<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T18:49:36" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 18:51:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:49:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="75">
      <ns:málsheiti>stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu
      farsældar barna til ársins 2030</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér í
    andsvör við mig og þessar upplýsingar sem hún hefur hér gefið. Það er gott
    að vita til þess að hér séu þessir liðir fullfjármagnaðir og hún nefndi
    líka 350 milljónir sem eiga að fara í að vinna á biðlistunum og því fögnum
    við öllsömul. Ég vona og vænti þess að við sjáum árangur þess innan skamms
    því að eins og svo oft hefur verið bent á, og ég veit að hæstv. ráðherra
    hefur mikinn skilning á því, þá er auðvitað hálft ár hjá tveggja ára barni
    rosalega langur tími þó að það sé ekki langur tími hjá fullorðnu fólki. En
    þegar þessi ungu börn bíða eftir þjónustu eða greiningum þá er þetta
    auðvitað svo stór hluti af þeirra ævi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra talar hér um að þetta hafi gengið vel á mörgum
    stöðum og fjöldi barna og fjölskyldna sé að fá þjónustu í samræmi við
    þessa hugmyndafræði. Það er gott og það er vel. Mig langar bara að því sé
    til haga haldið, þetta er kannski meira líka bara hvatning til
    nefndarinnar sem mun vinna málið áfram, að skýrsla ríkisendurskoðanda
    verði skoðuð vel því að eitt af því sem kemur þar fram er að það séu færri
    börn, ef ég skil þetta rétt. Með leyfi forseta, þá stendur hérna:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Þótt beinn kostnaður vegna laganna sé ekki langt frá efri mörkum
    kostnaðarmatsins þiggja um fjórfalt færri börn samþætta þjónustu en gert
    var ráð fyrir.“</ns:mgr>

    <!--https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-10-thad-skortir-enn-urraedi-fyrir-bornin-sem-eru-i-mestum-vanda-477661-->

    <ns:mgr>Jafnframt er farið yfir að það séu ákveðnar kenningar uppi um að
    það sé ofskráð, þá er reyndar sérstaklega verið að vísa til fósturbarna.
    Ég veit að hæstv. ráðherra mælti hér fyrir frumvarpi til barnaverndarlaga
    áðan. Ég náði því miður ekki að taka þátt í því samtali en þar stöndum við
    aftur uppi með gríðarlega mikilvægt verkefni. Ég vil hvetja hv.
    velferðarnefnd til að vinna hratt og vel að barnaverndarlögunum en ekki
    síður þarf að huga að fósturkafla laganna og því sem kemur fram í skýrslu
    Ríkisendurskoðunar og tengist auðvitað farsældinni beint, þ.e. hvaða
    umgjörð við búum fósturforeldrum, þeim fjölda fólks sem er að taka það
    mikilvæga verkefni að sér.</ns:mgr>

    <!--sagði: mælti fyrir barnaverndarlögunum áðan, laga, og laga líka það sem hún segir í lokin (því magni fólks...)-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>