<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T18:52:15" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:17:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T18:52:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra
    sveitarstjórnarlaga. Megintilgangur frumvarpsins er í senn einfaldur og
    brýnn: Að styrkja og styðja við sveitarstjórnarstigið á Íslandi. Markmiðið
    er að tryggja að sveitarfélög um allt land séu öflug, sjálfbær og vel í
    stakk búin til að takast á við umfangsmikil verkefni og tryggja íbúum
    faglega og skilvirka grunnþjónustu. Frumvarpið var lagt fram á vorþingi
    2026 en náði ekki fram að ganga. Málið var engu að síður tekið til
    meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og bárust nefndinni 36
    umsagnir. Umsagnirnar voru yfirfarnar af innviðaráðuneytinu og hefur
    frumvarpið tekið lítils háttar breytingum í samræmi við ýmsar ábendingar
    sem þar komu fram. Frumvarpið er því endurflutt að mestu óbreytt en gerð
    grein fyrir þeim breytingum sem hafa orðið á því í kafla 5.2.5. í
    greinargerð frumvarpsins. <!-- https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0005.pdf--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið á sér langan aðdraganda. Það er m.a. mikilvægur liður í
    að fylgja eftir áherslum Alþingis í málefnum sveitarfélaga sem fram koma í
    þingsályktunum um stefnumótandi áætlanir í málefnum sveitarfélaga frá
    árunum 2020–2024. Í frumvarpinu er brugðist við ábendingum sem borist hafa
    ráðuneyti mínu, m.a. frá umboðsmanni Alþingis, kjörnum fulltrúum,
    starfsmönnum sveitarfélaga og íbúum þeirra, um atriði sem betur mega fara
    við framkvæmd sveitarstjórnarlaga. Vinna við frumvarpsgerðina hefur staðið
    yfir um alllangt skeið og farið fram í nánu og góðu samráði við Samband
    íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin sjálf. Ýmis atriði frumvarpsins
    byggja til að mynda á vinnu starfs- og vinnuhópa þar sem fulltrúar
    sveitarfélaga hafa átt sæti. Haldnir hafa verið vinnufundir víðs vegar um
    landið með landshlutasamtökum og aðildarsveitarfélögum þeirra og farið
    hefur verið yfir efni frumvarpsins á stærri fundum með öllum
    sveitarfélögunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr><!--Hann segir; „frá núgildandi sveitarfélögum“, 18:54:35, það má gjarnan
hlusta,  breyti í sveitarstjórnarlögum, held að hann hafi átt við það, hann segir 
það líka í næstu efnisgrein / ii -->Frumvarpið er viðamikið og breytingar frá
    núgildandi sveitarstjórnarlögum snerta flesta meginkafla laganna. Helstu
    breytingarnar lúta að nokkrum lykilþáttum sem allir miða að því að styrkja
    sveitarstjórnarstigið. Efni frumvarpsins má skipta í nokkra þætti en hér
    er um að ræða fjóra meginþætti. Í fyrsta lagi fjármálakafla, samvinnu
    sveitarfélaga, traust almennings til stjórnsýslu sveitarfélaga og svo í
    fjórða lagi ýmsar úrbætur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrsta lagi hefur fjármálakafli laganna verið tekinn til
    heildarendurskoðunar. Markmiðið með endurskoðuninni er að styðja við
    fjárhagslegan grundvöll sveitarfélaga og auka sjálfbærni þeirra. Með
    núgildandi sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi 1. janúar 2012 voru gerðar
    talsverðar breytingar á reglum um fjármál sveitarfélaga í kjölfar
    fjármálahrunsins. Í ljósi þess að um ýmsar nýjungar var að ræða var gert
    ráð fyrir að kaflinn yrði endurskoðaður fyrir árið 2017 með hliðsjón af
    framkvæmd hans. Síðan þá hafa nokkrir starfshópar skipaðir fulltrúum ríkis
    og sveitarfélaga unnið að endurskoðun kaflans. Þrátt fyrir góðan vilja
    hefur um árabil ekki náðst fullkomin sátt um allar tillögur og útfærslur á
    köflunum. Í kjölfar niðurstöðu vinnuhóps sem skipaður var fulltrúum
    innviðaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hafði það
    hlutverk að vinna úr tillögum fyrri starfshópa hefur nú náðst samstaða um
    megindrætti þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu.
