<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T18:19:49" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:21:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:19:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir síðara svar
    við engri fyrirspurn. Mig langaði til að koma með nokkrar dæmisögur,
    sannar sögur úr kerfinu okkar, af því að ég veit að hv. þingmaður brennur
    fyrir því að fá að vita hvernig það er að reynast. Saga hér af tíu ára
    barni sem átti foreldra sem voru að skilja. Barnið var í erfiðleikum en
    ekki komið í alvarlegan vanda. Tengiliður í skólanum gaf því tíma til að
    segja frá, foreldrarnir fengu viðtal og stuðning, kennarar, námsráðgjafi
    og knattspyrnuþjálfarinn voru upplýstir, engin barnaverndarkönnun, enginn
    djúpur vandi, bara réttur stuðningur á réttum stað og réttum tíma. Barnið
    orðaði það sjálft: Ég er miklu öruggari núna. Ég veit við hvern ég á að
    tala.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Önnur lítil saga: Drengur með staðfestar fötlunargreiningar flutti
    til Árborgar og byrjaði í sínum þriðja grunnskóla á Íslandi. Foreldrarnir
    töluðu hvorki íslensku né ensku. Áður hefði slíkur flutningur þýtt margra
    mánaða þjónusturof en nú fluttust greiningargögnin og þjónustuáætlanir með
    á milli sveitarfélaga fyrir fram. Skólaþjónusta, frístundaakstur og
    einstaklingsstuðningur voru tilbúin á fyrsta skóladegi og túlkunin tryggði
    að foreldrarnir sætu við borðið. Fjölskylda með fleiri en eitt barn með
    miklar stuðningsþarfir átti áður í samskiptum við fjölda þjónustuaðila í
    mörgum samhliða ferlum. Einn málstjóri tók yfir heildarmyndina,
    tvíverknaður hvarf og álagið á foreldrana léttist.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er raunveruleg hagræðing. Dæmi eru um færri óþarfafundi og
    að mál séu leyst á fyrsta eða öðru þjónustustigi svo að barnavernd geti
    einbeitt sér að þyngstu málunum. Þetta eru raunverulegar sögur af því
    hvernig farsældin okkar virkar þar sem hún er að virka þannig að ég segi:
    Hv. þingmaður, getum við ekki verið sammála um að þetta sé í rauninni
    frábært? Þarna kom ég nú með eina smá létta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>