<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:20:12" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:21:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:20:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Þetta atriði kom ekki til skoðunar við undirbúningsvinnu frumvarpsins.
    Frumvarpið er mjög umfangsmikið og nauðsynlegt til að koma á mikilvægum
    réttarbótum sem ég tel að þverpólitísk sátt geti ríkt um. Ég er hlutlaus
    gagnvart þessu atriði, um hvort eigi að skylda sveitarfélög yfir 100.000
    manns til að hafa 22 eða fleiri, en mín persónulega skoðun er þessi:
    Vandinn sem blasir við er ekki fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa. Vandinn sem
    blasir við er of mikill fjöldi sveitarfélaga sem geta ekki veitt nægilega
    þá þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum. Það er stóri vandinn og ég held
    að ef áhugamál hv. þingmanns er skilvirkni og hagkvæmni
    sveitarstjórnarstigsins þá væri ég mun hlynntari því að sveitarfélögum
    verði fækkað og þau sameinist svo að þau geti náð betur utan um verkefni
    sín. Það er stóri vandinn á sveitarstjórnarstiginu. Hvað þetta varðar þá
    tel ég að við eigum að taka höndum saman um það, og ég tel að
    þingmannanefndin fái þetta hlutverk, að stuðla að því að sveitarstjórnum
    fækki. Við getum ekki haft sveitarfélög sem eru með 50 íbúa, jafnvel 20
    íbúa yfir vetur. <ns:bjalla/> Þetta atriði er stóra vandamálið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>