa að knýja á ótal dyr til þess að finna
    aðstoð. Þjónustan á að mæta barninu þar sem það er statt hverju sinni og
    bregðast við áður en vandinn vex.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tæp fimm ár eru liðin frá því að lögin voru samþykkt á Alþingi.
    Þau fela í sér grundvallarbreytingu á því hvernig við skipuleggjum
    þjónustu við börn og fjölskyldur. Í stað þess að hvert kerfi vinni út af
    fyrir sig eiga þjónustuveitendur að vinna saman með þarfir barnsins að
    leiðarljósi. Árangurinn er þegar farinn að koma í ljós. Í lok apríl á
    þessu ári, 2026, voru yfir 6.100 börn í virkri samþættri þjónustu um land
    allt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það eru 700 tengiliðir farsældar sem starfa í nærumhverfi barna um
    land allt, m.a. á öllum skólastigum og barnanna, á heilsugæslustöðvum og í
    félagsþjónustu. Þetta sýnir að þjónustan hefur færst nær börnunum og
    foreldrum þeirra. Aðgengi að þjónustu er betra og viðbrögð hafa orðið
    markvissari. Þetta eru mikilvægar framkvæmdir en við vitum líka að svo
    umfangsmikil kerfisbreyting verður ekki að veruleika með lagasetningunni
    einni saman. Fólkið sem veitir þjónustuna þarf að þekkja hlutverk sitt,
    verklag þarf að vera skýrt og þjónustan þarf að vera tiltæk. Þess vegna
    þurfum við sameiginlega stefnu og skýra framkvæmdaáætlun um samþætta
    þjónustu í þágu farsældar barna. Hér er hún sem sagt lögð fram í
    dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Þar sem málið er nú endurflutt tel ég rétt að fara
    yfir helstu breytingar sem hafa orðið á tillögunni frá því að hún var lögð
    fram á síðasta þingi. Í fyrsta lagi hafa aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar
    verið uppfærðar og styrktar til að bregðast við ábendingum í úttekt
    Ríkisendurskoðunar frá 10. júní 2026. Það skal tekið fram að þegar
    tillagan var lögð fram á 157. þingi var þegar búið að kortleggja helstu
    áskoranirnar við innleiðingu laganna og voru þær í góðu samræmi við
    ábendingar Ríkisendurskoðunar. Í öðru lagi hefur nýrri aðgerð verið bætt
    við framkvæmdaáætlunina, aðgerð nr. 8, sem lýtur að farsæld í
    framhaldsskólum. Reynslan og ábendingar Ríkisendurskoðunar sýndu að
    tryggja þarf mun betri samfellu í þjónustu þegar ungmenni færast úr
    grunnskóla yfir í framhaldsskóla til að koma í veg fyrir að stuðningur
    rofni og draga úr brotthvarfi. Í þriðja lagi hefur framkvæmdatími aðgerða
    verið færður áfram til áranna 2027–2030 til samræmis við framlagningu
    þingsályktunartillögunnar á þessu löggjafarþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Tillaga sú sem ég tala hér fyrir er sett fram með
    þeim hætti að hún geti nýst sem leiðarljós við alla stefnumótun sem snýr
    að málefnum barna, hvort sem um er að ræða einstaka málaflokka eða
    réttindi barna almennt. Framtíðarsýn stefnunnar grundvallast á því
    markmiði að Ísland verði barnvænt land þar sem réttindi og farsæld barna
    sé í öndvegi, í samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr.
