<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T18:42:43" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:44:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:42:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sína
    góðu og fínu ræðu og ég heyri að hjörtu okkar slái í takt sem er
    afskaplega ljúft að finna, bara eins og ég finn að þingheimur allur vill
    gera allt fyrir börnin okkar. Við stöndum frammi fyrir mjög stórum
    áskorunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður talar sérstaklega um jöfnunarsjóð. Ég finn mig knúna
    til að upplýsa hv. þingmann um það að upprunalega átti gildistími þessarar
    fjármögnunar að vera þrjú ár en við breyttum því síðan í fimm ár og það
    fellur niður um næstkomandi áramót. Fjármagnið var sem sagt upphaflega
    veitt til þriggja ára og síðan framlengt um tvö ár þannig að þessu fimm
    ára innleiðingartímabili er hér með að ljúka. Sá tími er liðinn og gert er
    ráð fyrir að sveitarfélögin séu í stakk búin til að taka við þessu
    hlutverki innan þess ramma sem þeim hefur verið skapaður. Og þá kem ég nú
    að aðalmálinu og það er mikilvægt að hafa það í huga — hv. þingmaður
    talaði hér um biðlista og annað slíkt sem hefur verið algerlega út úr öllu
    korti allan þann tíma sem ég hef verið þingmaður og maður hefur alltaf
    verið jafn hissa og alltaf jafn sár. En það er mikilvægt að hafa í huga að
    enn eru 700 millj. kr. sem renna í farsældina og verða þeir fjármunir
    nýttir til verkefna tengdum farsæld, m.a. í framhaldsskólum og í
    heilbrigðiskerfinu auk annarra mikilvægra verkefna. Verkefnin í þessari
    þingsályktunartillögu eru því fjármögnuð og rúmast innan fyrirliggjandi
    fjárheimilda. Í framkvæmdaáætluninni er einmitt fjöldi aðgerða sem styðja
    við innleiðinguna hjá sveitarfélögum, svo sem áframhaldandi stuðningur við
    svæðisbundin farsældarráð, stuðningur við málstjóra og tengiliði í störfum
    sínum, fræðsla til stjórnenda, aðgerðir til að stytta biðlista og
    þjónustufarvegi. Allt eru þetta aðgerðir til að styðja við sveitarfélög í
    störfum sínum. Auðvitað þarf að ræða betur við sveitarfélögin um framhald
    verkefnisins sem lofar náttúrlega mjög góðu og við erum þar ekkert að
    draga lappir eða eitt eða neitt og munum ekki leggja meira á þau en þau
    geta borið. En farsældina höfum við svo sannarlega verið að innleiða og
    samanlagt núna t.d. erum við að setja … <ns:bjalla/> — já, ég er hætt í
    bili.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>