<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:21:56" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:24:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:21:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og jú, það kom spurning:
    Er þetta ekki frábært? Ég get bara tekið undir að þetta er alveg frábært
    og fallegar sögur. En ég get sagt það fullum fetum að þessar sögur voru
    alveg til áður en farsældarlögin komu til, að þegar eitthvað kemur upp á,
    eins og hún nefnir, skilnaður eða eitthvað slíkt, þá sé tekið á því bara í
    skólanum, talað við íþróttafélagið í hverfinu og jafnvel kirkjuna og
    höndum tekið saman utan um barnið, og þá var enginn aukakostnaður. En
    sögurnar eru góðar og ég held að farsældin geti verið góð sem svona
    samþættingar- og samræmingarbatterí.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er eitt sem mig langar að benda á sem skiptir miklu máli og
    það er að þegar við erum t.d. í skólum, leik- og grunnskólum eða öðrum
    stofnunum, félagsmiðstöðvum og íþróttafélögum, séu allir starfsmenn þar
    undir. Það sé ekki bara einn starfsmaður sem beri ábyrgð á einhverjum
    tengslum við barnið heldur finni barnið að það séu allir fullorðnir á
    svæðinu sem það getur leitað til, að menningin á staðnum sé ekki þannig að
    þegar eitthvað kemur upp og barnið leitar til einhvers fullorðins sé sagt:
    Nei, þetta er ekki ég, farðu þangað — heldur sé barninu tekið opnum örmum.
    Hættan við eitthvað svona eins og við erum að hugsa með farsældarfulltrúa
    er sú að það verði ákveðin firring ábyrgðar. Maður hefur séð það í alls
    konar verkefnum að þegar einhver einn á að bera meiri ábyrgð þá firra
    aðrir starfsmenn sig meiri ábyrgð. Þetta er ekkert algilt en það er hætta
    á þessu. Besta menningin innan skólanna er þegar allir eru ábyrgir fyrir
    farsæld allra barna og láta sig öll börn varða, alltaf, ekki einhverjir
    fáir útvaldir heldur allir. Vonandi verður andi farsældarlaganna þannig,
    þrátt fyrir að það sé einhver einn sem er mögulega í tengslum við aðra
    aðila úti í bæ og samþætti síðan vinnuna með þeim.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>