<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-15T18:47:28" skst="IngS" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:49:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:47:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég gleymdi að
    geta þess sem skiptir mjög miklu máli í öllu samhengi að nú erum við líka
    að bæta einmitt 350 milljónum við til þess að fara að vinna á biðlistunum
    á næstu tveimur árum, núna næstu tvö ár. Það liggur fyrir og gert ráð
    fyrir því alls staðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður spyr hvort við séum búin að greina þetta niður í öll
    box, ef svo má að orði komast. Þarna erum við með um 800 milljónir og
    auðvitað greinum við það niður þar sem hlutirnir eru raunverulega að
    gerast. Það er náttúrlega eins og liggur fyrir mjög mislangt á veg komið
    hvernig gengur í rauninni að innleiða farsældina. Það gengur mun betur á
    einum stað en öðrum eins og glögglega hefur komið í ljós og í rauninni er
    það mjög ánægjulegt, hv. þingmaður missti náttúrlega af því þegar ég var
    að segja frá því, þegar ég fékk gesti í heimsókn frá t.d. Akraneskaupstað
    og að vestan og af fleiri stöðum þar sem hlutirnir hafa gengið alveg
    frábærlega. Það eru þarna vel yfir 6.000 börn og fjölskyldur sem þegar eru
    farin að nýta sér þessa þjónustu og það er mikill vöxtur á milli ára núna
    þannig að það sést á þróuninni að smám saman eru tannhjólin okkar að
    liprast og smyrjast. Það standa vonir til þess auðvitað, þó svo að þetta
    hafi tekið svona langan tíma. Þetta er mjög þungt og stórt kerfi og eðli
    málsins samkvæmt er þessi vél okkar oft lengi í gang. En það er allt að
    gerast núna og miklu betur og við því sem ríkisendurskoðandi var að gera
    athugasemdir við í sumar var brugðist og er búið að laga. Það er
    sérstaklega ánægjulegt að segja að þessi þáttur hans í sambandi við flæðið
    upp í framhaldsskólana og annað slíkt, hvernig við ættum að vera með
    samþættu þjónustuna lengra upp — þessu hefur verið brugðist við og þetta
    er fjármagnað, hv. þingmaður, þannig að það er það gleðilega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>