<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:24:18" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:34:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:24:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Maður getur ekki sleppt því að taka umræðu um
    farsældina, ég tala nú ekki um þegar hæstv. ráðherra tekur þátt í
    umræðunni. Þetta er náttúrlega stóra málið og eins og við höfum rætt í dag
    og áður þá eru börnin okkar, námsárangur, líðan og allt þetta. Þetta er
    náttúrlega allt svo samtengt, tengist allt inn í farsældina og inn í það
    samfélag sem við viljum byggja hér upp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég nefndi hérna áðan í andsvari við hæstv. ráðherra þá
    byrjaði þetta verklag sem farsældin gengur út á í Hafnarfirði 2018 sem
    nokkurs konar tilraunaverkefni. Það var líka tekið sem ein helsta
    fyrirmyndin hér á landi í snemmtækri íhlutun og stuðningi við börn og
    fjölskyldur. En hugsunin var einmitt að brjóta þessa múra sem við höfum
    verið svo föst í milli kerfa, skólakerfisins, félagsþjónustunnar og
    barnaverndar, til að grípa börn miklu fyrr en verið hafði og búa til
    möguleika á að veita líka fjölskyldum aðstoð. Þetta er ekki bara að koma
    og grípa inn í heldur kemur í ljós þegar þetta verklag byrjar í
    Hafnarfirði að það er ekki síst að þarf stuðning og aðstoð til foreldra
    barna og meta það hvar þurfi að grípa inn í að því leyti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég veit til þess að á allra fyrstu árunum skilaði þetta mjög góðum
    árangri, m.a. komu áþreifanlega færri mál t.d. til barnaverndar. Mál sem
    koma inn til barnaverndar eru eðli málsins samkvæmt orðin alvarlegri en
    önnur inngrip. Það dró þannig úr þörfinni á þungum og formlegum
    barnaverndarmálum, sem er náttúrlega mjög gott og barninu fyrir bestu. Það
    var áþreifanlega minni krafa um greiningar á börnum. Með þessu verklagi
    tókst að flýta því að börn fengju viðeigandi aðstoð og þar fram eftir
    götunum. Þannig að þetta byrjaði allt mjög vel og það var mjög
    áþreifanlegt að þetta væri að virka vel. Svo tóku farsældarlögin yfir í
    þessu bæjarfélagi sem ég er að ræða og það var ákveðið flækjustig sem átti
    sér stað í upphafi en fólk var sæmilega fljótt að yfirstíga það. En ég tek
    undir það sem hér hefur komið fram og bent hefur verið á að það er
    mikilvægt að gera mælingar á því hvernig til hefur tekist.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er einmitt áhugavert líka að taka þetta dálítið lengra í
    umræðunni, finnst mér, og ég er ánægð að heyra að hæstv. ráðherra tekur
    undir það — farsæld barna, vellíðan barna, árangur barna, er eitthvað sem
    við getum og vitum auðvitað að við leggjum grunn að miklu fyrr en þegar
    það kemur í skóla, hvort sem er í leikskóla, grunnskóla eða menntaskóla.
    Rannsóknir sem við nefndum áðan og hefur verið sýnt fram á að skipti mjög
    miklu máli fyrir félagsleg tengsl og tilfinningatengsl og líðan og
    framhald lífs hjá barni eru einmitt strax frá getnaði og það var
    ánægjulegt að heyra að ráðherrann tekur undir það og þetta er umræða sem
    við eigum kannski að taka aðeins annan stað. Það hefur verið viðkvæðið að
    alltaf að kalla eftir sem lengstu leikskólaplássi og slíku. Það hefur
    reyndar verið að breytast með ákveðnum aðgerðum hjá sveitarfélögunum þar
    sem vinnudagur barna hefur verið jafnvel lengri en hjá fullorðnum. Með
    ákveðnu nýju kerfi sem tekið hefur verið upp í sumum sveitarfélögum hefur
    verið hvatning til þess að foreldrar hafi börnin skemmri dag í vistun
    a.m.k. nokkrum sinnum í viku heldur en var og það er gert í gegnum svona
    kostnað og greiðsluþátttöku. Það hefur reynst vel. Það hefur komið í ljós
    að mjög margir foreldrar, sem betur fer, hafa getað nýtt sér það. Slíkar
    aðgerðir mættu mikilli gagnrýni í upphafi og voru taldar koma niður á einu
    kyninu frekar en öðru, að vera alltaf sá aðili sem þarf að stytta
    vinnudaginn sinn til að sækja barnið. Það er svona þessi hugsanagangur sem
    ég held að við þurfum að komast yfir. Heimgreiðslur sem sum sveitarfélög
    hafa tekið upp hafa líka heldur betur fengið mikla gagnrýni og hérna,
    afsakið hérna smá truflun í tölvutækninni hjá mér — og fengið mikla
    gagnrýni á þessum forsendum, að það ýtti frekar einu kyninu til að vera
    heima með barnið lengur en annars og eins og það væri eitthvað neikvætt.