    Tillögurnar endurspegla þá þróun sem orðið hefur í opinberri
    fjármálastjórn á undanförnum árum, m.a. með tilkomu laga um opinber
    fjármál, nr. 123/2015.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Markmið tillagnanna er að styrkja fjárhagslegan grundvöll
    sveitarfélaga og samræma ákveðna þætti í fjármálastjórn ríkis og
    sveitarfélaga. Helstu breytingar frá núgildandi lögum snúa að því að
    sveitarfélögum ber að setja sér fjármálastefnu og fjármálaáætlun til fimm
    ára í stað fjárhagsáætlunar til fjögurra ára. Þá er lögð til skýrari
    flokkun á reikningsskilum, m.a. með tilkomu nýs C-hluta. Jafnframt eru
    gerðar auknar kröfur til fjármálastjórnar sveitarfélaga þar sem lagt er
    til að meginfjármálareglur laganna, þ.e. jafnvægisregla og skuldaregla,
    nái nú bæði til A-hluta sérstaklega og til A- og B-hluta samanlagt. Þá er
    skerpt á öðrum reglum sem snúa að ábyrgri fjármálastjórn sveitarfélaga.
    Áhrif breytinga á fjármálakafla laganna felast í því að skýrari reglur um
    reikningsskil og áætlanagerð bæta samanburð á rekstri sveitarfélaga, auka
    gagnsæi og styrkja aðhald íbúa og lánastofnana sem m.a. getur leitt til
    hagstæðari lánakjara fyrir sveitarfélög.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessu til viðbótar er lögð til breyting á 129. gr. núgildandi
    sveitarstjórnarlaga sem fjallar um fjárhagslegt mat á áhrifum
    stjórnarfrumvarpa, reglugerða og stefnumótandi ákvarðana stjórnvalda á
    sveitarfélög. Undanfarin ár hafa sveitarfélög bent á að ferlið hafi ýmsa
    vankanta og að nauðsynlegt sé að skapa formlegan lagaramma til að leysa úr
    ágreiningi ríkis og sveitarfélaga um þau áhrif sem frumvörp og
    stjórnvaldsfyrirmæli hafa á fjárhag þeirra. Í ljósi þessa var settur á
    laggirnar starfshópur sem í sátu fulltrúar Stjórnarráðsins og Sambands
    íslenskra sveitarfélaga til að annast endurskoðun á 129. gr. laganna.
    Starfshópurinn skilaði tillögu að umbótum á verklagi innan Stjórnarráðsins
    og bættum samskiptum við Samband íslenskra sveitarfélaga um gerð
    áhrifamata. Jafnframt lagði starfshópurinn til breytingar á 129. gr. til
    að styðja við hið nýja verklag og er frumvarpið að mestu leyti byggt á
    tillögum hópsins. Verði breytingarnar sem hér eru lagðar fram lögfestar
    eru meiri líkur á árangursríkri innleiðingu nýrra laga og reglna sem varða
    sveitarfélög. Vonir standa jafnframt til þess að þær muni draga úr
    ágreiningi ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsleg málefni og stuðli að
    skilvirkari fjárhagslegri sjálfsstjórn sveitarfélaga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi eru gerðar veigamiklar breytingar á þeim reglum sem
    gilda um samvinnu sveitarfélaga. Eitt af markmiðum frumvarpsins er að
    skerpa á ákvæðum um samvinnu sveitarfélaga með því að skilgreina betur
    hlutverk og stöðu landshlutasamtaka og setja skýrari ramma um önnur
    samvinnuform, þ.e. byggðasamlög og þegar eitt sveitarfélag tekur yfir
    verkefni annars sveitarfélags. Löng og rík hefð er fyrir samstarfi
    sveitarfélaga á Íslandi en ljóst er að slík samvinna hefur bæði kosti og
    galla. Annars vegar geta sveitarfélög leyst verkefni með hagkvæmari hætti
    og oft er samstarf nauðsynlegt vegna smæðar sveitarfélags. Hins vegar
    hefur samvinna sveitarfélaga almennt þann galla að á grundvelli hennar er
    framkvæmd verkefnis tekin úr höndum hinna kjörnu fulltrúa í
    sveitarstjórnum og færð öðrum aðila. Þannig verður rof á umboðskeðju
    kjósenda til kjörinna fulltrúa eða verður a.m.k. lengd umfram það sem
    hefðbundið er þegar hin kjörna sveitarstjórn fer með umsjón verkefnis og
    tekur með beinum hætti ábyrgð á því gagnvart kjósendum á fjögurra ára
    fresti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Alþingi ályktaði í stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga
