<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:04:44" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:15:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:04:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við ræðum hér um þingsályktunartillögu um farsæld. Ég
    vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, fyrir innblásna ræðu og
    ástríðu sem leynir sér ekki, sem er alltaf gott að hafa í störfum, hver
    sem þau eru. Þegar Alþingi samþykkti lögin um samþættingu þjónustu í þágu
    farsældar 2021 var markmiðið bæði gott og mjög mikilvægt. Ráðherra fór
    yfir það hér að fólk hefur oft lent í ákveðnum frumskógi ef það koma upp
    einhver mál þar sem foreldrar þurfa aðstoð kerfisins. Menn leita hingað og
    þangað og rekast á veggi og er kastað fram og til baka en þessi lög um
    farsæld áttu að hjálpa til með það að samþætta þjónustuna þar sem
    foreldrar geta þá farið á kannski einn stað, hitt eina manneskju sem
    hjálpar til við að greiða úr þessari flækju og minnka það álag sem
    venjulega er á þessum heimilum þar sem staðan er ekki alveg eins og hún á
    að vera, þannig að hugmyndin er góð, kerfin tala saman, þjónustan samfelld
    og grípa barnið eins snemma og hægt er. Þetta hljómar allt vel en það þarf
    bara að framkvæma það. Ég held að enginn sé ósammála því að þetta sé góð
    hugsun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú eru liðin tæp fimm ár frá því að lögin voru samþykkt og við
    verðum að spyrja þessarar spurningar: Hafa börn fengið betri þjónustu? Til
    að vita það þá þurfum við að vita hvert þjónustustigið var áður en lögin
    tóku gildi og síðan: hver er staðan núna, og bera þetta saman því að það
    er ekki bara fjöldi sem skiptir máli, það er árangurinn hjá hverju og einu
    barni. Ég kem kannski að því síðar en sjálfur vann ég náttúrlega í þessu
    kerfi sem bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri og hitt og þetta innan
    skólakerfisins. Í þeim skólum þar sem staðan var góð áður en
    farsældarlögin komu að þá skapaði þetta ákveðna flækju og menn þurftu að
    fara að búa til farsældarteymi og alls konar slíkt þegar kerfið virkaði
    bara mjög vel. Auðvitað er það kannski eðli þess þegar menn innleiða svona
    stórar breytingar að það gerist alltaf af og til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En við verðum að spyrja hvort börnin séu betur stödd núna en áður
    og hafa þá mælikvarða fyrir og eftir og jafnt og þétt einhverjar vörður og
    mér heyrist ráðherra vera að tala um það núna að reyna að koma því á og ég
    vona að það gerist fyrr en síðar. Hafa biðlistar styst? Fá börn þjónustu
    fyrr? Er auðveldara að fá aðstoð? Hefur álag á foreldra minnkað? Hefur
    líðan barna batnað? Það virðist vera sem við vitum ekki alveg svörin við
    þessu og það er ekki bara ég sem stend hér sem spyr um þetta,
    Ríkisendurskoðun birti nú í júní stjórnsýsluúttekt sem hæstv. ráðherra
    vísaði í hér áðan um innleiðingu og framkvæmd þessara laga. Ég veit að það
    gerðist ekki á vakt hæstv. ráðherra en samt, núna eru liðin tvö ár af
    kjörtímabilinu og Ríkisendurskoðun segir að miðað við núverandi stöðu séu
    ekki fyrir hendi fullnægjandi forsendur til að ná meginmarkmiði
    farsældarlaganna. Það eru ekki forsendur til að ná meginmarkmiðinu. Þetta
    er alvarlegt, þungur dómur. Meginmarkmið laganna er einmitt að börn og
    foreldrar sem þurfa aðstoð hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án
    hindrana og Ríkisendurskoðun segir að forsendurnar séu ekki
    fullnægjandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í framhjáhlaupi langar mig að nefna að innleiðing farsældarlaganna
    hingað og þangað um landið er mjög misjafnt á veg komin og jafnræði þar
    lítið sem ekkert. Á sumum stöðum er það mjög stutt komið en annars staðar
    gengur þetta miklu betur. Hæstv. ráðherra nefndi hér einstaka dæmi sem
    gengur vel og það er gott.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En gagnrýni Ríkisendurskoðunar gengur lengra og nefnir það sem ég
    var að tala um áðan, með leyfi frú forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/farsaeldarlog_2_30_6_25.pdf-->

    <ns:mgr>„Skilgreina þarf hlutlæga árangursmælikvarða“ svo það sé hægt að
    meta hvort ávinningurinn sé af þeirri kerfisbreytingu sem lögin fela í
    sér. Hlutlæga árangursmælikvarða. Þetta er í rauninni nákvæmlega það sama
    og ég veit að hæstv. ráðherra er að berjast við í menntakerfinu. Ég veit
    að hæstv. ráðherra er áfram um þetta. Ég veit það. Ég held að þingsalurinn
    hér allur, óháð flokkum, sé áfram um þetta og alger óþarfi að fara í
    einhverjar skotgrafir vegna þessa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er kannski dæmigert íslenskt að ákveðnu leyti. Við fórum af
    stað með eina umfangsmestu kerfisbreytingu síðari ára í þjónustu við börn.