    En auðvitað gerir maður sér fulla grein fyrir því að það eru ekki allir
    sem geta nýtt sér styttri leikskóladag eða heimgreiðslur eða slíkt, en að
    geta boðið upp á þetta, tel ég skipta máli og við eigum að tala um þetta
    út frá því líka hvað barninu er fyrir bestu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar svona að nefna aðeins það sem ég kom inn á fyrr í
    dag í störfum þingsins. Þá fór ég aðeins yfir skólamálin. Hæstv. ráðherra
    er barna- og menntamálaráðherra og við erum að ræða hérna farsældarlögin
    og þetta tengist allt svo heldur betur. Líðan og árangur barna helst í
    hendur oft og tíðum, oftast, og við höfum verið að ræða og skoða hvað við
    getum gert og hæstv. ráðherra hefur lagt mikið á sig og boðað ýmsar
    aðgerðir og farið í breytingar sem ég styð flestar held ég heils hugar.
    Oft hefur verið litið til þess hvað hefur verið gert á Norðurlöndunum eins
    og í Finnlandi eða þá í Evrópu, eins og í Eistlandi, þar sem gengið hefur
    vel í skólanum og við höfum svolítið verið að líta þangað og rætt hvort
    við ættum ekki að læra af þeim. Það er verið að grípa hluti héðan og þaðan
    og ræða hvað við eigum að fara út í til að bæta námsárangur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tók dæmi, fór aðeins út úr Evrópu og tók dæmi af ríki í
    Bandaríkjunum, leit til Mississippi sem fyrir 12–13 árum var í 49. sæti
    meðal 50 ríkja Bandaríkjanna í lestrarfærni. Það var ákveðið að grípa til
    róttækra aðgerða og það var farið mjög markvisst ákveðna leið til þess að
    breyta lestrarkennslu og öllu viðmiði og slíku í kerfinu. Það hefur tekist
    svo vel til, þessar breytingar sem þeir gerðu, að nú er viðkomandi ríki
    komið í níunda sæti. Það hefur færst upp um 40 sæti á nokkrum árum við það
    að fara í gegnum þessa hluti og ég nefndi einmitt líka að þeir hafa líka
    dálítið verið róttækir, vil ég segja, í því að þeir setja ákveðin skilyrði
    í lestrarfærni barns eftir þriðja bekk. Nái barnið ekki tilteknum
    skilyrðum um lestrarfærni fær það aðstoð um sumarið, endurtekið jafnvel
    sumarið eftir lokapróf, við það að reyna að ná þessum viðmiðum. Gerist það
    ekki fer barnið ekki í 4. bekk, það fer aftur í 3. bekk þangað til þessari
    færni hefur verið náð. Og nú er svo komið að 6–10% barna fara þá leið.
    Þetta er leið sem er verið að grípa til í dag og verið er að nota. Það
    þarf því augljóslega að hugsa alla hluti upp á nýtt og líka þetta. Hvað
    gerum við þegar við erum að mæla færni barns? <ns:bjalla/> Það skiptir
    náttúrlega mestu máli, eins og við erum alltaf að ræða, að barn ekki bara
    læri að lesa heldur nái þeirri færni að það geti lesið til að geta lært,
    <ns:bjalla/> lesið sér til gagns. Ég vildi bara koma þessu aðeins að, til
    hæstv. ráðherra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>