<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T18:15:19" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:17:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:15:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu, Jóni Pétri
    Zimsen, og auðvitað slá hjörtu okkar í takt í þessum málum eins og í
    menntamálunum. Ég segi bara að það sem kemur fram í athugasemd
    Ríkisendurskoðunar nú í sumar, þar sem hann talar um að miða við núverandi
    stöðu, það er þáverandi staða. Við tókum strax til óspilltra málanna
    þannig að núverandi staða er öll önnur og við erum búin að bregðast við
    þeim ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði. En mig langar, hv. þingmaður,
    til að segja að í lok apríl 2026 voru 6.112 börn í virkri samþættri
    þjónustu samanborið við 4.669 á sama tíma árið áður. Við erum með ákveðin
    gögn, þó svo að ég geti tekið undir það með hv. þingmanni að þetta hökti
    heldur betur í gang. Þetta hökti en það er ýmislegt sem höktir svona til
    að byrja með þegar um stórar kerfisbreytingar er að ræða. En núna eru öll
    tannhjólin að smyrjast og komið mismunandi áleiðis úti um landið, en þó
    svo. Ég er hérna með ákveðnar tölur sem sýna að Farsældarráð Suðurnesja
    þróaði t.d. farsældarvísi til að meta árangur innleiðingar laganna.
    Vísirinn byggist á 91 vísi úr Íslensku æskulýðsrannsókninni um líðan og
    stöðu barna og bendir til þess að líðan hafi batnað í öllum aldurshlutum
    frá upphafi innleiðingar farsældarinnar. Lífsánægja hefur aukist að mati
    barnanna, hlutfall barna sem finna fyrir kvíða hefur lækkað úr 34% í 28%
    frá 2023, hlutfall þeirra sem segjast hafa leyst vandamál sín hefur hækkað
    úr 42% í 52% og hlutfall barna sem skrópa í skóla hefur lækkað úr 30% í
    20%. Allt eru þetta jákvæðar vísbendingar um að líðan barna sé á uppleið
    og það kemur einnig fram í PISA-könnuninni okkar frægu þar sem lífsánægja
    íslenskra barna er sú þriðja hæsta meðal þessara landa, þannig að áfram
    veginn. Mér sýnist, hv. þingmaður, að við séum bara með bjart fram
    undan.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>