<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:23:07" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:24:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:23:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Varðandi fjölda sveitarstjórnarfulltrúa í
    landinu: Ég held að það séu 455 sveitarstjórnarfulltrúar í öllu landinu. Á
    höfuðborgarsvæðinu minnir mig að þeir séu 76. Við erum með 63 þingmenn.
    Vitnað var í Norðurlöndin. Á Norðurlöndunum eru 130 þingmenn í Noregi,
    þeir eru 15 sinnum fleiri. Við erum með 63 þingmenn. Í Svíþjóð held ég að
    þeir séu 349. Við getum alltaf farið í samanburð og þá munum við alltaf
    vinna. Ég tel að stóra vandamálið sé ekki að það séu 23 borgarfulltrúar.
    Ég held frekar að það ætti að stuðla að sameiningu sveitarfélaganna á
    höfuðborgarsvæðinu og líka víðar um land. Ég myndi vilja sjá sveitarfélög
    á milli 10 og 20 í landinu. Það myndi efla byggð um allt land, líka á
    landsbyggðinni, svo að það liggi algjörlega fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>