    2024–2038 að skerpa ætti á reglum sveitarstjórnarlaga um samvinnu
    sveitarfélaga og setja skýrari reglur um byggðasamlög, m.a. hvað varðar
    stjórnskipulag og lýðræðislegt umboð, reglur um framsal á valdi,
    reikningshald, skipulag og lýðræðislegt umboð, reglur um framsal á valdi
    og fleira. Ráðuneytið stóð fyrir vinnustofum hjá öllum landshlutasamtökum
    í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga vorið 2025 í því skyni að
    leita eftir sjónarmiðum kjörinna fulltrúa og annarra sem þekkingu og
    reynslu hafa af samvinnu sveitarfélaganna. Þátttakendur voru starfsfólk
    landshlutasamtaka sveitarfélaga, kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og
    starfsfólk og stjórnendur samstarfsverkefna sveitarfélaga. Markmið
    vinnustofanna var að fá þátttakendur til að greina helstu áskoranir í
    samvinnu sveitarfélaga og leggja fram tillögur að lausnum á þeim
    áskorunum. Tillögurnar í frumvarpinu byggja m.a. á þeim sjónarmiðum sem
    komu fram á vinnustofunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Helstu tillögurnar snúa að því að æðsta vald í byggðasamlagi verði
    aðalfundur aðildarfélaga sem skal halda árlega. Á þessum aðalfundum
    byggðasamlaga munu allir kjörnir fulltrúar aðildarsveitarfélaganna hafa að
    lágmarki málfrelsi og tillögurétt. Þetta tryggir beina aðkomu minni hluta
    fulltrúa og eykur gagnsæi í stjórnsýslu þeirra. Hin grundvallarbreytingin
    á reglum um samstarf sveitarfélaga felst í því að kostnaðarskipting
    sveitarfélaga skuli að meginreglu byggja á raunkostnaði verkefnis í hverju
    sveitarfélagi fyrir sig. Þessi regla tryggir sanngirni í samvinnu
    sveitarfélaga og kemur í veg fyrir að eitt sveitarfélag niðurgreiði
    þjónustu fyrir annað sem getur hamlað eðlilegri þróun
    sveitarstjórnarstigsins. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að hlutverk
    landshlutasamtakanna verði skýrt; þau verði skilgreind sem félagasamtök,
    þ.e. hagsmunaaðilar en ekki stjórnvöld. Því verður meginreglan sú að ekki
    verði heimilt að framselja til þeirra vald til að taka
    stjórnvaldsákvarðanir nema í undantekningartilvikum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi eru í frumvarpinu ýmsar tillögur sem stuðla að því
    að efla traust almennings á stjórnsýslu sveitarfélaga. Hér má nefna að
    sveitarstjórnum verður skylt að setja reglur um skráningu á fjárhagslegum
    hagsmunum og trúnaðarstörfum kjörinna fulltrúa, framkvæmdastjóra og æðstu
    stjórnenda. Á sama hátt verður gildissvið siðareglna víkkað þannig að þær
    taki einnig til æðstu stjórnenda. Lagt er til að sú mikilvæga en óskráða
    regla sveitarstjórnarréttar verði lögfest að þegar sveitarfélag úthlutar
    takmörkuðum gæðum eins og lóðum, fasteignum eða styrkjum skuli úthlutunin
    að jafnaði auglýst opinberlega. Þetta er grundvallaratriði til að auka
    jafnræði og gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélaga. Skerpt er á
    upplýsingaskyldu sveitarfélaga til íbúa. Sveitarfélögum ber til að mynda
    að upplýsa um mál og áætlanir á meðan þau eru til meðferðar en ekki bíða
    þar til ákvörðun hefur verið tekin og er þetta mikilvægt atriði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Jafnframt eru lagðar til breytingar á almennu eftirliti ráðherra
    með stjórnsýslu sveitarfélaga. Markmiðið er að tryggja skilvirkara og
    markvissara eftirlit þar sem þess er þörf. Helsta breytingin verður sú að
    staðfestingarhlutverk ráðuneytisins með samþykktum og samvinnusamningum
    sveitarfélaga er fellt niður og öðlast slíkar samþykktir og samningar þess
    í stað gildi við birtingu þeirra í Stjórnartíðindum. Í staðinn fær
    ráðherra skýra heimild til að grípa inn í og fella úr gildi einstök ákvæði
    í samþykktum eða samningum sem augljóslega brjóta í bága við lög.
