<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:17:51" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:20:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:17:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna um
    þetta frumvarp sem er nú reyndar lagt hérna fram í annað sinn. Það fór
    fram ágæt umræða um það, ef mig rekur minni til, á síðasta þingi síðasta
    vetur. Ég vænti þess að umræðan verði mikil um þetta mál sem er
    umfangsmikið. Mig langaði í þessu andsvari að dvelja við eitt atriði sem
    ég ræddi reyndar við hæstv. ráðherra á sínum tíma þegar hann lagði málið
    fram. Það var hvernig honum hugnaðist að gera breytingu á þessu frumvarpi
    sem lýtur sérstaklega að Reykjavík, að veita borgarstjórn Reykjavíkur
    meira frelsi til að ákveða fjölda borgarfulltrúa. Nú er það þannig að
    kveðið er á um það í þessu frumvarpi, eins og í núgildandi lögum, að
    sveitarfélög með yfir 100.000 — í frumvarpinu er sem sagt ekki gerð
    breyting á því ákvæði sem kom nýtt inn í núgildandi sveitarstjórnarlög
    fyrir nokkrum árum sem kveður á um að sveitarfélög með yfir 100.000 íbúa
    þurfi að hafa sveitarstjórnarfulltrúa á bilinu 23 upp í að mig minnir 31.
    Þannig er það í dag að Reykjavík má lögum samkvæmt ekki hafa færri
    borgarfulltrúa en 23. Eftir sem áður er það ákvörðun borgarstjórnar hversu
    margir þeir eru á þessu bili. Ég hef sjálf lagt fram ítrekað frumvarp til
    breytingar á þessu ákvæði sveitarstjórnarlaga í þá veru að borgarstjórn
    hafi heimild til að kveða á um færri borgarfulltrúa en nú er. Hvernig
    hugnast hæstv. ráðherra sú breytingartillaga?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>