    Hún hefur verið innleidd frá ársbyrjun 2022 en tæpum fimm árum síðar segir
    eftirlitsstofnun Alþingis að skilgreina þurfi mælikvarðana sem gera okkur
    kleift að vita hvort kerfisbreytingin hafi skilað ávinningi. Já,
    þjónustuþegum hefur fjölgað en það metur ekki beinan árangur. Það metur
    einungis fjöldaaukningu. Auðvitað eru einstakar dæmisögur um góð tilvik en
    það var líka löngu áður en þessi lög tóku gildi. Það var fullt af alls
    konar sigursögum um allt kerfi, hjá sveitarfélögum og skólum, á svæðum sem
    þetta gekk allt vel. Spurningin er: Hefur þessi kerfisbreyting með þessari
    nálgun skilað árangri? Ríkisendurskoðun segir að það sé ekki hægt að
    staðfesta það og grundvallarforsendurnar séu ekki til staðar. Það er
    alvarlegt og ég veit að ráðherra hefur örugglega áhyggjur af því. Ef við
    mælum ekki árangurinn hlutlægt þá vitum við ekki nákvæmlega hvað virkar og
    hvað ekki og hvernig við eigum að forgangsraða fé, því það er hægt að
    veita fé inn í eitthvað sem virkar aldrei, kaupa stærra og stærra sigti
    til að ausa vatni. Það gerist ekkert. Gullhúðað sigti — skiptir engu máli,
    það eys ekki vatni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þingsályktunartillögunni sem um ræðir hér — ég sé að tíminn
    líður það hratt að maður hefur ekki tíma til eins né neins hér — er sagt í
    aðgerð 16 að lagt sé til að meta eigi árangur af fyrstu fimm árum
    samþættingar og það eigi að byggja á gögnum og fara í frekari rannsóknir.
    Þetta er ágætt en þetta á að gerast á árunum 2027 og 2029. Við innleiddum
    þetta í ársbyrjun 2022 og þetta eru vinnubrögð sem ég segi að við
    Íslendingar eigum að láta af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég spyr, og ég veit að hæstv. ráðherra ber ekki ábyrgð á því hvers
    vegna árangursmælikvarðarnir voru ekki til frá upphafi: Hvers vegna voru
    ekki mælingar í upphafi og svo þegar verkefnið fer af stað? Það væri
    eðlilegt. Við erum að fara með skattfé hér og ofboðslega mikinn tíma alls
    konar fólks innan kerfanna. Þó að hugmyndin sé góð og viðleitnin sé góð
    hafa vinnubrögðin ekki alltaf verið upp á það besta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í aðgerð 7 á að gera þarfagreiningu á því hvað helst skorti í
    þjónustu og stuðningi við börn — það er 2026 núna, mitt ár, rúmt, að
    klárast — jafnframt að kortleggja biðlista þar sem börn eru að bíða eftir
    lögbundinni þjónustu og leita lausna til að vinna á þeim.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla nú að skauta hér yfir eitthvað, ég sé að tíminn líður svo
    hratt. Það er ekki hægt að samþætta þjónustu sem ekki er til staðar. Hægt
    er að hafa tengilið, málstjóra, stuðningsteymi og farsældarráð og
    sameiginlega verkferla en ef barnið þarf á sálfræðiþjónustu að halda og
    bíður mánuðum saman leysir einhver fundur ekki þann vanda. Þetta þekki ég
    bara úr mínum störfum. Það kemur eitthvað upp og ef skólinn getur ekki
    unnið með það þá þarf að vera hægt að bregðast við einn, tveir og þrír því
    annars er í raun oft allt heimilið alveg hertekið af einhverjum vanda því
    að foreldrar þekkja að ef börnunum þeirra líður ekki vel og það er einhver
    óvissa í gangi í kringum þau þá er fólk jafnvel oft óvinnufært, sem er
    vont.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég kemst ekki að því í ræðu minni sem mig langaði bara að nefna í
    lokin sem er það að fyrirbyggja þetta allt saman, reyna að fækka þessum
    tilfellum og það gerist með því að við einbeitum okkur að sérstaklega
    fyrstu tveimur, þremur æviárunum þar sem við byggjum upp sterk félagsleg
    tengsl, þar sem börn læra að hafa stjórn á tilfinningum sínum, tengjast
    fólki, <ns:bjalla/> félagsfærni eykst og orðaforði eykst. Það er til
    mikils að vinna og ég veit að hæstv. ráðherra er til í að vinna þá vinnu
    og ég vona að við getum gert það í sem mestri sátt og samlyndi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>