    Tilgangurinn með þessari breytingu er að einfalda stjórnsýslu stjórnvalda
    og efla frumkvæðiseftirlit ráðherra. Almennt stjórnsýslueftirlit ráðherra
    með sveitarfélögum er skýrt nánar auk þess sem lögð er til sú breyting að
    hægt verði að koma á framfæri ábendingum til ráðuneytisins sem verða
    bundnar þagnarskyldu þess. Þá er lagt til það nýmæli að ráðherra fái
    heimild til að leggja stjórnvaldssekt á sveitarfélag í þeim tilvikum þar
    sem um er að ræða mjög alvarlega og ítrekaða vanrækslu af hálfu
    sveitarfélags á lögbundnum skyldum sínum. Ekki er hægt að grípa til neinna
    annarra úrræða til að tryggja að stjórnsýsla sveitarfélags sé í samræmi
    við lög. Til að styrkja eftirlit með fjármálum eru reikningsskila- og
    upplýsingarnefnd og eftirlitsnefnd með fjármálum sameinaðar í eina nefnd:
    eftirlitsnefnd með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga. Með því að
    samþætta verkefnin á einni hendi verður eftirlitið skilvirkara og
    heildaryfirsýn betri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fjórða lagi eru lagðar til ýmsar úrbætur á gildandi
    sveitarstjórnarlögum um atriði sem betur mættu fara, til að mynda reglur
    um fundi sveitarstjórna, upplýsingarétt kjörinna fulltrúa og málsmeðferð
    sveitarfélags þegar til skoðunar kemur hvort kjörinn fulltrúi sé vanhæfur
    til að taka þátt í meðferð og afgreiðslu máls auk fleiri nauðsynlegra
    breytinga á lögunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Kjarninn í þessu frumvarpi er að skapa betri
    forsendur fyrir öflug og sjálfbær sveitarfélög. Rannsóknir sem vísað er
    til í greinargerð frumvarpsins sýna að þjónusta við íbúa er almennt betri
    og skilvirkari í fjölmennari sveitarfélögum. Stærðarhagkvæmni er
    óumdeilanleg upp að vissu marki þegar kemur að rekstri grunnþjónustu
    sveitarfélaga. Framtíð sveitarstjórnarstigsins á Íslandi felst í stærri
    stjórnsýslueiningum með fleiri en einum byggðakjarna, svokölluðum
    fjölkjarnasveitarfélögum. Það er engin tilviljun að hagsmunasamtök fatlaðs
    fólks hafa í umsögnum sínum kallað eftir stærri og sjálfbærari einingum
    enda er það forsenda þess að sveitarfélögin geti veitt þá sérhæfðu og
    mikilvægu þjónustu sem þessi hópur þarf á að halda. Þetta rímar við það
    markmið sem Alþingi hefur þegar samþykkt, að lágmarksíbúafjöldi skuli að
    jafnaði ekki vera undir 1.000. Ég vil þó árétta að tilgangurinn með þeirri
    breytingu var ekki að öll sveitarfélög ættu að hafa 1.000 íbúa heldur var
    horft til þess að sveitarfélögum myndi fækka verulega, helst niður í 30
    eða færri. Rannsókn sem unnin var árið 2020 leiddi í ljós að
    sveitarstjórnarstig með 30 sveitarfélögum fæli í sér hagræðingu 3 til 5
    milljarða árlega fyrir sveitarstjórnarstigið í heild sem gæti nýst í betri
    þjónustu eða lækkun á álögum á íbúa. Hefði frumvarp um það verið samþykkt
    á þeim tíma má áætla að um 40 milljarðar kr., að teknu tilliti til
    verðlags, hefðu getað nýst með þessum hætti síðastliðinn fimm ár á
    sveitarstjórnarstiginu, t.d. í betri þjónustu við íbúa eða lækkun á
    álögum. Það er því ljóst að um risavaxið hagsmunamál íbúa þessa lands er
    að ræða og því hljóta allir að fagna sem tala um hagkvæmni í opinberum
    rekstri. Það eru því sterk rök sem mæla með sameiningu sveitarfélaga og
    því felur frumvarpið í sér ýmis ákvæði sem stuðla að stærri
    sveitarfélögum. Markmiðið er skýrt: Að hér á landi starfi öflugt og
    hagkvæmt sveitarstjórnarstig þar sem lýðræðið er virt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þótt sveitarfélögum verði áfram heimilt að sinna lögbundnum
    verkefnum sínum í samvinnu sín á milli á það að vera undantekning fremur
    en regla því slíku fyrirkomulagi fylgir óhjákvæmilega lýðræðishalli.
