<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:35:09" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:42:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:35:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir framlagninguna hér og ræðuna. Ég hefði nú farið í andsvar ef ég
    hefði náð því áðan þannig að mér þætti vænt um ef ráðherra hefði tök á að
    svara þeim spurningum sem ég kann að hafa um þetta mál. En ég ætla að
    byrja á því að hrósa fyrir það að þetta sé komið núna inn í tíma. Þetta
    mál, eins og ráðherra fór yfir, er endurflutt en það var mælt fyrir því
    hér í lok mars á síðasta ári. Þar af leiðandi er bara eðlilegt út frá
    takti þingsins að ekki sé hægt að afgreiða málið og þess vegna vil ég
    hrósa sérstaklega fyrir það að það sé komið inn tímanlega núna sem gefur
    þá nefndinni og þinginu kost á að vinna málið vel og vandlega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst langar mig að byrja á að segja það að ég hef nú verið
    þingmaður hér í næstum því tíu ár þannig að ég var hér þegar
    farsældarlögin voru samþykkt. Mér finnst hugmyndafræðin á bak við
    farsældarlögin frábær. Hæstv. þáverandi ráðherra, Ásmundur Einar Daðason,
    var mjög annt um þennan málaflokk, eins og ég veit að núverandi hæstv.
    ráðherra er og ég veit að þingheimur getur allur sameinast um það.
    Hugmyndafræðin á bak við það að grípa börn nógu snemma og
    kostnaðarútreikningarnir, ég ætla ekki að segja -matið, sem voru lagðir
    fram í tengslum við þetta frumvarp á sínum tíma voru í raun að selja okkur
    þá hugmynd að með því að standa vel að þessu þá myndum við spara
    umtalsverða fjármuni síðar meir vegna þess að það væru færri einstaklingar
    sem rötuðu út af hinni beinu braut. Við gætum sparað í fangelsismálum ef á
    það var litið. Það var farið alveg svo langt í því að tala um mikilvægi
    þessa máls. Ég er ekki ósammála þessari grunnpælingu, grunnhugmyndafræði
    um það að ef við grípum börnin snemma, ef við bregðumst strax við, getum
    við náð miklum árangri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ríkisendurskoðun skilaði þinginu hér
    stjórnsýsluúttekt í júní síðastliðnum og ég sé að í greinargerð
    frumvarpsins er talað um að það sé með einhverjum hætti verið að bregðast
    við þessari úttekt. Fyrstu viðbrögð mín voru: Er það? Vegna þess að það
    sem ég man alla vega eftir í umræðunni þegar ríkisendurskoðandi kom og
    kynnti þetta fyrir okkur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var nú meira
    bara að það hafi vantað fjármunina og kannski seigluna til að fylgja eftir
    þeim markmiðum sem sett voru fram í lögunum sjálfum. Mér finnst það ekki
    koma alveg nógu skýrt fram. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra vilji
    bregðast við þeirri skoðun minni en alla vega beini ég því til
    nefndarinnar að þau skoði það sérstaklega. Á bls. 5 í stjórnsýsluúttekt
    Ríkisendurskoðunar segir, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/farsaeldarlog_2_30_6_25.pdf-->

    <ns:mgr>„Ríkisendurskoðun gagnrýnir svör ráðuneytisins og telur þau hvorki
    í samræmi við umrætt kostnaðarmat né það sem fram kemur í greinargerð
    frumvarpsins. Ríkisendurskoðun telur svörin til marks um að ráðuneytið
    skorti skýra sýn á þá viðbótarþjónustu sem felst í lögunum, þær þarfir sem
    til stóð að uppfylla og þann árangur sem að var stefnt.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er kannski það sem gagnrýnin sneri mikið að. Ég held að það sé
