<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:00:00" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:02:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:00:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Ég er
    sammála því að þetta er risastórt mál. Þetta er risastórt mál í
    samfélaginu öllu, að passa upp á börnin og gera allt hvað hægt er til að
    leysa vanda barna, sama af hvaða toga hann getur verið. Hér er talað um að
    við þurfum að grípa inn í mjög snemma, strax á leikskólaaldri, og gengur
    þessi hugsun um snemmtæka út frá því. Það er svo gaman og gefandi að ræða
    þessi mál við hæstv. ráðherra sem talar um þennan málaflokk af svo mikilli
    innlifun. Mig langar til að fá mat hennar á því hvort við sem samfélag
    ættum í rauninni að byrja enn fyrr, því að þetta er risastórt
    samfélagslegt verkefni. Við erum að tala um að grípa inn í á
    leikskólaaldri. Rannsóknir hafa gefið til kynna að fyrstu 1000 dagarnir í
    lífi barns — ég var að segja það hérna áðan þegar hæstv. ráðherra var
    aðeins upptekin, að það er svo gaman að fá tækifæri til að ræða þessi mál
    við hæstv. ráðherra, sem er í þessu af svo mikilli innlifun af því að
    þetta er samfélagsleg áskorun og risastórt mál, hvort við sem samfélag
    ættum að leggja meiri áherslu á það að byrja á því jafnvel ekki í
    leikskóla heldur enn fyrr hvað svona félagsmótun og tilfinningar varðar og
    annað sem skiptir svo miklu máli. Hvort hún hafi kynnt sér rannsóknir eða
    þekki til þeirra um fyrstu 1000 dagana í lífi barns, hvað þeir skipta
    miklu máli. Gæti það ekki verið verðugt verkefni að hvetja til þess að við
    gæfum því tímabili líka gaum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>