<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:17:37" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:19:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:17:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það var kannski ekki bein spurning í andsvari hæstv.
    ráðherra. Hann nefndi hér annaðhvort Reykjanesbæ eða Suðurnesjabæ, að þar
    hefði mælst hjá landlækni bæting á líðan barna. Það er ágætt og bara
    frábært en við þurfum þessa hlutlægu mælikvarða. Þetta er okkur víti til
    varnaðar hvernig við förum af stað, að það sé ekki tekin einhver staða
    áður en við leggjum af stað. Við vitum hvar við erum stödd þá og svo
    skoðum við hvernig málinu fram vindur. Það er magnað að segja frá því að
    staðan víða um land fyrir farsældina var mjög misjöfn og staðan í skólum
    var misjöfn. Farsældin ætti þá að vera til samræmingar og til jafnræðis og
    vonandi verður hún það undir forystu hæstv. ráðherra. En það skiptir máli
    að við vörðum leiðina og mælum hvað gengur og hvað gengur ekki þannig að
    við forgangsröðum fé þangað sem best nýtist. Svo er það að byrja strax
    þegar barn er í móðurkviði að styrkja foreldrana, styrkja þá til að hafa
    góð og mikil tengsl við barnið sitt. Það er líklegast ein mest
    fyrirbyggjandi aðgerð sem hægt er að fara í hvað öll lífsgæði barna
    varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>