    Frumvarpið gerir því ríkari kröfur til samstarfsverkefna til að tryggja
    lýðræðislegt aðhald og koma í veg fyrir að stærri sveitarfélög niðurgreiði
    þjónustu fyrir þau minni. Þá er lagt til að frumkvæði að sameiningum verði
    fært að einhverju leyti í hendur íbúanna sjálfra. Hér er verið að taka á
    svokölluðum umboðsvanda sem vel þekktur er í fyrirtækjarétti og
    hlutafélagarétti, þ.e. umboðsvanda milli kjörs íbúanna, kjósenda og
    stjórnenda sveitarfélaga og sveitarstjórnarfulltrúa. Þessi umboðsvandi er
    líka á milli hluthafa, eigenda fyrirtækja og stjórnenda fyrirtækja.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir að 10% kosningarbærra íbúa geti krafist
    sameiningarviðræðna við annað sveitarfélag. Sveitarstjórn þess
    sveitarfélags getur hafnað kröfu um sameiningarviðræður en þá geta 10%
    íbúa þess sveitarfélags krafist þess að gengið verði til
    sameiningarviðræðna. Þetta gildir einnig um íbúa stærri sveitarfélaga sem
    geta krafist formlegs álits á stöðu sveitarfélagsins. Í báðum tilvikum
    lyki ferlinu með almennum sameiningarkosningum. Með þessu er valdið fært
    frá einstökum sveitarstjórnarmönnum og beint til íbúanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í samræmi við ákvæði gildandi
    sveitarstjórnarlaga fór innviðaráðuneytið eftir
    sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 fram á að tíu sveitarfélög með færri
    en 250 íbúa skiluðu áliti um getu þeirra til að sinna lögbundnum verkefnum
    og um kosti sameininga. Þar kom fram að ekkert af tíu fámennustu
    sveitarfélögum á landinu sér um velferðarþjónustu við íbúa upp á eigin
    spýtur og aðeins þrjú þeirra ráku grunn- og leikskóla. Því er mun
    algengara að viðkomandi sveitarstjórnir hafi samið við sveitarstjórn
    annars sveitarfélags um veitingu þjónustunnar eða tekið sig saman með
    öðrum sveitarstjórnum um veitingu hennar í gegnum byggðasamlag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað er sveitarfélag? Ég lít svo á að það sé stjórnsýslueining
    sem getur sinnt meiri hluta lögbundinna verkefna sinna sjálft.
    Sveitarfélag sem framselur öll sín verkefni til nágranna sinna getur vart
    talist sjálfbært sveitarfélag og um það hljótum við öll að vera sammála.
    Íbúar sveitarfélaga sem ekki geta sinnt verkefnum sínum sjálf eru í raun
    sviptir þeim lýðræðislega rétti að hafa áhrif á útfærslu þeirrar þjónustu
    sem þeim ber að fá samkvæmt lögum. Íbúar eiga að kjósa fulltrúa sem bera
    raunverulega ábyrgð á þjónustunni en ekki milliliði sem hafa það eina
    hlutverk að semja við nágrannasveitarfélög um að leysa verkefnin fyrir
    sig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tel ástæðu til að nefna að skoðaður var ítarlega sá möguleiki
    að skilgreina í lögunum lágmarkshlutfall sveitarfélags eingöngu út frá
    veitingu lágmarksþjónustu. Niðurstaðan var sú að slík nálgun hefði getað
    skapað ranga hvata fyrir sveitarfélög til að halda úti óhagkvæmri þjónustu
    sem þjónar ekki hagsmunum íbúanna eingöngu til að uppfylla lagaskilyrði um
    tilvist sína. Skýrasta dæmið um þetta væru hvatar til að starfrækja afar
    fámenna grunnskóla, jafnvel með einungis einum eða tveimur nemendum, þar
    sem faglegt og félagslegt umhverfi barnanna væri ekki tryggt í stað þess
    að leita hagkvæmari og betri lausna með sameiningu. Er sú leið að miða við
    ákveðinn lágmarksfjölda íbúa með sérstökum undantekningum því skynsamlegri
    leið til að skilgreina hvaða lágmarksþjónustu sveitarfélag verður að
    veita.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tel því mikilvægt að árétta að markmið laganna um að íbúafjöldi
    sveitarfélags verði ekki undir 1.000 stendur óbreytt þótt ákvæðið sem
    kynnt var sem hluti þessa frumvarps haustið 2025 um að lögfesta
    lágmarksíbúafjölda við 250 sé ekki að finna í frumvarpi þessu. Mér varð