    19/2013.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tillagan hvílir á sex stoðum sem eru þessar: Í fyrsta lagi
    jafnræði. Þar er áherslan á jafnt aðgengi allra að þjónustu og sérstök
    áhersla sett á aðgengi barna í viðkvæmri stöðu. Í öðru lagi barnvæn nálgun
    og þátttaka. Þar er áhersla á að börn hafi raunverulega rödd í málum sem
    þau varða. Í þriðja lagi viðeigandi stuðningur. Þar er áherslan á að
    þjónusta á að vera rétt á réttum tíma og á réttum stað. Í fjórða lagi
    fræðsla, forvarnir og réttindi. Valdefling barna, foreldra og samfélagsins
    alls. Í fimmta lagi að framúrskarandi starfsfólk tryggi stuðning við
    tengiliði máls, stjóra og stjórnendur í öllum þjónustukerfum. Í sjötta
    lagi áreiðanleg gögn sem miða að því að ákvarðanir og forgangsröðun
    byggist á traustum upplýsingum og traustum mælikvörðum. Stoðirnar
    endurspegla þannig grundvallaratriði sem þurfa að einkenna alla þjónustu
    við börn, réttindi allra barna verði að vera virt, þjónustan þarf að vera
    samfelld og hún þarf að vera heildstæð. Sérstaklega verður að gæta að
    börnum í viðkvæmri stöðu því kerfi sem nær ekki til þeirra barna sem mest
    þurfa á stuðningi að halda nær ekki markmiði sínu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Til að tryggja framgang stefnunnar er jafnframt lögð fram
    framkvæmdaáætlun með 16 mælanlegum aðgerðum. Þær snúa að nokkrum þeirra
    verkefna sem brýnast er að vinna áfram að. Ég vil nefna nokkrar þeirra
    sérstaklega: Samfellda miðlun upplýsinga og tæknilausnir. Þá er lögð
    sérstök áhersla á fræðslu og upplýsingar til barna og foreldra, þekkingu á
    réttindum og úrræðum sem er lykilforsenda þess að lögin skili þeim árangri
    sem að er stefnt. Börn og foreldrar þurfa að vita hvert þau geta leitað,
    hvaða stuðningur stendur til boða og hvernig þjónustan á að virka. Því er
    lögð áhersla á að þróa barnvænt fræðsluefni. Stytting biðlista og bættir
    þjónustuferlar, það eru aðgerðir 7 og10.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í framkvæmdaáætluninni er einnig fjallað um kerfislægar hindranir.
    Þar má nefna aðgerðir sem snúa að bættu aðgengi að þjónustu, kortlagningu
    hindrana og leiðum til að stytta biðlista barna eftir þeirri þjónustu.
    Jafnframt er gert ráð fyrir heildarendurskoðun á þjónustuferlum fyrir börn
    með taugaþroskaraskanir. Sérstök áhersla er lögð á að efla sameiginlegan
    skilning og færni þeirra sem starfa með börnum. Við innleiðingu svona
    stórra kerfisbreytinga er lykilatriði að þjónustuveitendur þekki skyldur
    sínar og starfi út frá sameiginlegri sýn. Þess vegna er annars vegar gert
    ráð fyrir aukinni fræðslu, stuðningi og handleiðslu af hálfu Barna- og
    fjölskyldustofu og hins vegar markvissri fræðslu fyrir stjórnendur innan
    menntakerfisins, félagsþjónustunnar og heilbrigðiskerfisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan kemur hér farsæld í framhaldsskólum, aðgerð 8. Í lokin vil
    ég minnast á eina aðgerð sem er ný en hún snýr að því að efla samþætta
    þjónustu í framhaldsskólum. Aðgerðin er bæði viðbragð við ábendingum sem
    bárust við þinglega meðferð málsins og ábendingu Ríkisendurskoðunar um
    skort á samfellu þegar börn færast úr grunnskóla í framhaldsskóla.