    mikil samstaða um mikilvægi þjónustu við börn. Í þessari annars ágætu
    stefnu- og framkvæmdaáætlun ætla ég að fá að vera líka aðeins tæknileg og
    segja að mér finnst skorta á að hver og einn liður í framkvæmdaáætluninni
    sé kostnaðarmetinn. Ég sé hér mæta embættismenn í hliðarherbergi sem hafa
    örugglega unnið þetta og þeir þekkja til þess að í leiðbeiningum frá
    Stjórnarráðinu er ætlast til þess í framkvæmdaáætlun að liðir séu
    kostnaðarmetnir. Það er vissulega gert í greinargerð frumvarpsins, þá er í
    heildarmati á tímabilinu 2027–2030 gert ráð fyrir að ráðuneytið standi að
    fjármögnun aðgerðanna í framkvæmdaáætlun og heildarfjárhæðin sé um 820
    millj. kr. Þar af fara 520 millj. kr. í áframhaldandi stuðning við
    svæðisstöðvar íþróttahéraða og ekki ætla ég nú að gagnrýna það. En nú erum
    við með fjárlög sem liggja hér fyrir þinginu. Í fjárlagafrumvarpinu er
    verið að taka 1,1 milljarð út sem tengist farsældinni og greiðslunni inn í
    jöfnunarsjóð. Það gæti verið að það hafi farið fram hjá mér en ég heyrði
    alla vega ekki að ráðherra hafi komið inn á það í framsöguræðu sinni. Við
    heyrum þetta auðvitað gagnrýnt hjá sveitarfélögunum því að sveitarfélögin
    áttu mörg hver mjög erfitt með að fóta sig í þessu nýja lagaumhverfi. Þótt
    að allir hafi verið mjög sammála þá tók mislangan tíma að ná
    innleiðingunni og þess vegna er eðlilegt að sveitarfélögin gagnrýni nú að
    það fjármagn sem ég held að hafi farið í gegnum jöfnunarsjóð, þessar 1.100
    millj. kr., sé ekki til staðar nú.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að gagnrýna þær aðgerðir sem hér
    eru en það sem ég heyri úti í feltinu hjá bæði foreldrum sem eru með börn
    á biðlista, og ég veit að hæstv. ráðherra brennur jafn mikið fyrir því og
    sú sem hér stendur að eyða biðlistunum, og ég heyri það líka hjá
    starfsfólki í skólum og í sérþjónustunni að það vanti aðgerðirnar til að
    geta raunverulega þjónustað þessi börn. En þessi framkvæmdaáætlun gengur
    auðvitað meira út á formið, þ.e. að kortleggja, greina og skýra. En það er
    ekkert um það að leysa þarfir þeirra barna sem bíða eftir þessari
    þjónustu. Það kostar pening og við vitum það. Það kostar mikla peninga.
    Þannig að það er auðvitað eðlilegt, virðulegur forseti, að spurt sé hér og
    kannski er hæstv. ráðherra tilbúinn að svara því, að þessi kortlagning,
    greining og skýra hlutverk og svo endurskoðunin á að kosta um 800 millj.
    kr. Ég sé ekkert sérstaklega fjallað um það í fjármálaáætlun né í
    fjárlögunum en þar sé ég sparnað upp á 1.100 millj. kr. sem á að taka úr
    jöfnunarsjóði. Er leið hæstv. ráðherra til að fjármagna þessa
    framkvæmdaáætlun hér að taka 1.100 millj. kr. sem hugsaðar voru fyrir
    sveitarfélögin til að raunverulega sinna þeirri þjónustu sem lögin gerðu
    ráð fyrir, að taka þær og fjármagna þessa áætlun sem hér er?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vona að ég fái svar við því og ég vona að bæði hv.
    fjárlaganefnd og hv. velferðarnefnd skoði þetta í meðförum þingsins. Að
    því sögðu þá er ekkert í þessari framkvæmdaáætlun sem ég get verið
    ósammála, alls ekki. Ég er sammála henni en ég vona líka að við getum
    sammælst hér um raunverulegar aðgerðir sem miða að því að útrýma
    biðlistunum og tryggja það að börnin okkar fái þá þjónustu sem þau eiga
    rétt á og sem þau þurfa.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>