    ljóst að ákvæðið væri umdeilt og sérstaklega að fara þá leið að veita
    ráðherra heimild til að koma á sameiningum sveitarfélaga með færri en 250
    íbúa. Ég er enn þá þeirrar skoðunar að sveitarstjórnarstigið þarfnist
    breytinga. Sveitarfélögin þurfa að vera stærri og öflugri til að geta
    sinnt þeim lögbundnu skyldum sem þeim er falið í lögum. Ég hyggst því
    skipa þverpólitíska þingmannanefnd til að fjalla um sveitarstjórnarstigið
    og leiðir til að stuðla að framþróun þess. Komi í ljós vilji þessarar
    nefndar og þar með þingsins til að stíga slík skref, að mæla fyrir um
    lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga eða grípa til annarra úrræða til að
    styrkja sveitarstjórnarstigið, vil ég taka fram að ég og ráðuneyti mitt
    erum reiðubúin að vinna með þinginu að frekari útfærslu á slíku ákvæði eða
    þá öðrum leiðum sem stuðla að því sameiginlega markmiði okkar að tryggja
    að sveitarstjórnarstigið haldi áfram að þróast í rétta átt því að hér er
    til mikils að vinna fyrir íbúa landsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ljósi þeirrar framtíðarsýnar sem ég hef farið hér yfir, um að
    sveitarfélög verði öflugar einingar með marga byggðakjarna, tel ég
    grundvallaratriði að tryggja minni byggðarlögum vettvang og rödd innan
    stærri eininga og innan stærri sveitarfélaga, svokallaðra
    fjölkjarnasveitarfélaga sem ná yfir víðáttumikið land. Með það í huga
    óskaði ég eftir því að Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri rannsakaði
    tilraunaverkefni sveitarfélagsins Múlaþings á Austurlandi um heimastjórnir
    og reynsluna af því. Niðurstöður greiningarinnar voru skýrar: Helstu
    kostir heimastjórnarkerfisins reyndust vera sú formfesta sem skapast
    hefur, skilgreind ábyrgð og völd, skýrt umboð fulltrúa og vel afmörkuð
    verkefni. Byggt á reynslunni töldu viðmælendur rannsóknarinnar rök hníga
    að því að halda áfram á sömu braut og almennt var mun meiri ánægja með
    heimastjórnir en t.d. hverfisráð sem eru nefndir fyrir hluta sveitarfélags
    sem ekki hafa valdheimildir. Frumvarpið tekur mið af þessum sjónarmiðum og
    er lagt til að hugtakið heimastjórn verði skilgreint í lögum ásamt þeim
    lágmarksvaldheimildum sem slíkar stjórnir þurfa að hafa, bæði til að
    einfalda sveitarfélögum að koma á fót heimastjórnum og festa í sessi skýra
    merkingu hugtaksins. Jafnframt er lagt til nýtt ákvæði sem veitir íbúum í
    byggðakjörnum rétt til að krefjast þess að skipuð verði nefnd um málefni
    svæðisins að uppfylltum skilyrðum um 250 íbúa að lágmarki og 10 km
    fjarlægð frá stærsta kjarna. Það verður þá áfram í höndum sveitarstjórnar
    að ákveða valdheimildir slíkrar nefndar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og heyra má er þetta frumvarp afar
    umfangsmikið. Ég hef stiklað á stóru um efni þess en hvet alla þingmenn
    til að kynna sér vel þær breytingar sem felast í frumvarpinu. Frumvarpið
    tekur á grunngerð sveitarstjórnarstigsins, fjármálum þess, samstarfsformum
    og lýðræðislegu aðhaldi með sveitarfélögunum og það er hið lýðræðislega
    hlutverk kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa. Allar þessar breytingar miða að
    einu og sama markmiði: Að styrkja sveitarstjórnarstigið. Við erum að búa
    til öflugri og sjálfbærari einingar, tryggja að fjármálareglur styðji við
    sjálfbærni sveitarfélaga, tryggja að samvinna þeirra sé lýðræðisleg og
    auka traust íbúa á stjórnsýslunni. Með þessu frumvarpi stígum við skref að
    nútímalegra og skilvirkara sveitarstjórnarstigi sem er betur í stakk búið
    til að takast á við verkefni framtíðarinnar íbúum sínum til
    hagsbóta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til, virðulegi forseti, að frumvarpi þessu verði að
    lokinni þessari umræðu vísað til 2. umræðu og meðferðar til hv. umhverfis-
    og samgöngunefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>