    Verkefnið er brýnt þar sem núverandi farsældarkerfi nær ekki jafn skýrt
    til framhaldsskólaaldurs og til yngri skólastiga. Þar þarf að tryggja
    betri samfellu í þjónustu þegar börnin flytjast á milli skólastiga og efla
    tengsl framhaldsskóla við heilbrigðis- og félagsþjónustu. Með því er hægt
    að bregðast fyrr við vanda framhaldsskólanema og draga úr
    brotthvarfi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Með þessari stefnu og framkvæmdaáætlun setjum
    við skýran ramma um næsta áfanga innleiðingar farsældarlaganna. Við festum
    í sessi þá sýn að þjónustan skuli vera nær barninu, að brugðist skuli fyrr
    við og að stjórnvöld vinni saman með markvissum hætti. Aðgerðirnar þurfa
    að vera mælanlegar, tímasettar og fjármagnaðar. Annars verða góð áform
    ekki að raunverulegum umbótum í lífi barna. Við berum sameiginlega ábyrgð
    á því að þjónustan virki fyrir hvert barn, óháð því hvar það býr eða hvaða
    aðstæður það býr við. Fjárfesting í farsæld barna er réttlætismál gagnvart
    börnunum sjálfum. Hún er jafnframt skynsamleg fjárfesting í samfélaginu,
    því snemmtækur og samfelldur stuðningur getur komið í veg fyrir að vandi
    vaxi og verði erfiðari viðureignar síðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar af þessu tilefni að segja ykkur frá því pínulítið, hv.
    þingmenn, þeir sem á hlýða og frú forseti, að þegar ég kom inn í barna- og
    menntamálaráðuneytið og var að kynna mér farsældarlögin og markmið þeirra
    þá fannst mér þetta vera óttalega flókið og snúið og ég var ekki alveg að
    ná utan um það. Það tekur tíma að átta sig á því þegar svona mikið og
    stórt mál er í mótun hvernig það raunverulega virkar. Síðan hef ég fengið
    í heimsókn til mín í ráðuneytið frá aðilum sem búa bæði á Vestfjörðum,
    Akranesi og fleiri stöðum þar sem hefur gengið ótrúlega vel að innleiða
    þessa farsæld, þar sem mikill árangur hefur náðst. Þar sem börnin eru
    gripin strax, þau þurfa ekki að bíða, þau eru ekki að þvælast á milli
    kerfa, það er ekki verið að bíða í þrjá mánuði eftir að það sé gripið inn
    í. Nei, það er gert strax og ekki nóg með það. Þetta hefur komið í veg
    fyrir mýmörg ný barnaverndarmál. Þá þótti mér mjög athyglivert að á meðan
    börnin voru að þvælast á milli, eins og hefur verið fyrir inngildingu og
    innleiðingu farsældarinnar, hafa börnin og fjölskyldur þeirra algjörlega
    lent í því að mál hafa ratað til barnaverndar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi breyting sem við erum að verða vitni að hér og nú, eins og
    ég segi við alla mína góðu félaga í hvaða flokki sem þeir standa: Farsæld
    barnanna okkar og allt það sem lýtur að framtíðinni og börnunum okkar á að
    vera hafið yfir pólitík, það er hafið yfir alla pólitík. Það er mín
    bjargfasta trú og þar slær mitt hjarta og mér er sama, ég segi bara að við
    tökum saman höndum hvar í flokki sem við stöndum. Það eru risaáskoranir
    gagnvart börnunum okkar sem við erum með í fanginu, risaáskoranir og ég
    trúi því af öllum mætti að saman getum við tekið algjörlega á þessum
    málum, hvort heldur sem lýtur að erfiðleikum barnanna okkar í náminu,
    þeirra sem í rauninni hafa ekki verið að skora nógu hátt í nýútkominni
    PISA-könnun, hvað eina annað sem er. Við getum þetta. Ég veit það og ég
    trúi því af öllu hjarta. Núna þegar ég hef gert grein fyrir meginefni
    tillögunnar legg ég til að henni verði að þessari og síðari umræðu lokinni
    vísað til hv. velferðarnefndar og að við séum í rauninni tilbúin til að
    taka saman höndum og gera hlutina eins fallega og við getum mögulega gert
    fyrir framtíð barnanna okkar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>