<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T17:55:19" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 17:57:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T17:55:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ræðu
    hérna sem var innblásin eins og við mátti búast. Farsældarlögin eru
    einstök og í þeim er meginstefið að grípa snemma inn í hjá barni sem á í
    vanda og sem hægt er að spá fyrir um kannski strax frá mjög ungum aldri að
    geti átt í vanda, annaðhvort námslega eða félagslega eða á annan hátt. Það
    er hugsunin og það er ánægjulegt að segja frá því að í því sveitarfélagi
    sem ég bý í og hef komið aðeins nálægt þá var einmitt byrjað með þessa
    hugsun inni í kerfi sem hét Brúin og gafst vel þar sem farið var markvisst
    í það að skima eftir slíku strax á leikskólaaldri. Má segja að
    farsældarlögin séu svolítið byggð á því að leggja áherslu á þessa
    snemmtæku íhlutun sem er svo mikilvæg til að koma í veg fyrir vanda og
    taka strax á málum þar sem grunur leikur á að geti orðið vandamál áður en
    það verður allt of stórt þannig að það sé jafnvel orðið
    illviðráðanlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra nefndi mælingar hérna í ræðu sinni. Nú er þetta
    búið að vera við lýði hér í fimm, sex ár. Það eru farsældarfulltrúar um
    allt land og öll sveitarfélög og svæði hafa verið að setja sig í
    stellingar til að reyna að vinna út frá þessum nýju lögum. Hafa verið
    gerðar einhverjar mælingar hingað til á því hvernig til hefur tekist, af
    því að nú er komið nokkurra ára tímabil sem vert væri að skoða?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>