<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:45:10" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:47:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:45:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér í
    andsvar og bregðast við þessum vangaveltum mínum. Ég hygg að hæstv.
    ráðherra viti það jafn vel og ég að sveitarfélögunum er brugðið. Ég hef
    fengið allmörg símtöl. Ég átta mig á því að þetta var tímabundin
    fjármögnun við innleiðingu og eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir var sú
    fjármögnun líka lengd. Ríkisendurskoðandi bendir einmitt á að
    innleiðingunni sé kannski ekki fyllilega lokið þannig að það má alveg
    velta fyrir sér hvort sveitarfélögin þurfi enn þann stuðning sem var
    ætlaður fyrir innleiðinguna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra talar hér um 700 milljónir í farsældina. Ég hygg
    að það sé verið að vísa í framkvæmdina sjálfa ef ég skil hæstv. ráðherra
    rétt. Ég fann það ekki í fljótu bragði í fjárlagafrumvarpinu en ef það eru
    aukapeningar þar þá fagna ég því svo sannarlega og efast ekki um að hæstv.
    ráðherra muni koma því í góð not til að tryggja að farsældin virki. Ég
    bæti kannski bara við þessar spurningar mínar sem ég átta mig á að eru
    kannski svolítið tæknilegs eðlis: Liggur fyrir greining á því hvað hver og
    einn liður í framkvæmdaáætluninni kostar? Eins og ég sagði þá færi betur á
    því að framkvæmdaáætlunin væri — það er gott að þar eru settir
    ábyrgðaraðilar, við áttum okkur á því að oft flæðir þetta á milli
    mismunandi ráðuneyta en ekki síður milli stofnana líka og sveitarfélaga.
    Liggur fyrir áætlun um það hvað hver og einn liður í framkvæmdaáætluninni
    kostar, því heildarupphæðin er gefin þarna í kostnaðarmatinu? Ef svo væri
    þá væri ágætt, held ég, fyrir nefndina sem slíka að hafa það. En ég tek
    undir það sem hæstv. ráðherra sagði hér áðan, það þarf að ræða þetta betur
    við sveitarfélögin. Sú sem hér stendur hefur mikla reynslu af því að vera
    sveitarfélagsmegin og reyna að ræða við ráðherra og þing um fjárveitingar
    en líka reynslu frá því að hún kom hingað inn af því að eiga þessi samtöl
    við sveitarfélögin. Miðað við þann ugg sem ég heyri í sveitarfélögunum þá
    <ns:bjalla/> hvet ég hæstv. ráðherra til þess að taka samtalið við
    sveitarfélögin um það hvernig við ætlum að tryggja þann árangur sem að var
    stefnt með farsældarlögunum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>