<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:21:40" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:22:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:21:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fagna
    því að hann sé nú orðinn a.m.k. hlutlaus til þessarar tillögu vegna þess
    að mér fannst hann heldur neikvæður á síðasta löggjafarþingi til þessa
    máls. Kannski olli þar að sveitarstjórnarkosningar voru á næsta leiti. En
    t.d. eins og borgarstjórnin er skipuð núna hafa menn haft, hefur mér
    virst, áhuga á því að skoða þessi mál og ég vek athygli á því að fjöldi
    íbúa á bak við hvern einasta borgarfulltrúa í Reykjavík er helmingi færri
    en íbúafjöldi á bak við borgarstjórnina í stærstu borgum Norðurlandanna,
    þ.e. það eru tvöfalt fleiri íbúar á bak við hvern borgarfulltrúa í þeim
    löndum í kringum okkur, fyrir utan að það er ekki full atvinna að vera
    borgarafulltrúi í þessum löndum. Ég velti því fyrir mér og hvet hv. nefnd
    sem fær málið til umfjöllunar að skoða virkilega þetta lagafrumvarp mitt
    sem ég hef lagt fram aftur ef það mætti verða til þess að frumvarpið
    sjálft tæki breytingum, af því að ég held að nú sé lag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>